Viðskipti
43 44 45 46 47 48 49 50 51 … 223 ›
Seðlabankastjórinn heldur sæti sínu Breska fjármálaráðuneytið hefur framlengt ráðningu Mervyn Kings, seðlabankastjóra Englandsbanka, til næstu fimm ára. Ráðningartímabil hans rennur út í júní í sumar og hafa gagnrýnendur þrýst á að nýr maður taki við skútunni. Viðskipti erlent 30.1.2008 09:44
FBI rannsakar undirmálslánamarkaðinn Bandaríska alríkislögreglan (FBI) hefur nú til rannsóknar fjórtán þarlend fasteignalánafyrirtæki og banka í samvinnu við bandaríska fjármálaeftirlitið. Fyrirtækin tengjast öll undirmálslánakreppunni sem hrjáð hefur alþjóðlega markaði. Viðskipti erlent 30.1.2008 09:29
Landsbankinn hagnaðist um 40 milljarða króna Landsbankinn hagnaðist um 39,9 milljarða krónur á öllu síðasta ári samanborið við 40,2 milljarða krónur í hitteðfyrra. Þeir Sigurjón Þ. Árnason og Halldór J. Kristjánsson, bankastjórar Landsbankans, segja báðir afkomuna góða og stöðu bankans sterka. Það skapi bankanum tækifæri í þeim óróleika sem hafi verið á alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Viðskipti innlent 28.1.2008 17:06
Gullið aldrei dýrara en nú Verð á gulli fór í 923 dali á únsu á hlutabréfamarkaði í Bandaríkjunum í gær og hefur aldrei nokkurn tíma verið dýrara. Viðskipti erlent 26.1.2008 09:12
Tímabundinn skellur á helstu fjármálamörkuðum Helstu hlutabréfavísitölur í Bandaríkjunum og Evrópu sneru snarlega úr hækkun í lækkun til skamms tíma eftir að bandaríska sjónvarpsstöðin CNBC greindi frá því að bandaríski fjárfestingarbankinn Goldman Sachs ætli að segja upp allt að fimm prósentum starfsmanna sinna. Þá spilar inn í orðrómur að stór banki í Evrópu neyðist til að afskrifa háar fjárhæðir úr bókum sínum vegna falls á skuldavöndlum sem tengjast bandarískum undirmálslánum og að vogunarsjóður glími við lausafjárþurrð og muni senn heyra sögunni til. Viðskipti erlent 25.1.2008 16:29
SPRON tók stökkið í morgun Færeyska olíuleitarfélagið Atlantic Petroleum spratt af stað í fyrstu viðskiptunum í Kauphöll Íslands í dag og rauk upp um rúm ellefu prósent. Á eftir fylgdu SPRON og Exista, en gengi beggja félaga hækkaði um fimm og sex prósent. Fjármálafyrirtækin, Bakkavör, Eimskipafélagið og Teymi fylgdu á eftir. Viðskipti innlent 25.1.2008 10:17
Góð jól hjá Alfesca Jólin voru góð hjá Alfesca en sala á helstu vörum fyrirtækisins jókst um ellefu prósent á síðasta fjórðungi nýliðins árs, sem er annar ársfjórðungur í bókum félagsins. Viðskipti innlent 25.1.2008 10:01
Franski bankinn kærir verðbréfaskúrkinn Franski bankinn Societe Generale hefur höfðað mál á hendur Jerome Kerviel, miðlaranum sem sagt var upp störfum hjá bankanum fyrir óheimila spákaupmennsku sem olli því að jafnvirði 480 milljarða íslenskra króna gufuðu upp úr bókum bankans. Viðskipti erlent 25.1.2008 09:39
Afkoma Microsoft yfir væntingum Bandaríski hugbúnaðarrisinn Microsoft skilaði hagnaði upp á 4,7 milljarða dala, jafnvirði 311 milljarða íslenskra króna, á síðasta ársfjórðungi samanborið við 2,6 milljarða í hitteðfyrra. Windows Vista, nýja stýrikerfið sem fyrirtækið setti á markað seint á síðasta ári á stærstan þátt í bættri afkomu fyrirtækisins. Viðskipti erlent 25.1.2008 09:10
