„Þarf að skoða vídjó og hugsa minn gang“ „Við reynum að hætta að hugsa um þennan leik og einbeitum okkur að Alsír,“ sagði Elvar Örn Jónsson eftir tapið gegn Portúgal í fyrsta leik á HM í handbolta í kvöld. 14.1.2021 21:52
Of dýrt að gera svo mörg mistök í svona stórleik „Við gerðum fimmtán tæknifeila og þetta er bara tveggja marka tap. Þetta er nú ekki meira en það,“ sagði Gísli Þorgeir Kristjánsson sem komst einna best frá sínu í sóknarleik Íslands í kvöld, í 25-23 tapinu gegn Portúgal á HM í handbolta. 14.1.2021 21:34
NBA dagsins: Durant þögull um Harden eftir fámennan sigurleik Löngum og tíðindamiklum degi hjá öllum sem að Brooklyn Nets koma lauk með 116-109 sigri á New York Knicks í Madison Square Garden í nótt. Tilþrif úr leiknum og fleiri leikjum má sjá í NBA dagsins hér á Vísi. 14.1.2021 14:30
Fá góðan liðsstyrk fyrir slaginn við Ísland í kvöld og horfa til verðlaunasætis Portúgalar hafa styrkst fyrir átökin við Íslendinga í kvöld á HM í Egyptalandi því þeir munu geta teflt fram hinum reynslumikla Gilberto Duarte, fyrrverandi leikmanni Barcelona. 14.1.2021 13:11
„Ætlum að svara fyrir okkur eftir það sem þeir gerðu við Lexa“ „Liðin eru búin að læra mikið hvort á annað. Þetta er bara skák, taktík ofan á taktík. Við þekkjum Portúgalana vel núna,“ segir hinn 23 ára gamli Elvar Örn Jónsson fyrir fyrsta leik Íslands á HM í handbolta. 14.1.2021 10:01
Tíu smituðust en nýliðarnir samt mættir á HM Nýliðar Grænhöfðaeyja ætla ekki að láta kórónuveirusmit sex leikmanna, sem og smit þjálfara og fleiri starfsmanna liðsins, koma í veg fyrir að það spili á sínu fyrsta heimsmeistaramóti í handbolta, í Egyptalandi. 14.1.2021 09:11
Heimir reifst við mótherja og hundsaði dómarana Heimi Hallgrímssyni, fyrrverandi landsliðsþjálfara í fótbolta, var heitt í hamsi eftir að hafa horft upp á sína menn í Al Arabi missa leik sinn við Al Gharafa niður í 1-1 jafntefli á sjöundu mínútu uppbótartíma í gær. 14.1.2021 08:54
Doncic fór á kostum en veiran veldur vandræðum Í skugga stórfréttarinnar um komu James Harden til Brooklyn Nets var spilað í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Dallas Mavericks unnu fjórða leik sinn í röð og Slóveninn Luka Doncic var aðalmaðurinn, í 104-93 sigri á Charlotte Hornets. 14.1.2021 07:40
Harden fékk ósk sína uppfyllta og stjörnutríó verður til í Brooklyn Brooklyn Nets þykja orðnir meistarakandídatar í NBA-deildinni í körfubolta eftir að hafa tryggt sér þjónustu James Harden, verðmætasta leikmanns deildarinnar tímabilið 2017-18. 14.1.2021 07:15
Segir Gumma ekki skipta sér af hárgreiðslunni þegar menn nýti færin sín svona Ásgeir Örn Hallgrímsson segir að Bjarki Már Elísson fái nú eflaust bara að hafa hárið sitt eins og hann kjósi þó að á árum áður hafi Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari stöku sinnum gert athugasemdir ef leikmenn voru uppteknir af útliti sínu. 13.1.2021 16:07