Missti hönd í mótmælunum Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 6. október 2026 06:52 Mótmælin ganga út á það að koma í veg fyrir að hægt sé að komast inn í skólann. EPA Fimmtán ára drengur missti höndina þegar hann mótmælti fyrir utan framhaldsskóla í Frakklandi. Enn halda mótmælin áfram og fer umfang viðbragða lögreglu vaxandi.
Pilturinn var að mótmæla í bænum Lens, sem er í norðurhluta Frakklands, að sögn Francois-Xavier Lauch, héraðsstjóra Pas-de-Calais. Á milli 150 og tvö hundruð mótmælendur hófu að kasta hlutum í lögregluna þegar óeirðalögreglan skarst í leikinn. Ekki er víst hvort að hvellsprengja lögreglu hafi átt í hlut samkvæmt umfjöllun The Guardian. Lauch staðfesti að rannsókn á atvikinu væri hafin. Fjölskylda sextán ára nemanda í Tours, um tvö hundruð kílómetra austur af Nantes, hefur lagt fram kæru vegna lögregluofbeldis eftir að nemandinn missti sjón á hægra auga. Saksóknari sagði áverkana samræmast höggi frá gúmmíkúlu lögreglu. Mótmælin hófust í lok september en á síðustu vikum hafa þau snúist út í óeirðir. Nemendur tóku að mótmæla vegna lélegra námsskilyrða, svo sem undirmönnunar kennara, yfirfullra kennslustofa og skólabygginga í niðurníðslu. Hundruðum skóla var lokað á mánudag eða stóð kennsla yfir í fjarkennslu vegna mótmælanna. Gert er ráð fyrir því að þúsundir muni taka þátt í mótmælunum í dag. Háskólanemar hafa einnig gengið til liðs við framhaldsskólanemana og var allt að fjörutíu háskólabyggingum lokað í gær. Taka á helstu kröfunum Sébastien Lecournu, forsætisráðherra Frakklands, hefur falið ráðherrum sínum að taka á fimm helstu kröfum nemendanna. Meðal þeirra er að skipuleggja afleysingar fjarverandi kennara en á sumum stöðum hafa nemendur misst úr kennslu mánuðum saman vegna fjarverandi kennara. Ríkisstjórnin mun einnig skoða viðgerðir á niðurníddum skólabyggingum og endurskoða lengd skóladags Frakka sem er með þeim lengstu í Evrópu. Sumar bygginganna eru ansi illa farnar og lýsa nemendurnir vatnsleka í kennslustofum, kakkalökkum og óbærilegum hita á sumrin. Yfir fimm þúsund manns, flestir unglingar, hafa verið handteknir í mótmælunum víðs vegar um Frakkland.
Frakkland Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Sjá meira