Fréttir
320 321 322 323 324 325 326 327 328 … 334 ›
ESB skoðar samkeppni á kreditkortamarkaði Samkeppnisstofnun Evrópusambandsins (ESB) hefur varað kreditkortafyrirtæki við því að þau ætli að beita sér fyrir aukinni samkeppni á kreditkortamarkaði. Viðskipti erlent 14.11.2006 09:28
Tap hjá Vodafone Group í Evrópu Farsímafélagið Vodafone Group, sem er ein stærsta farsímasamtæða í heimi, skilaði 5,1 milljarðs punda taprekstri á fyrri helmingi rekstrarársins, sem lauk í enda september. Þetta svarar til 664 milljarða íslenskra króna. Tapið er að mest tilkomið vegna vandræða í rekstri félagsins í Þýskalandi og á Ítalíu. Hagnaðurinn jókst á sama tíma um 31,5 prósent í Bandaríkjunum. Viðskipti erlent 14.11.2006 09:13
Skógar að stækka á ný Ný skýrsla heldur því fram að skógar séu aftur að sækja í sig veðrið. Skýrslan komst að því að aukning á skógum sé fyrir hendi í nærri öllum löndum þar sem einstaklingar hafa meira en 4.600 dollara, eða 318.000 krónur, í árstekjur hafi skógar stækkað. Erlent 13.11.2006 23:40
Minnismerki reist til heiðurs Martin Luthers King Jr. Mannréttindafrömuðir í Bandaríkjunum tóku í dag fyrstu skóflustungu að minnismerki um Martin Luther King Jr. Alls höfðu um 5.000 manns safnast saman og voru þau hvött af fyrrum aðstoðarmanni Martin Luther Kings Jr. til þess að hafa hugsjónir hans í heiðri um ókomna tíð. Erlent 13.11.2006 23:27
Bandarískir ráðamenn segja dómsyfirvöld ekki hafa lögsögu yfir Guantanamo fangelsinu Talsmenn ríkisstjórnar George W. Bush sögðu í dag að vísa yrði frá þeim málum sem fangar í Guantanamo hafa höfðað gegn bandarískum stjórnvöldum. Föngunum hefur flestum verið haldið þar án þess að þeir hafi verið ákærðir fyrir nokkuð. Erlent 13.11.2006 23:06
Ítalska ríkisstjórnin slakar á lögum um eiturlyf Ítalska ríkisstjórnin hækkaði í dag það magn af kannabisi sem löglegt er að vera með á sér án þess að vera handtekinn um helming. Samkvæmt nýju lögunum verður löglegt að vera með allt að 40 kannabisvindlinga á sér. Erlent 13.11.2006 22:30
Tony Blair hvetur til samvinnu í málefnum Mið-Austurlanda Í mikilvægri ræðu um utanríkismál sagði Tony Blair að mikilvægt væri að vinna með öllum löndum í Mið-Austurlöndum að friði og að það þýddi samstarf með Írönum og Sýrlandi. Talsmaður Blairs sagði hins vegar eftir ræðuna að þetta þýddi ekki að gefið yrði eftir í stefnu Bretlands varðandi þessi tvö ríki. Erlent 13.11.2006 22:13
Náttúrulegt verkjalyf sem er sterkara en morfín Vísindamenn hafa komist að því að mannslíkaminn framleiðir verkjalyf sem er talið töluvert sterkara en morfín. Vísindamennirnir fundu efnið, sem heitir opiorphin, í munnvatni. Erlent 13.11.2006 22:06
Utanríkisráðherra Georgíu líkir Rússum við nasista Utanríkisráðherra Georgíu, Giorgi Baramidze, bætti í dag olíu á eldinn í samskiptum þeirra við Rússa þegar hann bar meðferð Rússa á Georgíumönnum í Rússlandi við meðferð nasista á gyðingum á fjórða áratug tuttugustu aldarinnar. Erlent 13.11.2006 21:47
Óveður og flughált á Kjalarnesi Tilkynning var að berast frá Vegagerðinni rétt í þessu og segir hún að það sé óveður og flughált á Kjalarnesi. Eru vegfarendur því beðnir um að aka þar með fyllstu gát. Innlent 13.11.2006 21:20
