Hetjan úr bikarúrslitaleiknum áfram hjá ÍBV Markvörðurinn Petar Jokanovic hefur skrifað undir nýjan samning til eins árs við handknattleiksdeild ÍBV. 30.6.2020 18:15
Eygló Ósk er hætt: „Tilfinningarnar hellast yfir mig“ Eygló Ósk Gústafsdóttir, íþróttamaður ársins 2015, hefur ákveðið að leggja keppnissundbolinn á hilluna eftir farsælan feril. Hún afrekaði meðal annars að synda til úrslita á Ólympíuleikum og vinna til verðlauna á Evrópumóti. 30.6.2020 16:37
Fótbrotið sem markar lok ferilsins: „Fórum báðir inn af fullum krafti og minn fótur gaf sig“ „Það er ekki líklegt að ég spili fótbolta í efstu deild aftur,“ segir Helgi Valur Daníelsson, leikmaður Fylkis í fótbolta og elsti útileikmaður Pepsi Max-deildarinnar, sem fjórfótbrotnaði í sigrinum á Gróttu í gær. 30.6.2020 13:03
Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - Fjölnir 3-1 | Blikar áfram með fullt hús stiga Breiðablik hefur farið afar vel af stað í Pepsi Max-deildinni undir stjórn Óskars Hrafns Þorvaldssonar og eru með fullt hús stiga eftir sigur á Fjölni, 3-1, í þriðju umferð í kvöld. Fjölnismenn eru áfram með eitt stig. 29.6.2020 22:06
Ekki sex ár síðan að ég skoraði en þetta var kærkomið „Þetta byrjar vel hjá okkur,“ sagði Gísli Eyjólfsson, miðjumaður Breiðabliks, sem átti mjög góðan leik í 3-1 sigri liðsins á Fjölni í Pepsi Max-deildinni í kvöld. 29.6.2020 21:45
Ásdís byrjar lokaárið af krafti: „Gjörsamlega búin á því“ „Þetta var annar góður dagur á skrifstofunni,“ segir Ásdís Hjálmsdóttir, Íslandsmethafi í spjótkasti, sem átti fjórða besta kastið í heiminum í ár þegar hún kastaði 62,66 metra á móti í Svíþjóð í gær. 29.6.2020 18:00
„Hrikaleg staða“ en ef að við spilum verður mótið að telja Þegar eitt lið þarf að bíða heima í sóttkví í tvær vikur á meðan að önnur geta æft og spilað samkvæmt áætlun, er þá ekki búið að gjaldfella Íslandsmótið í fótbolta 2020? Talsmenn liða sem orðið hafa fyrir barðinu á afleiðingum kórónuveirufaraldursins bera sig ágætlega þó að vandinn sé augljós. 29.6.2020 14:30
Lewandowski kjörinn bestur í Þýskalandi Robert Lewandowski hefur verið útnefndur leikmaður ársins í þýsku 1. deildinni í fótbolta en hann hefur átt magnað tímabil með meisturum Bayern München. 26.6.2020 18:00
Fylkir fær slóvenska landsliðskonu Fylkir hefur gengið frá félagaskiptum fyrir slóvensku landsliðskonuna Tjasa Tibaut sem kemur í Árbæinn eftir að hafa síðast verið á mála hjá félagi í ítölsku A-deildinni. 26.6.2020 17:00
Tumi vill vinna titla með vinum sínum í Val - „Gerist ekki betra en að fá Snorra sem þjálfara“ „Ég saknaði þess að vera í Val og spila fyrir uppeldisfélagið,“ segir Tumi Steinn Rúnarsson sem er orðinn leikmaður Vals á nýjan leik eftir að hafa leikið með Aftureldingu síðustu tvö handknattleikstímabil. 26.6.2020 15:30