NBA dagsins: Durant gæddi sér á Nöggum og meistararnir léku sér Kevin Durant átti stærstan þátt í því að Brooklyn Nets unnu upp 18 stiga forskot Denver Nuggets og lönduðu sætum sigri, 122-116, í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Í NBA-pakka dagsins má sjá svipmyndir úr leiknum sem og öruggum sigri meistara LA Lakers á Houston Rockets og háspennuleik Philadelphia 76ers og Miami Heat. 13.1.2021 14:29
„Þetta verður persónulegra“ „Þessi stemning sem að hefur oft verið í liðinu kemur bara frá hjartanu okkar. Þetta kemur innan frá – að berjast fyrir land og þjóð, og ég hef engar áhyggjur af því. Við erum alltaf tilbúnir þegar við förum í landsliðstreyjuna. Við verðum stemmdir, það vantar ekki.“ 13.1.2021 13:01
Grænlendingar telja sig svikna: „Nú er þetta meira en hlægilegt“ Grænlendingar furða sig á því að þeim skuli enn vera haldið utan HM í handbolta í Egyptalandi, þrátt fyrir að Bandaríkin hafi þurft að hætta við þátttöku. 13.1.2021 11:30
„Hann kveikir í öllu“ Innkoma línumannsins Elliða Snæs Viðarssonar vakti athygli á Ásvöllum í hans fyrsta mótsleik fyrir íslenska landsliðið, í stórsigrinum gegn Portúgal í undankeppni EM. Elliði er í 20 manna landsliðshópnum sem mættur er á HM í Egyptalandi þar sem Ísland hefur leik á morgun. 13.1.2021 11:01
Erlingur ætti að pakka í tösku Það gæti vel farið svo að Ísland muni eiga flesta þjálfara á HM í handbolta sem hefst í Egyptalandi í kvöld. Erlingur Richardsson gæti orðið sá fimmti sem þjálfari hollenska landsliðsins. 13.1.2021 10:00
99 dagar og veiran var vandamálið Í dag er sannkallaður gleðidagur fyrir íslenskt íþróttalíf þegar keppni í íþróttum hefst að nýju eftir lengsta bann við keppni í sögu þjóðarinnar. 13.1.2021 08:00
James með stæla og Harden búinn að gefast upp Los Angeles Lakers styrktu stöðu sína á toppi vesturdeildar NBA-deildarinnar í körfubolta þegar þeir rúlluðu yfir Houston Rockets, 117-100, í nótt. Algjör uppgjafartónn var í James Harden, stjörnuleikmanni Houston. 13.1.2021 07:31
NBA dagsins: Beal naut sín í „klikkuðum slag“ Bradley Beal stal senunni í NBA-deildinni í nótt með stórleik í öruggum sigri Washington Wizards á Phoenix Suns, 128-107. Flottustu NBA-tilþrifin frá því í nótt má sjá í meðfylgjandi klippu. 12.1.2021 14:30
„Hann er fyrirbæri, þessi gaur“ „Fyrir mér á hann að geta orðið einn sá allra besti,“ segir Einar Andri Einarsson um Elvar Örn Jónsson sem sérfræðingar Seinni bylgjunnar telja að verði mikilvægasti leikmaður Íslands á HM í Egyptalandi. 12.1.2021 12:51
Óska eftir bólusetningu fyrir íslenskt afreksíþróttafólk Íþrótta- og ólympíusamband Íslands hefur óskað eftir því við heilbrigðisyfirvöld að afreksfólk í íþróttum verði haft í huga við forgangsröðun vegna bólusetningar gegn COVID-19. 12.1.2021 11:30