Samningi Arons í Póllandi rift Knattspyrnumaðurinn Aron Jóhannsson mun ekki leika meira fyrir pólska félagið Lech Poznan. Aron og félagið tóku sameiginlega ákvörðun um að rifta samningi hans sem gilda átti til áramóta. 31.8.2021 17:31
Samningi Kolbeins ekki rift Samningi sænska knattspyrnufélagsins IFK Gautaborgar við Kolbein Sigþórsson verður ekki rift. Þetta segir Pontus Farnerud, íþróttastjóri sænska félagsins. 31.8.2021 16:39
Arnar segir núverandi hóp með hreinan skjöld „Ekkert lið í sögu knattspyrnunnar hefur verið sett undir svona pressu,“ segir Arnar Þór Viðarsson um íslenska karlalandsliðið sem hann stýrir gegn Rúmeníu á Laugardalsvelli á fimmtudag. 31.8.2021 16:01
Leikmenn hræddir við að segja eitthvað rangt Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfari segir leikmenn hrædda við að tjá sig varðandi þau mál sem snúið hafa að karlalandsliðinu í fótbolta og Knattspyrnusambandi Íslands undanfarna daga. 31.8.2021 15:26
Ísland í riðli með Rússum, Hollendingum og Ítölum Ísland dróst í riðil með Rússlandi, Hollandi og Ítalíu í undankeppni heimsmeistaramóts karla í körfubolta. Fyrstu leikir eru á dagskrá í nóvember. 31.8.2021 10:30
Innilokaður í tíu daga en hélt lífi í vonum KR: „Ekki planið að ég spilaði“ Eftir að hafa verið lokaður inni í eigin húsnæði í tíu daga á meðan hann jafnaði sig af kórónuveirusmiti fékk Kristinn Jónsson óvænt að koma inn á í leik KR gegn Leikni í fyrradag. Hann var ekki ryðgaðri en svo að hann skoraði bæði mörk KR í afar dýrmætum 2-1 sigri í Pepsi Max-deildinni í fótbolta. 31.8.2021 08:50
Rúmenar fjalla um „risahneyksli“ á Íslandi Rúmenskir fjölmiðlar velta sér í dag upp úr fréttum af næstu andstæðingum Rúmeníu í undankeppni HM karla í fótbolta; íslenska landsliðinu. Í fyrirsögnum er talað um „risahneyksli á Íslandi“. 30.8.2021 13:39
Patrik fer til Noregs eftir landsleikina Markvörðurinn Patrik Sigurður Gunnarsson hefur verið lánaður til Viking í Noregi frá enska úrvalsdeildarfélaginu Brentford til áramóta. 30.8.2021 11:55
Stjórn KSÍ tók Kolbein út úr hópnum vegna miskabótamálsins Brotthvarf Kolbeins Sigþórssonar úr íslenska landsliðshópnum í fótbolta var samkvæmt ákvörðun stjórnar KSÍ. Kolbeinn er leikmaðurinn sem greiddi Þórhildi Gyðu Arnarsdóttur miskabætur eftir að hafa brotið á henni haustið 2017, samkvæmt heimildum Vísis. Rúnar Már Sigurjónsson dró sig sjálfur úr hópnum og eru tvær ástæður gefnar fyrir því í yfirlýsingu KSÍ. 30.8.2021 10:52
Lið Stjörnunnar fullskipað en ekki með NBA-leikmanni Körfuknattleiksdeild Stjörnunnar hefur tryggt sér krafta Bandaríkjamannsins Roberts Turner sem mun leika með liðinu í vetur. Turner tekur við af Ægi Þór Steinarssyni sem leikstjórnandi Stjörnunnar en Ægir leikur á Spáni í vetur. 27.8.2021 16:00