Dökkar samdráttartölur áfram í kortunum Hvergi er meiri samdráttur í Evrópu en á Íslandi, samkvæmt þjóðhagsreikningum Hagstofunnar. Hagfræðingur segir fyrirséð að tölurnar verði áfram dökkar. 30.11.2020 11:42
„Þetta hljómaði bara eins og hvert annað útkall“ Aðfaranótt mánudagsins 2. desember 2013 barst lögreglu tilkynning frá áhyggjufullum íbúa í Hraunbæ í Reykjavík. Íbúinn kvaðst reglulega verða fyrir ónæði vegna hávaða og tónlistar úr íbúðinni fyrir ofan en í þetta sinn var hljóðið í honum þyngra. Hann sagðist hafa heyrt skothvell koma úr íbúðinni og tók sérstaklega fram að hann hefði starfað á erlendri grundu sem friðargæsluliði og þekkti því skothljóð vel. Fjallað var um málið í sjónvarpsþættinum Ummerki á Stöð 2 í gærkvöld. 30.11.2020 05:30
Börnum verður ekki boðin bólusetning Heilbrigðisráðherra hefur staðfest og birt reglugerð um forgangsröðun við bólusetningu vegna kórónuveirunnar. Horft var til leiðbeininga Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, WHO, en sóttvarnalæknir mun hafa sveigjanleika til að gera breytingar. Börnum verður ekki boðin bólusetning. 28.11.2020 12:55
Áhrifa verkfallsins muni gæta næstu mánuði Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, segir vonbrigði að ekki hafi tekist að leysa kjaradeilu flugvirkja hjá stofnuninni með samningum. Hins vegar hafi verið nauðsynlegt að stöðva verkfall þeirra með lögum eins og dómsmálaráðherra ákvað að gera í dag. Áhrifa verkfallsins muni engu að síður gæta fram í febrúar. 27.11.2020 19:20
„Þetta lítur bara ekki vel út, því miður“ Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segist hafa miklar áhyggjur af stöðu kórónuveirufaraldursins hér á landi í dag. Hún reiknar með að helgin fari í að ákveða hvort einhverjar breytingar verði gerðar á sóttvarnaraðgerðum þann 2. desember. 27.11.2020 13:51
Setja lög á verkfall flugvirkja Landhelgisgæslunnar Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra hefur lagt fram frumvarp um lög til að binda enda á verkfall flugvirkja hjá Landhelgisgæslu Íslands. 27.11.2020 11:09
Aldrei eins margar tilkynningar um heimilisofbeldi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur aldrei fengið eins margar tilkynningar um heimilisofbeldi og í ár, en þær eru nú orðnar tæplega sjö hundruð talsins. 23.11.2020 19:00
Fundi slitið og engin þyrla til taks næstu tvo daga Fundi samninganefnda Flugvirkjafélags Íslands og ríkisins vegna kjaradeilu flugvirkja sem starfa hjá Landhelgisgæslunni lauk án niðurstöði á fimmta tímanum í dag. 23.11.2020 17:37
„Trúlega mikilvægasta skófar sem við höfum lyft af vettvangi” Gunnar Rúnar Sigurþórsson var dæmdur í sextán ára fangelsi fyrir morðið á Hannesi Þór Helgasyni árið 2010. Fjallað var um málið í Ummerkjum á Stöð 2. 23.11.2020 06:31
„Núna er bara kominn tími til að opna skólana“ Glugginn er núna – opnum skólana, segir móðir framhaldsskólanema sem hefur áhyggjur af langtímaáhrifum af lokun þeirra. Nýnemar segjast sorgmæddir yfir að missa af fyrsta árinu sínu, sem hafi átt að vera besta árið. Menntamálaráðherra fullyrðir að unnið sé að úrbótum. 20.11.2020 19:41