Sægreifinn nær alþjóðlegri frægð Bandaríska dagblaðið New York Times fjallaði nýlega um Ísland á vefsíðu sinni. Greinin fjallaði um humarsúpuna sem er á boðstólum á veitingastaðnum Sægreifanum í Reykjavík og var henni lýst sem þeirri bestu sem blaðamaðurinn hafði bragðað. Innlent 13.11.2006 21:05
Líkur aukast á þátttöku SÞ í friðargæslu í Darfur Forsetinn í Súdan, Omar Hassan al-Bashir, hefur lagt fram tillögur sem útiloka ekki þáttöku friðargæsluliðs Sameinuðu þjóðanna (SÞ) í úrlausn mála í Darfur. Þetta fullyrti forseti Senegal, Abdoulaye Wade, í dag. Erlent 13.11.2006 20:56
Vitlaust veður á Skagaströnd Vitlaust veður er á Skagaströnd núna og er búist við skemmdum á skemmu þar í bæ. Einnig hafa stillasar fokið og bátar slitnað upp. Björgunarsveitarmenn eru að störfum á svæðinu og segja þeir að ekkert ferðaveður sé á þessum slóðum. Innlent 13.11.2006 20:15
Íranir virða hótanir um efnahagsþvinganir að vettugi Íranir ætla sér að halda áfram að auðga úran þrátt fyrir hugsanlegar refsiaðgerðir af hálfu alþjóðasamfélagsins. Þeir hafa heldur ekki enn veitt eftirlitsmönnum Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar (IAEA) leyfi til þess að grennslast fyrir í kjarnorkumálum þeirra. Erlent 13.11.2006 19:57
Búist við að sátt náist um tilvonandi forsætisráðherra Palestínu bráðlega Maðurinn sem Palestínumenn hafa sæst á að tilnefna sem forsætisráðherra landsins í kjölfar yfirlýsingar núverandi forsætisráðherra, Ismail Haniyeh, hefur sagt að enn hafi ekki verið talað við hann um að taka að sér embættið. Erlent 13.11.2006 19:42
Slæmt færi víða um land Á Vesturlandi er hálka og hálkublettir. Óveður er á Holtavörðuheiði, Kolgrafafirði og í Staðarsveit. Snjóþekja er í Ísafjarðardjúpi og á Steingrímsfjarðarheiði er þæfingur og stórhríð, hálka er á vegum í Strandasýslu. Innlent 13.11.2006 19:21
Slökkviliðsmenn hafa náð yfirhöndinni Slökkvilið Reykjavíkur sendi alla tiltæka slökkvibíla niður á Laugaveg 84 rúmlega hálfsjö í kvöld. Í húsnæðinu er verslun og íbúðarhús. Slökkviliðsmenn eru á þessari stundu komnir fyrir eldinn og byrjaðir að reykræsta húsið. Innlent 13.11.2006 19:16
Forseti danska þingsins fer fram á lögreglurannsókn Forseti danska þingsins hefur óskað eftir lögreglurannsókn vegna frétta danskra fjölmiðla um að kókaínleifar hafi fundist á þremur salernum danskra þingmanna í Kristjánsborgarhöll. Hann segir málið allt hið alvarlegasta. Erlent 13.11.2006 18:26
Samruni Nokia og Siemens heimilaður Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins (ESB) hefur heimilað samruna finnska farsímaframleiðandans Nokia og hins þýska Siemens. Fyrirtækin munu stofna nýtt fyrirtæki utan um framleiðslu á síma- og netkerfum, tækjabúnaði og öðrum netlausnum, sem mun heita Nokia Siemens Network og verður þriðja stærsta fyrirtæki á þessu sviði. Viðskipti erlent 13.11.2006 18:48
Eldsvoði á Laugavegi Slökkvilið Reykjavíkur hefur sent alla tiltæka slökkvibíla niður á Laugaveg 84 en tilkynning barst um eldsvoða þar rétt í þessu. Í húsnæðinu er verslun og íbúðarhús. Sem stendur er ekki vitað meira um ástandið. Innlent 13.11.2006 18:46
