EM kvenna hefst á Old Trafford Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta á fína möguleika á að komast á Evrópumótið í Englandi sumarið 2021 eftir að hafa unnið fyrstu þrjá leiki sína í undankeppninni. Komist Ísland í lokakeppnina gæti liðið spilað á sumum af frægustu leikvöngum heims. 23.2.2020 23:00
Ziyech fer til Chelsea fyrir 5,5 milljarða Hakim Ziyech hefur skrifað undir samning til fimm ára við Chelsea og mun ganga í raðir félagsins í sumar frá Ajax. Kaupverðið nemur 33,3 milljónum punda, jafnvirði rúmlega 5,5 milljarða króna. 23.2.2020 22:35
Sportpakkinn: Fólk mun átta sig betur á styrkleikum Rúmeníu Freyr Alexandersson, aðstoðarlandsliðsþjálfari karla í fótbolta, gefur ekki mikið fyrir umræðu um að það að vinna landslið Rúmeníu í EM-umspilinu eigi að vera góður möguleiki og jafnvel "létt verk“. 23.2.2020 22:30
Atlético upp um þrjú sæti | Neymar sá rautt í sigri PSG Atlético Madrid lenti undir gegn Villarreal í kvöld en vann 3-1 sigur og flaug upp um þrjú sæti í spænsku 1. deildinni í fótbolta. 23.2.2020 21:54
Rut með Esbjerg í 8-liða úrslit Meistaradeildar | Súrrealískt, segir þjálfarinn „Það liggur við að ég segi að við höfum spilað yfir getu, því við höfum náð algjöru hámarki stiga sem við áttum möguleika á. Þetta er eiginlega súrrealískt,“ sagði þjálfari Rutar Jónsdóttur hjá danska handboltafélaginu Esbjerg, Jesper Jensen, í dag. 23.2.2020 20:30
Solskjær: Fernandes blanda af Scholes og Veron „Hann er svolítil blanda af Scholes og Veron,“ sagði Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, hæstánægður með hinn portúgalska Bruno Fernandes sem slegið hefur í gegn á fyrstu vikum sínum hjá enska félaginu. 23.2.2020 20:00
Fylkismenn með markaregn og Þór rúllaði yfir Grindavík Kvenna- og karlalið Fylkis unnu bæði örugga sigra í Lengjubikarnum í fótbolta í dag. Þórsarar og Vestfirðingar gerðu slíkt hið sama. 23.2.2020 18:09
Ragnar hvíldur og Alfreð lék lítið Ragnar Sigurðsson var ekki í leikmannahópi FC Köbenhavn þegar liðið lék gegn Silkeborg í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. 23.2.2020 17:57
Aron flaug með Barcelona beint í 8-liða úrslit Aron Pálmarsson var næstmarkahæstur hjá Barcelona þegar liðið tryggði sér sæti í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í handbolta í dag. 23.2.2020 17:48
FH-ingar unnu flesta Íslandsmeistaratitla | Piltamet og tvö mótsmet FH-ingar voru sigursælastir á Meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum sem lauk í Kaplakrika í dag. Ari Bragi Kárason fór heim með þrenn gullverðlaun af mótinu. 23.2.2020 17:22