Kaupsamningar nærri helmingi fleiri en í fyrra Sögulegt ár á fasteignamarkaði vegna Grindavíkuráhrifa er að baki að sögn fasteignasala og kaupsamningar voru nærri helmingi fleiri en í fyrra. Hann spáir allt að tíu prósenta hækkun á fasteignaverði á næsta ári. 30.12.2024 12:21
Vonskuveður og þau sem eru á síðasta snúningi Varað er við ferðalögum víða um land í kvöld og á morgun vegna veðurs og appelsínugular viðvaranir hafa verið gefnar út. Við förum yfir heldur leiðinlega veðurspá í sjónvarpsfréttum Stöðvar 2 klukkan tólf. 24.12.2024 11:47
Áherslur nýrrar ríkisstjórnar, fordæmalausar aðgerðir og minningarathöfn Prófessor í stjórnmálafræði segir líklegt að helstu áherslumál nýrrar ríkisstjórnar verði tiltekt í ríkisfjármálum og staða þeirra sem höllustum fæti standa. Mönnun í einstaka ráðherrastóla skipti minna máli. Ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins verður kynnt á morgun og við rýnum í stöðuna í kvöldfréttum Stöðvar 2. 20.12.2024 18:02
Skorað á Sjálfstæðiskonur í formannsframboð Ríkisstjórnin fundaði í síðasta sinn í morgun. Ráðherrar eru þegar farnir að tæma skrifstofur sínar og þingstörf í stjórnarandstöðu eru fram undan. Guðrún Hafsteinsdóttir hefur íhugað framboð til formanns Sjálfstæðisflokksins og Áslaug Arna segir skorað á sig. 20.12.2024 12:25
Valkyrjur ná saman, yfirfullar flugvélar og mistök ársins Formenn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins hafa náð saman um myndun ríkisstjórnar og munu kynna stjórnarsáttmála um helgina. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 heyrum við í Valkyrjunum svokölluðu sem tilkynntu þetta á blaðamannafundi á sjötta tímanum. 19.12.2024 18:23
Valdníðsla, rafbyssur og vitringar Núgildandi lög um hvalveiðar eru löngu úrelt að mati lagaprófessors og fyrrum ráðgjafa stjórnvalda í hvalveiðum. Stjórnarmaður í Dýraverndarsamtökum Íslands sakar starfandi matvælaráðherra um valdníðslu með því að veita í raun ótímabundið leyfi til hvalveiða. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 og einnig rætt við bæjarstjóra Akraneskaupstaðar í beinni. 18.12.2024 18:05
„Þetta heitir á góðri íslensku spilling“ Útgáfa hvalveiðileyfis sem endurnýjast sífellt og sjálfkrafa er fráleit stjórnsýsla hjá ráðherra í starfsstjórn segir lögmaður Náttúruverndarsamtaka Íslands. Málið sé ekkert annað en spilling og hún bindur vonir við að ný ríkisstjórn grípi í taumana. 18.12.2024 11:51
Hvalveiðileyfið endurnýjast út í eitt Fimm ára veiðileyfi Hvals hf. endurnýjast sjálfkrafa árlega og getur því að óbreyttu verið í gildi í áraraðir. Sambærilegt ákvæði um endurnýjun hefur ekki verið í fyrri leyfisveitingum Hvals samkvæmt upplýsingum frá matvælaráðuneytinu. 17.12.2024 18:26
Hvalveiðileyfið sem endurnýjast út í eitt og stund með átrúnaðargoðum Fimm ára veiðileyfi Hvals hf. endurnýjast árlega og er því að óbreyttu í raun ótímabundið. Sambærilegt ákvæði um endurnýjun hefur ekki verið í fyrri leyfisveitingum Hvals samkvæmt upplýsingum frá matvælaráðuneytinu. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 17.12.2024 18:01
Erfið jól, vertíð og heit ást á sauðkindinni Félagsráðgjafi með tuttugu ára reynslu af hjálparstarfi dáist að seiglu og útsjónarsemi sem fátækt fólk þarf að sýna um hver mánaðarmót til að lifa af. Jólin reynast þessum hópi oft erfið og aðstoðar Hjálpastarf kirkjunnar hátt í fimm þúsund manns sérstaklega í desember. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 16.12.2024 18:01