Fréttir
263 264 265 266 267 268 269 270 271 … 334 ›
Gengu af fundi Fulltrúar flugumferðarstjóra gengu af fundi með fulltrúum Flugstoða á níunda tímanum í gærkvöldi án niðurstöðu. Efnislegt samkomulag hafði náðst um lífeyrismál, sem eru helsti ásteytingarsteinninn, en formsatriði kom í veg fyrir að skrifað væri undir samkomulagið. Innlent 3.1.2007 06:50
Margmenni við útförina Útför Geralds Ford, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, var haldin Washington í dag en hann andaðist á öðrum degi jóla, 93 ára að aldri. Erlent 2.1.2007 18:28
Flugskólar lamaðir Fulltrúar flugumferðarstjóra og Flugstoða settust til fundar nú síðdegis til að freista þess að ná lendingu í deilu sinni. Starfsemi flugskóla Reykjavíkur hefur nánast legið niðri í dag vegna skorts á flugumferðarstjórum. Innlent 2.1.2007 18:54
Bæði vilja í forsætisráðherrastólinn Það verður ekki heiglum hent að mynda félagshyggjustjórn eftir kosningar í vor ef marka má orðaskak formanna Samfylkingar og Vinstri grænna í Kryddsíldinni á gamlársdag. Ný staða gæti komið upp í íslenskum stjórnmálum eftir kosningar, segir stjórnmálafræðingur, ef sá flokkur sem lengst er til vinstri fengi stól utanríkisráðherra Innlent 2.1.2007 18:04
Aftökunni var næstum frestað Litlu munaði að aftökunni á Saddam Hussein yrði frestað vegna framkomu böðlanna í hans garð og hafa írösk stjórnvöld fyrirskipað rannsókn á málinu. Óttast er að átök trúarhópa muni magnast vegna þessa en aldrei hafa jafnmargir borgarar látið lífið vegna átaka í Írak og í síðasta mánuði. Erlent 2.1.2007 18:26
Misvísandi upplýsingar frá þorpshöfðingja Enn er allt á huldu með örlög um hundrað farþega og áhafnar um borð í farþegaflugvél sem hvarf á leið sinni frá Jövu til Súlavesíu-eyja í gærmorgun. Í morgun var sagt að flakið og 12 eftirlifendur væru fundnir en svo var ekki. Rangar upplýsingar frá þorpshöfðinga á Súlavesíu-eyju hafi ratað í fjölmiðla. Erlent 2.1.2007 18:38
Læknar meta aðstæður vistmanna Læknar og sérfræðingar hafa verið fengnir til að skoða aðstæður vistmanna í Byrginu. Reykjavíkurborg, eins og ríkið, bíður niðurstöðu Ríkisendurskoðunar um fjármál Byrgisins áður en ákvörðun verður tekin um frekari styrki. Innlent 2.1.2007 18:00
Air Asia segir stórfréttir í vændum Asíska lággjaldaflugfélagið Air Asia segist ætla að færa stórfréttir á föstudag. Búist er við að flugfélagið muni tilkynna um samstarf með bresku félögunum Easyjet og Virgin Group. Viðskipti erlent 2.1.2007 14:10
ICEX-15 hækkaði um 15,8 prósent í fyrra ICEX-15 hlutabréfavísitala Kauphallar Íslands hækkaði um 15,8 prósent á síðasta ári. Til samanburðar nam árleg hækkun vísitölunnar 56-65 prósentum á árunum 2003-2005, að sögn greiningardeildar Glitnis, sem spáði 15-25 prósenta hækkun á síðasta ári. Viðskipti innlent 2.1.2007 12:11
Fimm ára stúlka bitin til bana Fimm ára stúlka var í gær bitin til bana af pit bull terrier hundi í Englandi. Amma hennar, sem var með hana í pössun, meiddist líka mikið á höndum þegar hún var að reyna að forða stúlkunni frá hundinum. Hundurinn var í eigu frænda stúlkunnar og bjó í sama húsi og amman. Erlent 2.1.2007 11:56