180 milljónir í verkefni í Malaví Þróunarsamvinnustofnun Íslands hefur ákveðið að leggja 180 milljónir króna til umfangsmikils vatns- og hreinlætisverkefnis í suðurhluta Malaví. Verkefnið er til fjögurra ára og unnið í samvinnu við þrjú ráðuneyti í Malaví og héraðsstjórnina á Monkey Bay-svæðinu - en þar verður verkið unnið. Innlent 13.11.2006 18:11
Kortanúmer birtast á kassastrimlum Kassastrimlar eru ekki mikilvægir pappírar í augum margra en í nokkrum verslunum á Íslandi er þó ráð að gæta þeirra eins og sjáaldurs augna sinna. Innlent 13.11.2006 18:32
Pfaff-Borgarljós verður Pfaff Fyrirtækið Pfaff-Borgarljós hefur skipt um nafn og mun frá deginum í dag starfa undir nafninu Pfaff. Pfaff var stofnað árið 1929 og er eitt af elstu fyrirtækjum landsins og hefur nú tekið upp sig upprunalega nafn. Pfaff tekur jafnframt upp nýtt merki og slagorðið „heimili gæðanna“. Viðskipti innlent 13.11.2006 18:31
Áfram vonskuveður víða um land Áfram er búist við stormi víða á landinu í kvöld og fram eftir nóttu. "Já veðurspáin er slæm. Það má búast við mikilli ofankomu á Norður og Austurlandi í kvöld og nótt samfara sterkum vindi eða 15-23 m/s" segir Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur á Veðurstofu NFS. Innlent 13.11.2006 18:30
Jóhannes í Bónus yfirheyrður vegna skattamála Jóhannes í Bónus var í dag yfirheyrður hjá efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra vegna rannsóknar á meintum skattalagabrotum. Ríkislögreglustjóri og efnahagsbrotadeildin hafa orðið sér til ævarandi skammar, segir Jóhannes Jónsson. Innlent 13.11.2006 18:25
Íslenskar ljósmæður láta til sín taka í Afganistan Áttunda nóvember síðastliðinn lauk tveggja vikna ljósmæðurnámskeiði sem íslenskar ljósmæður héldu en námskeiðið var haldið í Afganistan en um 40 konur sóttu námskeiðið. Innlent 13.11.2006 18:05
Heilbrigðisráðherra frestar ákvörðun um sólarhringsvaktir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja Launakostnaður við bakvaktir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) er nú um 15 milljónir króna en talið er að þær verði að lágmarki um 60 milljónir ef bakvaktir verða settar á allan sólarhringinn allan ársins hring. Heilbrigðisráðherra telur því rétt að bíða með ákvörðun um sólarhringsvakt á skurðstofu HSS. Innlent 13.11.2006 17:48
Bush vill beita efnahagsþvingunum gegn Írönum George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, sagði í dag að alþjóðasamfélagið þyrfti að beita Íran efnahagslegum þvingunum ef þeir héldu áfram að auðga úran gegn vilja þess. Erlent 13.11.2006 17:41
Gengi krónunnar lækkaði Gengi krónunnar veiktist um 2 prósent í dag og stóð vísitalan í 121,8 stigum við lokun markaða. Greiningardeild Kaupþings segir að svo virðist sem nokkur taugatitringur hafi verið til staðar á markaðnum í dag sem gæti verið hægt að rekja til áréttingu Fitch á lánshæfismati Íslands með neikvæðum horfum sem birt var fyrir helgi. Viðskipti innlent 13.11.2006 17:31
Íbúar við Höfðatorg mótmæla skipulagi Sól og skjól eru einkunnarorð fyrir háreista íbúðabyggð sem fyrirhugað er að rísi við Skúlatúnsreit við Höfða gangi nýtt deiliskipulag eftir. Þrír turnar, 14 til 19 hæða háir, munu hins vegar stuðla að skugga og sólarleysi fyrir lágreista nágrannabyggðina og íbúarnir mótmæla harðlega. Innlent 13.11.2006 17:20
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent