Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sunna Sæmundsdóttir skrifar 26. apríl 2026 21:18 Halla Hrund Logadóttir, þingmaður Framsóknarflokksins. vísir/vilhelm Skólar á Suðurnesjum eru vanfjármagnaðir þar sem ekki er tekið tillit til þess hversu hátt hlutfall nemenda er með erlendan bakgrunn, segir þingmaður Framsóknar. Verði ekki ráðist í endurskoðun á úthlutun til skólanna skapist stór og mikil vandamál síðar meir. Rannsóknir sýni að líðan barna á svæðinu fari versnandi þegar líður á skólagönguna. „
Raunfjármagn til grunnskóla er lægra á Suðrunesjum en annars staðar á landinu þó að þörfin sé meiri og það skýrist af því að það er mun meiri fjölbreytileiki í grunnskólum á Suðurnesjum. Þar er sérstaklega hátt hlutfall barna af erlendum uppruna, sem er heilt yfir í kringum 28 prósent en hærra ef maður horfir á einstaka skóla,“ segir Halla Hrund Logadóttir, þingmaður Framsóknar sem hefur vakið athygli á málinu á Alþingi undanfarið. Hún bendir á að hlutfall barna með erlendan bakgrunn sé um sjötíu prósent í Háaleitisskóla á Ásbrú og fimmtíu prósent í Myllubakkaskóla í Reykjanesbæ. Þessu fylgi meiri þjónustuþörf. „Og það eru þessir þættir sem úthlutunarmódel jöfnunarsjóðsins, sem er að úthluta til grunnskólanna, nær ekki utan um. Úthlutunarmódelið horfir á þætti eins og fjölda nemenda, staðsetningu skóla og annað en það eru þessir þjónustuþættir sem vega sérstaklega þungt á Suðurnesjum, fjármögnunarlíkanir nær ekki utan um það,“ segir Halla. Tækifæri innan skólanna Innan grunnskólanna sé tækifæri til þess að skapa samheldni í samfélaginu. „Okkur er tamt að tala um að við viljum ekki sjá hópamyndun á milli þeirra sem hafa flutt hingað til lands og þeirra sem hafa búið hér eða fæðst hér. Það eru stærstu tækifærin í grunnskólanum til þess að jafna stöðuna og jafna tækifærin, að allir fái öfluga menntun,“ segir Halla. Halla Hrund bendir á að hlutfall barna með erlendan bakgrunn sé um sjötíu prósent í Háaleitisskóla á Ásbrú.vísir/Vilhelm „Um leið og við erum að spara hér erum við í raun og vera að kasta krónunni fyrir aurinn. Af því að það er þá bara seinna sem félagslegar áskoranir og vandamál kvikna og við sjáum það strax á íslensku æslulýðsrannsókninni að þó að börn byrji vel í grunnskólum á Suðurnesjum versnar líðan hraðar sem birtist til dæmis séstaklega hjá ungum stúlkum í tíunda bekk.“ Hún telur mikilvægt að taka á málinu í fjármálaáætlun sem nú er til umfjöllunar á Alþingi. „Og ég veit að ráðherra barnamála hefur lagt mikla áherslu á að jafna tækifæri barna óháð efnahag, óháð bakgrunni, og það eru tækifæri núna til þess að breyta þessu.“
Skóla- og menntamál Reykjanesbær Alþingi Framsóknarflokkurinn Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Fleiri fréttir Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Sjá meira