Flakið ekki enn fundið Yfirvöld á Indónesíu upplýstu fyrir stundu að flak farþegaflugvélar sem hrapaði á leið sinni frá Jövu til Súmötru í gær hefði ekki fundist líkt og haldið hefði verið fram. Fregnir bárust af því í morgun að vélin hefði fundist í fjallgarði á vestari hluta Súlavesíu-eyju. Erlent 2.1.2007 11:46
Enginn lést í pílagrímsferðum Pílagrímsferðum til Mekka er nú lokið án þess að nokkur hafi látist. Í fyrra létust 362 pílagrímar í troðningi og árið 2004 létust 250 manns en öll öryggisgæsla var hert til muna þetta árið og þá sérstaklega vegna staðfestingar á dauðdómi yfir Saddam Hússein og hugsanlegra árása al-Kaída. Erlent 2.1.2007 11:22
Hersveitir Eþíópíu verða í Sómalíu um sinn Forsætisráðherra Sómalíu, Ali Mohamed Gedi, sagði í dag að eþíópískar hersveitir myndu þurfa að vera í landinu í þó nokkra mánuði í viðbót. Stuttu áður hafði forsætisráðherra Eþíópíu sagst vonast til þess að geta dregið herlið sitt frá Sómalíu innan fárra vikna. Erlent 2.1.2007 11:04
Í gæsluvarðhaldi til 1. maí Maður sem grunaður er um að hafa myrt fimm vændiskonur í nágrenni Ipswich í Englandi í desember mánuði á síðastliðnu ári hefur verið hnepptur í gæsluvarðhald til 1. maí næstkomandi. Erlent 2.1.2007 10:47
Mótmæltu komu ársins 2007 Hópur Frakka ákvað að taka á móti nýja árinu með hinum hefbundna franska hætti - með mótmælum. Hópurinn mótmælti komu ársins 2007 og bar meðal annars mótmælaspjöld sem á stóð „Nei við 2007“ og „Nútíminn er betri“ á göngu sinni í gegnum miðborg Nantes á gamlárskvöld. Erlent 2.1.2007 10:20
Fljúgandi furðuhlutur sást í Bandaríkjunum Hópur flugvallarstarfsmanna og flugmanna sem vinna á O'Hare flugvellinum í Chicago í Bandaríkjunum sögðu frá því nýverið að þeir hafi séð fljúgandi furðuhlut sveima yfir flugvellinum þann 7. nóvember síðastliðinn. Erlent 2.1.2007 09:49
Ætla að halda kjarnorkuáæltun áfram Forseti Írans, Mahmoud Ahmadinejad, sagði í ræðu í morgun að Íran myndi halda starfsemi við kjarnorkuáætlun sína áfram þrátt fyrir refsiaðgerðir Sameinuðu þjóðanna. Ahmadinejad sagði refsiaðgerðirnar ekki hafa neitt gildi í augum Írana. Erlent 2.1.2007 07:48
Olíuverð undir 61 dal Heimsmarkaðsverð á hráolíu fór undir 61 dal á tunnu á helstu mörkuðum eftir að Saddam Hussein, fyrrum forseti Íraks, var tekinn af lífi. Þá hefur gott veðurfar í Bandaríkjunum hjálpað til við að halda verðinu niðri. Viðskipti erlent 2.1.2007 09:26
Írakar rannsaka myndbönd af Saddam Íraska ríkisstjórnin ætlar sér að rannsaka það hvernig verðir komust með myndavélasíma inn í aftökuherbergi Saddams Hússeins. Myndband hefur komist í umferð á netinu af aftöku hans þar sem heyra má verðina hrópa móðganir að Saddam en á myndbandinu sem íraska ríkisstjórnin sendi frá sér var ekkert hljóð. Erlent 2.1.2007 09:22
Rannsókn hreinsar stjórnendur Apple Bandaríski tölvurisinn Apple skilaði ársuppgjöri sínu á föstudag í síðustu viku, sem var síðasti dagur fyrirtækisins til að gera slíkt. Uppgjörið tafðist vegna rannsóknar bandaríska fjármálaeftirlitsins á kaupréttarsamningum stjórnenda fyrirtækisins sem meðal annars voru veittir Steve Jobs, forstjóra fyrirtækisins. Rannsóknin hreinsar fyrirtækið og stjórnendur þess af misgjörðum. Viðskipti erlent 2.1.2007 09:18
Mætir fyrir rétt í Ipswich Maðurinn, sem var handtekinn fyrir morðið á fimm vændiskonum í Bretlandi þann 19. desember á nýliðnu ári, mun koma fyrir rétt í dag. Erlent 2.1.2007 07:46
