Framkonur fengu bikar að láni til að stilla sér upp á sigurmynd Það er óhætt að segja að ýmislegt hafi breyst frá því að Fram mætti síðast liði frá Akureyri í bikarúrslitaleik kvenna í handbolta. Fram og KA/Þór mætast í Laugardalshöll á morgun. 6.3.2020 23:00
Ólafía í ágætum málum á fyrsta Symetra-móti ársins Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hóf í dag leik á móti í Flórída á Symetra-mótaröðinni. Hún lék fyrsta hringinn á 72 höggum eða pari vallarins. 6.3.2020 22:20
Martin sló met Jóns Arnórs í sárgrætilegu tapi Martin Hermannsson og félagar í Alba Berlín fengu þriggja stiga körfu í andlitið fjórum sekúndum fyrir leikslok og töpuðu 73-72 gegn Baskonia á Spáni í kvöld í EuroLeague. Martin setti engu að síður íslenskt met í leiknum. 6.3.2020 22:05
Vestri og Þróttur unnu úrvalsdeildarnýliðana | Björn með tvö fyrir FH Vestri og Þróttur R., sem leika í 1. deild í sumar, unnu úrvalsdeildarlið í Lengjubikar karla í fótbolta í kvöld. 6.3.2020 21:19
Elías með níu mörk frá áramótum | Samúel spilaði í Þýskalandi Elías Már Ómarsson hefur verið sjóðheitur með Excelsior á árinu 2020 en hann skoraði tvö mörk í kvöld í 3-0 sigri á MVV, í hollensku B-deildinni í fótbolta. 6.3.2020 20:57
Sjáðu Körfuboltakvöld kvenna | Talsvert þyngri vetur án hennar Kjartan Atli Kjartansson fór yfir 24. umferð Dominos-deildar kvenna í körfubolta með þeim Pálínu Maríu Gunnlaugsdóttur og Teiti Örlygssyni í Körfuboltakvöldi í kvöld. Þáttinn í heild má sjá hér á Vísi. 6.3.2020 20:23
Fjölmennu Nettómóti frestað vegna neyðarstigs Mótsnefnd Nettómótsins í körfubolta, þar sem yfir 1.300 börn og unglingar voru skráð til keppni, ákvað nú síðdegis að fresta mótinu um ótilgreindan tíma vegna kórónuveirunnar. 6.3.2020 19:42
Elvar með 27 stig og einum sigri frá titli Elvar Már Friðriksson og félagar í Borås eru einum sigri frá því að tryggja sér sænska deildarmeistaratitilinn í körfubolta eftir að þeir unnu 102-93 sigur á Jämtland í kvöld. 6.3.2020 19:36
Sportpakkinn: Kórónuveiran setur allt úr skorðum á Arnold Classic Hjalti Úrsus Árnason er mættur á Arnold Classic í Ohio og hann segir ljóst að kórónuveiran muni hafa mikil áhrif á þessa stóru íþróttahátíð. Hann fór yfir stöðuna í Sportpakkanum á Stöð 2 í kvöld. 6.3.2020 19:15
Hitapulsan blásin upp | „Sé enga ástæðu til að þetta klikki“ Í dag var hitadúkur lagður yfir Laugardalsvöll til að losa um frost og kulda á grasi vallarins, sem verið hefur snævi þakinn síðustu vikur. Það er mikilvægur liður í að gera völlinn kláran fyrir stórleik Íslands og Rúmeníu 26. mars í umspili um sæti á EM karla. 6.3.2020 19:00