Ómar stóðst stóru áskorunina fullkomlega og fékk samning til fimm ára Degi eftir að Ómar Ingi Magnússon tryggði sér markakóngstitilinn í þýska handboltanum tilkynnti félag hans, Magdeburg, að hann yrði áfram hjá félaginu til ársins 2026. 28.6.2021 12:53
Fékk að vita hjá pabba á leiðinni heim að hún hefði getað hitt ástina í lífi sínu „Ég var mjög leið. Ég missti af honum,“ sagði íþróttafréttakonan Kristjana Arnarsdóttir þegar hún rifjaði upp glatað tækifæri til að hitta þáverandi ástina í lífi sínu, á Laugardalsvelli á sextán ára afmælinu sínu. 28.6.2021 12:01
Síðasti séns Modric á móti Spánverjum sem hrukku í gang en Shaqiri þarf að fella heimsmeistarana Það er löngu sannað að lið sem vinna stórmót í fótbolta fara ekki endilega af stað með látum á mótinu. Króatía og Spánn fóru rólega af stað á EM en komu sér svo af öryggi í úrslitakeppnina þegar allt var undir. 28.6.2021 11:00
Sjáðu martraðarmínútu Hollands: „Töpuðum leiknum út af því sem ég gerði“ „Þetta atvik breytti leiknum og ég ber ábyrgðina,“ sagði Matthijs de Ligt, varnarmaður Hollands, um það þegar hann fékk rautt spjald í 2-0 tapinu gegn Tékklandi á EM í gær. Atvikið má nú sjá á Vísi. 28.6.2021 10:01
Sjáðu mörkin úr dramatískum Kópavogsslag, varamennina redda Fylki stigi og tíu KA-menn ná jafntefli við FH Breiðablik vann dramatískan sigur á HK í Kópavogsslagnum, Fylkir tryggði sér jafntefli við Val með afar snotru marki Arnórs Borg Guðjohnsen og tíu KA-menn skoruðu jöfnunarmark gegn FH í Krikanum. Mörkin öll má nú sjá á Vísi. 28.6.2021 09:01
Heyrt margt verra frá Mourinho: „Augljóslega með mig á heilanum“ Luke Shaw segir að hann og liðsfélagar hans í enska landsliðinu eigi bágt með að skilja hversu áfjáður José Mourinho sé í að setja út á Shaw. 28.6.2021 08:00
„Það sem hann gerði í dag var óraunverulegt“ Milwaukee Bucks náðu í nótt 2-1 forystu í úrslitaeinvígi austurdeildar NBA-deildarinnar með 113-102 sigri gegn Atlanta Hawks. Khris Middleton átti risastóran þátt í sigrinum og skoraði fleiri stig en Atlanta í fjórða leikhlutanum. 28.6.2021 07:31
Gaupi á Norðurálsmótinu: Draugasögur Heimis, hressir fótboltastrákar og hrifinn landsliðsfyrirliði „Hérna hafa allar stærstu stjörnur Íslands byrjað í boltanum,“ segir Guðjón Guðmundsson, Gaupi, um Norðurálsmótið á Akranesi. Gaupi var að sjálfsögðu á staðnum og fylgdist með krökkum frá 34 félögum njóta sín í botn á mótinu. 26.6.2021 10:30
NBA dagsins: Skildi vonbrigðin eftir á flugvellinum og stimplaði Clippers inn Skömmu eftir að flugvél LA Clippers lenti í Los Angeles, eftir annað tap gegn Phoenix Suns, hringdi þjálfarinn Ty Lue í Paul George og sagði honum að hætta strax að hugsa um vítaskotin tvö sem fóru í súginn hjá honum og einbeita sér að leik númer þrjú. Þar fór George á kostum. 25.6.2021 15:00
England sleppur við hin fimm bestu liðin Ef England kemst í úrslitaleik EM mun liðið gera það án þess að þurfa að mæta neinu af hinum fimm bestu liðum Evrópu, samkvæmt styrkleikalista FIFA. 25.6.2021 13:00