Skallaði andstæðing og ógnaði dómara Leikmaður Stál-úlfs í 2. deild karla í körfubolta hefur verið úrskurðaður í fimm leikja bann vegna framgöngu sinnar í leik gegn Þrótti Vogum fyrr í þessum mánuði. 26.11.2021 07:30
Sentist með ísskápa en varð svo hetja AC Milan í Meistaradeildinni Fyrir þremur árum sá Junior Messias fyrir sér með því að sendast með ísskápa og uppþvottavélar. Í gær var þessi þrítugi Brasilíumaður hetja AC Milan í dýrmætum sigri gegn Atlético Madrid í Meistaradeild Evrópu í fótbolta. 25.11.2021 16:30
Kastaði eigin leikmanni til: „Helvítis viðbjóður. Grey stelpurnar“ Kallað hefur verið eftir því að rúmenskur þjálfari fari í bann frá handbolta eftir dreifingu myndbands þar sem hann sést skamma eina af konunum sem hann þjálfar og kasta henni svo til í átt að varamannabekknum. 25.11.2021 10:30
LeBron James lét dómarann senda stuðningsmenn í burtu LeBron James var ósáttur við talsmáta tveggja stuðningsmanna Indiana Pacers og fékk í gegn að þeim yrði vísað í burtu í Indiana í gærkvöld. Hann innsiglaði í kjölfarið sigur Los Angeles Lakers, í framlengdum leik. 25.11.2021 10:00
Þórir segir stress hafa kostað sig og stelpurnar ólympíugullið Þórir Hergeirsson og lærimeyjar hans í norska landsliðinu í handbolta hefja keppni á HM á Spáni í næstu viku. Þær freista þess að vinna sinn fyrsta heimsmeistaratitil frá árinu 2015. 25.11.2021 08:01
Sneri aftur með látum úr sínu fyrsta banni LeBron James skoraði 39 stig þegar hann sneri aftur til leiks með LA Lakers í nótt, eftir sitt fyrsta leikbann á ferlinum. Liðið fagnaði 124-116 sigri á Indiana Pacers í framlengdum leik í NBA-deildinni í körfubolta. 25.11.2021 07:30
Víkingur og KA í Skandinavíudeild Íslandsmeistarar Víkings og lið KA munu hefja nýtt knattspyrnuár í hlýjunni á Alicante á Spáni þar sem liðin leika í Skandinavíudeildinni í fótbolta. 24.11.2021 15:31
Sænsku stelpurnar ekki til Íslands vegna stöðu faraldursins hér Sænska knattspyrnusambandið ákvað að senda ekki U19-landsliðs kvenna í fótbolta hingað til lands vegna stöðu kórónuveirufaraldursins hér á landi. 24.11.2021 14:31
Áfengi í landsliðsferð sagt hafa fellt Eið Smára | KSÍ svarar ekki Forráðamenn og stjórnarfólk KSÍ vill ekki eða hefur ekki tjáð sig um ástæður þess að Eiður Smári Guðjohnsen er ekki lengur aðstoðarþjálfari karlalandsliðs Íslands í fótbolta. 24.11.2021 09:53
Þarf að greiða 440 krónur fyrir að kasta flösku í frönsku stjörnuna Stuðningsmaður Lyon sem kastaði vatnsflösku í höfuð Dimitri Payet á sunnudag þarf ekki að greiða háa sekt vegna málsins. Hann fær hins vegar ekki að mæta á völlinn næstu fimm árin. 24.11.2021 08:00
„Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Innlent