Bush fjölgar hermönnum í Írak George W. Bush, Bandaríkjaforseti, ætlar sér að kynna nýja áætlun fyrir Írak á næstu dögum. Helsta stefnubreytingin verður að fjölga bandarískum hermönnum í stað þess að leggja áherslu á að þjálfa íraska hermenn. Fréttavefur BBC skýrði frá þessu í morgun. Erlent 2.1.2007 09:03
Flak flugvélar fundið Björgunarmenn í Indónesíu fundu í morgun flakið af flugvél sem hafði farist í óveðri í gær. Flugvélin var á leið frá Jövu til Súlavesí. Embættismenn skýrðu frá að 90 væru taldir af og að 12 manns hefðu komist lífs af. Erlent 2.1.2007 07:40
Vekjaraklukka vakti nágranna Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út að Álfaborgum í Grafarvogi í gær þar sem maður hringdi í neyðarlínuna út af reykskynjara í íbúð nágrannans, - eða svo hélt hann. Verkefnið var á endanum ekki flóknara en að slökkva á vekjaraklukku sem granninn hafði stillt áður en hann fór að heiman. Innlent 2.1.2007 07:38
Synt í ísköldu Atlantshafinu Hundruð manns í Coney Island í Bandaríkjunum fögnuðu nýja árinu með því stinga sér til sunds í ísköldu Atlantshafinu í gær. Sérstakur sjósundsklúbbur hefur verið starfræktur þar í bæ síðan 1903 og hefur staðið fyrir nýárssundi síðan 1920. Skipuleggjendur atburðarins sögðu að allt að 300 manns hefðu tekið þátt í sundinu þetta árið og að jafnvel enn fleiri hefðu komið að fylgjast með. Erlent 2.1.2007 07:34
Logaði í rúmfötum Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu sendi fjölmennt lið af stað eftir að tilkynning barst um mikinn reyk frá húsi við Njálsgötu á fjórða tímanum í nótt. Þegar það kom á vettvang rauk úr brennandi rúmfötum fyrir utan húsið. Innlent 2.1.2007 07:32
Ríflegur barnastyrkur í Þýskalandi Þýskar konur, sem eignuðust börn í gær, voru þær fyrstu í landinu til þessa að njóta góðs af nýjum barnastyrkjum þýsku ríkisstjórnarinnar. Samkvæmt hinum nýju lögum mun það foreldri, sem er frá vinnu til þess að sjá um barn sitt, fá allt að tvo þriðju af fyrrum launum sínum í styrk frá ríkinu. Ekki mun þurfa að borga skatt af þessari upphæð og hún er líka óháð tekjum. Erlent 2.1.2007 07:29
Eldur í nýbyggingu Eldur kviknaði í byggingarefni við nýbyggingu í Vogum á Vatnsleysuströnd í gærkvöldi. Slökkviliði tókst að koma í veg fyrir að eldurinn breiddist út, en talsverður eldsmatur er á svæðinu, þar sem fleiri hús eru í byggingu. Slökkvistarf gekk vel og hlaust ekki mikið tjón af. Innlent 2.1.2007 07:24
Þurfa að kalla út flugumferðastjóra Landhelgisgæslan mun þurfa að láta ræsa út flugumferðarstjóra til að manna flugturninn í Reykjavík, ef senda þarf þyrlu í neyðarútkall. Ekki mun vera ætlast til að gæslan kalli út flugumferðarstjóra vegna æfingaflugs, þannig að það liggur niðri á meðan Flugstoðir og flugumferðarstjórar hafa ekki náð samkomulagi. Þá liggur allt einkaflug og kennsluflug á Reykjavíkurflugvelli niðri. Innlent 2.1.2007 07:21
Streyma til landa ESB Rétt þegar fagnaðarlátum vegna inngöngu Búlgaríu í Evrópusambandið var að ljúka í gær streymdu Búlgarir af stað að leita sér að vinnu í löndum Evrópusambandsins. Fólkið segir að litla sem enga vinnu sé að hafa í Búlgaríu og því verði það að yfirgefa heimahaga sína og gerast farandverkamenn. Erlent 2.1.2007 07:18