Rannsóknarnefnd mun skoða aðstæður barna á einkaheimilum Ríkisstjórnin samþykkti í morgun frumvarp um skipan rannsóknarnefndar sem mun kanna aðstæður barna sem voru vistuð á einkaheimilum fyrir tilstuðlan stjórnvalda. Forsætisráðherra segir standa til að leggja fram frumvarp um sanngirnisbætur í haust. 2.6.2026 11:37
Skortur á aðstoð, mótmæli og höggstaður á ríkisstjórn Lögmaður manns sem lést í fangelsinu á Hólmsheiði um helgina kallar eftir því rannsókn verði hafin á eftirliti og geðheilbrigðisþjónustu innan fangelsa. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum og ræðum við framkvæmdastjóra Geðhjálpar sem segir að fangar fái ekki aðstoð við hæfi. 1.6.2026 18:13
Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Samkvæmt upplýsingum fréttastofu hefur samkomulag náðst um að þingheimur greiði síðar í dag atkvæði um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB. Málið er nú til umræðu á aukaþingfundi. 28.5.2026 12:02
Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Í kvöldfréttum verður rætt við nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar í beinni útsendingu. Íbúar hafa safnað undirskriftum gegn meirihlutanum og við berum ónægjuna undir hann. Þá fylgjumst við einnig með á síðasta fundi fráfarandi borgarstjórnar og heyrum í Heiðu Björgu sem vonar að umræðan um borgarstjóra taki breytingum. Henni hafa borist morðhótanir á kjörtímabilinu. 26.5.2026 18:10
Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Forseti Alþingis segir sátt virðast um það meðal þingflokksformanna að ljúka umræðu um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB á morgun. Útlit er því fyrir að atkvæðagreiðslan fari fram þann 29. ágúst. 26.5.2026 12:01
Dramatík í Hafnarfirði Mikið hefur gengið á í pólitíkinni í Hafnarfirði í dag og oddviti Framsóknar sem var með pálmann í höndunum eftir kosningar er í snúinni stöðu. Oddvitar annarra flokka vísa í trúnaðarbrot og taka fyrir samstarf með Framsókn. Við förum yfir málið í kvöldfréttum og fylgjumst með þegar borgarstjórnarhópur Sjálfstæðisflokksins fundaði í dag. 21.5.2026 18:19
Sjálfstæðisflokkurinn enn á flugi Fylgi Sjálfstæðisflokksins á landsvísu er áfram á uppleið samkvæmt nýrri könnun Maskínu og fer úr átján prósentum í tæp tuttugu. Fylgi Sjálfstæðisflokksins hefur frá áramótum aukist um ríflega sex prósentustig. 20.5.2026 18:51
Maðurinn sem var beittur rafbyssu fluttur með sjúkraflugi til Noregs Lögmaður manns á fimmtugsaldri sem var beittur rafbyssu eftir að hafa hellt yfir sig eldfimum vökva segir lögreglu hafa stórskaðað umbjóðanda sinn og gengið of harkalega fram. Maðurinn var fluttur til Noregs með sjúkraflugi og er með brunasár á um helmingi líkamans. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum og rætt við lögmanninn. 20.5.2026 18:07
Nýjustu vendingar, sviðin píla á vettvangi og kaldar móttökur Oddvitar stjórnmálaflokka í sveitarfélögum um land allt ræða nú saman um myndun meirihluta. Við förum yfir nýjar og áhugaverðar vendingar í kvöldfréttum. 19.5.2026 18:08
Hildur í beinni um þreifingar dagsins Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og ótvíræður sigurvegari kosninganna í borginni, fundaði í dag með oddvitum allra flokka sem náðu inn manni í borgarstjórn. Við ræðum við Hildi í beinni í kvöldfréttum og heyrum allt um fundarhöld dagsins. Þá mætir stjórnmálafræðingurinn Gunnar Sigurðarson í myndver og fer yfir kostina sem eru í stöðunni og bláu bylgjuna sem reið yfir landið á laugardag. 18.5.2026 18:07