Sjáðu meistarafögnuð Real og furðuvítið Zinedine Zidane og lærisveinar hans í Real Madrid fagna vel í kvöld eftir að hafa tryggt sér spænska meistaratitilinn. Real hefur nú orðið Spánarmeistari 34 sinnum, langoftast allra. 16.7.2020 22:14
Keflavík og Tindastóll skilja sig frá öðrum Keflavík og Tindastóll hafa byrjað leiktíðina vel í Lengjudeild kvenna í fótbolta og eru nú með fimm stiga forskot á næstu lið eftir fimm umferðir af átján. 16.7.2020 21:53
Hefur æft eins og skepna og hlakkar til að keppa: „Þetta er það sem við lifum fyrir“ Anton Sveinn McKee, eini Íslendingurinn sem tryggt hefur sér sæti á Ólympíuleikunum í Tókýó, verður meðal keppenda á Íslandsmeistaramótinu í sundi í Laugardalslaug um helgina. 16.7.2020 20:30
Eiður mun áfram starfa fyrir KSÍ Eiður Smári Guðjohnsen, nýráðinn þjálfari karlaliðs FH í fótbolta, verður áfram aðstoðarþjálfari U21-landsliðs karla líkt og undanfarin misseri. 16.7.2020 20:00
Allt gengur Ísak og Norrköping í hag Hinn 17 ára gamli Ísak Bergmann Jóhannesson hélt í kvöld áfram að láta til sín taka í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta en hann átt þátt í öðru af mörkum toppliðs Norrköping í 2-0 sigri á Örebro. 16.7.2020 19:52
„Hefði ekki stokkið til nema í þessu tilviki“ „Ég held að ég hefði ekki stokkið til nema í þessu tilviki,“ segir hinn 65 ára gamli Logi Ólafsson sem eftir 21 mánaðar hlé frá þjálfun er tekinn við FH. Þeir Eiður Smári Guðjohnsen munu stýra FH að minnsta kosti út tímabilið. 16.7.2020 19:30
Eiður segir margt hægt að bæta hjá FH: „Fannst þetta kjörið tækifæri fyrir mig“ „Þetta kom náttúrulega svolítið snöggt og óvænt upp á en ég er bara fullur tilhlökkunar,“ segir Eiður Smári Guðjohnsen en þeir Logi Ólafsson hafa verið ráðnir þjálfarar karlaliðs FH í fótbolta og munu stýra því út tímabilið. 16.7.2020 19:00
Eiður: Sá þetta ekki gerast í náinni framtíð „Ég hafði nú ekki endilega séð þetta gerast í náinni framtíð, að ég myndi fara að þjálfa á Íslandi,“ segir Eiður Smári Guðjohnsen, nýráðinn þjálfari karlaliðs FH í fótbolta. 16.7.2020 17:00
Fyrsta markið það fallegasta og Pablo bestur KR-ingar voru áberandi í uppgjöri Pepsi Max-stúkunnar í gærkvöld eftir 6. umferðina í Pepsi Max-deild karla. 15.7.2020 17:00
Jón Páll segir vegið að starfsheiðri sínum og telur uppsögnina ólögmæta Jón Páll Pálmason hefur sent frá sér yfirlýsingu í kjölfar þess að hann var rekinn frá Víkingi Ólafsvík í vikunni. Hann var ráðinn til að stýra karlaliði félagsins í fótbolta næstu þrjú árin en látinn fara eftir fimm deildarleiki. 15.7.2020 16:36