Atlantic Airways tekur flugið í Kauphöllinni Gengi bréfa í færeyska flugfélaginu Atlantic Airways tók flugið í Kauphöll Íslands í dag og hækkaði gengi þeirra um 11,8 prósent. Þetta er langmest hækkun dagsins skráðra félaga eftir afhroð í vikunni. Gengi einungis tveggja félaga lækkaði á sama tíma. Í Icelandic Group og 365. Viðskipti innlent 24.1.2008 16:42
Nokia keyrir fram úr öðrum Nokia, stærsti farsímaframleiðandi í heimi, hagnaðist um tæpa 1,8 milljarða evra, jafnvirði 172 milljarða íslenskra króna, á síðasta ársfjórðungi nýliðins árs. Þetta er 44 prósenta aukning á milli ára. Viðskipti erlent 24.1.2008 14:16
Tap Ford minnkar milli ára Bandaríski bílaframleiðandinn Ford tapaði 2,7 milljörðum dala, jafnvirði 178,6 milljörðum íslenskra króna, á síðasta ári. Þrátt fyrir tapið er þetta talsverður bati frá þarsíðasta ári þegar fyrirtækið tapaði 12,6 milljörðum dala. Viðskipti erlent 24.1.2008 12:49
Storebrand og Sampo taka stökkið Norski fjármálarisinn Storebrand og finnska tryggingafélagið Sampo, sem Exista og Kaupþing eri stærstu hluthafar í, tóku sprettinn í norrænu kauphallarsamstæðunni þegar viðskipti hófust í dag. Viðskipti innlent 24.1.2008 11:21
Sprettur í Kauphöllinni Exista og SPRON tóku sprettinn ásamt öllum bönkum og fjármálafyrirtækjum í fyrstu viðskiptum dagsins í Kauphöll Íslands í dag en gengi þeirra rauk upp um fimm prósent. Gengi jafnaði sig fljótlega um eitt prósent að meðaltali en ekkert félag hefur lækkað enn sem komið er. Viðskipti innlent 24.1.2008 10:05
Hlutabréf taka sprettinn í Evrópu Gengi hlutabréfa í Kaupþingi hefur hækkað um tæp 4,5 prósent í kauphöllinni í Stokkhólmi í Svíþjóð í dag en sprettur hefur verið á hlutabréfamörkuðum í Asíu og Evrópu í dag eftir mikla lækkun í gær. Viðskipti erlent 24.1.2008 09:21
Exista fellur um tíu prósent Gengi bréfa í Existu hefur fallið um rúm tíu prósent í Kauphöll Íslands í dag. Á eftir fylgir SPRON líkt og fyrri daginn, sem hefur fallið um rúm 8,7 prósent en gengi beggja félaga hefur aldrei verið lægra. Viðskipti innlent 23.1.2008 14:02
Illa unnin greining á Existu, segir stjórnarformaðurinn „Þessar hugleiðingar greiningarmanns Enskilda eru illa unnar og fjarri öllum veruleika. Greiningarmaðurinn þekkir greinilega ekki vel til Exista og gerir sig þar að auki sekan um rangfærslur í útreikningum,“ segir Lýður Guðmundsson, stjórnarformaður Existu. Viðskipti innlent 23.1.2008 10:53
Gengi Existu og SPRON aldrei lægra Gengi bréfa í Existu féll um 5,3 prósent og SPRON um tæp 3,5 prósent skömmu eftir að viðskipti hófust í Kauphöll Íslands í dag en gengi félaganna hefur aldrei verið lægra. Fallið kemur í kjölfar greiningar sænska bankans Enskilda um finnska tryggingafélagið Sampo. Þar segir að eiginfjárstaða Existu sé verri en af sé látið. Nemi hún jafnvirði um 35 milljörðum króna og geti svo farið að félagið verði að losa um eignir, jafnvel með afslætti. Viðskipti innlent 23.1.2008 10:17
Seðlabankarnir eru kjölfestan Jean-Claude Trichet, bankastjóri evrópska seðlabankans, segir fjármálamarkaði víða um heim ganga í þessar mundir í gegnum harkalega leiðréttingu. Hann segir hræringarnar undanfarið minna fólk á að efnahagsástand í einu landi geti haft áhrif í öðru. Viðskipti erlent 23.1.2008 09:39
Applerisinn féll á Wall Street Gengi hlutabréfa í bandaríska tölvuframleiðandanum Apple féll um fimmtán prósent eftir að fyrirtækið birti uppgjörstölur sínar fyrir síðasta ársfjórðung á bandarískum hlutabréfamarkaði í kvöld. Viðskipti erlent 22.1.2008 23:09
