Myndasyrpa: Gleðin við völd í Gautaborg Strákarnir okkar brostu mikið í Gautaborg í gær eins og sjá má í myndasyrpu úr smiðju Vilhelms Gunnarssonar. Hann var að sjálfsögðu á staðnum þegar Ísland vann öruggan sigur gegn Grænhöfðaeyjum á HM í handbolta. 19.1.2023 07:29
Tómas undir hnífinn eftir tveggja ára glímu við meiðsli Körfuboltamaðurinn Tómas Þórður Hilmarsson verður ekki með Stjörnunni næstu sex vikurnar hið minnsta en hann fór í aðgerð á báðum fótum eftir tapið gegn Val í bikarúrslitaleiknum um síðustu helgi. 18.1.2023 15:01
„Drauma HM“ á enda hjá Ólafi sem ætlar að gera eins og restin af þjóðinni Skyttan sterka Ólafur Guðmundsson hefur leikið sinn síðasta leik fyrir Ísland á heimsmeistaramótinu í handbolta. Hann náði þó að spila í höll sem er honum afar kær. 18.1.2023 12:47
„Trúum ekki öðru en að stærsta innigrein landsins fái pláss“ Sólveig Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Fimleikasambands Íslands, kallar eftir því að ráðamenn sýni að gert sé ráð fyrir fimleikum í nýju þjóðarhöllinni sem stefnt er að því að rísi í Laugardal árið 2025. 18.1.2023 12:32
BBC biðst afsökunar á klámhrekknum Áhorfendum í Bretlandi brá sjálfsagt í brún í gærkvöld þegar háværar stunur heyrðust á meðan að Gary Lineker og félagar ræddu í beinni útsendingu um bikarleik Liverpool og Wolves sem var þá að hefjast. 18.1.2023 10:00
Jafnaði Bjarka en fúll yfir verðlaunum og henti þeim frá sér Danski handboltasnillingurinn Mathias Gidsel skoraði átta mörk úr tólf tilraunum og var kjörinn maður leiksins þegar Danmörk vann Túnis á HM karla í handbolta í gær. Hann var hins vegar hálffúll yfir þeirri viðurkenningu. 18.1.2023 07:30
Ristin brotin og Tryggvi úr leik Tryggvi Hrafn Haraldsson, knattspyrnumaður úr Val, vonast til að vera farinn að æfa og geta mögulega spilað fyrsta leik liðsins í Bestu deildinni í vor þrátt fyrir að hafa ristarbrotnað á dögunum. 17.1.2023 22:30
Með tvo ólöglega leikmenn en sigurinn stendur Íslandsmeistarar Vals unnu 13-0 sigur gegn Fram í fyrsta leiknum í Reykjavíkurmóti kvenna í fótbolta síðastliðinn föstudag. Sigurinn stendur, þrátt fyrir að Valur hafi teflt fram tveimur ólöglegum leikmönnum. 17.1.2023 15:31
Strákarnir okkar þurfa að fella frændur sína eða treysta á mikla heppni Á Ísland enn möguleika á að vinna til verðlauna á HM? Getur liðið komist í undanúrslit án þess að vinna Svía? Hvað þarf að gerast og hvað má alls ekki gerast? Það er kominn tími til að rýna í stöðuna fyrir leiki Íslands í milliriðli. 17.1.2023 10:32
Búið spil hjá Brady sem gaf engar vísbendingar NFL-goðsögnin Tom Brady gæti hafa spilað sinn allra síðasta leik í gærkvöld en hafi svo verið rímaði frammistaðan engan veginn við einstakan feril þessa magnaða íþróttamanns. 17.1.2023 09:30