Viðsnúningur á hlutabréfamörkuðum Gengi hlutabréfa í Century Aluminum hækkaði um tæp fimm prósent í Kauphöll íslands í dag skömmu eftir að bandaríski seðlabankinn lækkaði óvænt stýri- og daglánavexti sína um 75 punkta. Viðskipti innlent 22.1.2008 16:31
Afkoma Bank of America dregst saman Hagnaður bandaríska bankans Bank of America nam 268 milljónum dala, jafnvirði rúmum 17,6 milljörðum íslenskra króna, á síðasta fjórðungi nýliðins árs. Til samanburðar nam hagnaðurinn 5,26 milljörðum dala á sama tíma í hitteðfyrra. Þetta er 95 prósenta samdráttur á milli ára. Viðskipti erlent 22.1.2008 16:01
Óvænt vaxtalækkun í Bandaríkjunum Seðlabanki Bandaríkjanna lækkaði stýri- og daglánavexti óvænt í dag um heila 75 punkta. Ekki vart gert ráð fyrir viðlíka aðgerðum til að sporna gegn frekara falli á fjármálamörkuðum fyrr en á næsta vaxtaákvörðunarfundi seðlabankans í næstu viku. Vextir vestanhafs fara við þetta úr 4,25 í 3,5 prósent. Viðskipti erlent 22.1.2008 13:26
Fall í Asíu en rólegt í Evrópu Helstu hlutabréfavísitölur í Evrópu eru beggja vegna núllsins í dag þrátt fyrir mikið gengisfall í Asíu í morgun. Viðskipti erlent 22.1.2008 09:10
Fall við upphaf viðskiptadags í Japan Hlutabréf tóku dýfu við upphaf viðskiptadagsins í kauphöllinni í Tókýó í Japan í morgun, um eittleytið að íslenskum tíma í nótt, en fjárfestar í Asíu óttast mjög áhrif af hugsanlegum samdrætti í Bandaríkjunum. Nikkei-hlutabréfavísitalan féll um rúm 4,5 prósent við upphaf dags en jafnaði sig nokkuð eftir því sem á leið. Viðskipti erlent 22.1.2008 01:48
Kröfu Novators hafnað Krafa Novators, félags Björgólfs Thors Björgólfssonar, um að fá tvo menn í stjórn finnska fjarskiptafélagsins Elisa, náði ekki fram að ganga, á fjölmennum hluthafafundi sem haldinn var í dag. Viðskipti innlent 21.1.2008 16:11
Evrópa fellur Skellur hefur verið á hlutabréfamörkuðum víða um heim í dag, þar á meðal í Kauphöllinni. Gengi bréfa í SPRON og FL Group hefur fallið um á milli sjö til átta prósent. Stórar eignir FL Group og Existu erlendis hafa fallið um allt að átta prósent. Viðskipti innlent 21.1.2008 12:55
Novator skautar á hluthafafund Elisu Í dag ræðst hvort Novator, félag Björgólfs Thors Björgólfssonar, fái tvo menn í stjórn finnska fjarskiptafyrirtækisins Elisa. Hluthafafundur sem boðað var til að kröfu Novators verður haldinn í skautahöllinni í Helsinki í dag. Reiknað hefur verið með því að hundruð mæti til fundarins, en hluthafar í Elisa eru yfir 230 þúsund. Viðskipti innlent 21.1.2008 10:48
Fall á erlendum hlutabréfamörkuðum Gengisfall hefur verið á evrópskum hlutabréfamörkuðum frá upphafi viðskiptadagsins í dag. Ótti fjárfesta um yfirvofandi samdráttarskeið og efnahagskreppu fékk byr undir báða vængi í morgun þegar Nikkei-vísitalan féll um tæp fjögur prósent. Viðskipti erlent 21.1.2008 08:32
Teymi leiddi hækkun dagsins Gengi hlutabréfa í Teymi hækkaði mest skráðra félaga í Kauphöll Íslands í dag, eða um 2,03 prósent. Það er jafnframt eina félagið sem hefur hækkað á árinu. Á eftir fylgdu Flaga, sem hefur fallið í vikunni, Exista og Eimskipafélagið en gengi þeirra hækkaði um rúmt prósent. Viðskipti innlent 18.1.2008 16:57