Viðskipti
54 55 56 57 58 59 60 61 62 … 223 ›
Evran dýr í dollurum Gengi evru sló enn eitt metið gagnvart bandaríkjadal í dag en gjáin á milli þeirra hefur aldrei verið meiri. Helstu skýringarnar felast í styrkingu evrunnar gagnvart öðrum gjaldmiðlum og veikingu bandaríkjadals í kjölfar stýrivaxtalækkunar í Bandaríkjunum í síðustu viku. Viðskipti erlent 24.9.2007 09:33
Nánast óbreytt staða í Kauphöllinni Úrvalsvísitalan hækkaði lítillega við lokun viðskipta í Kauphöllinni í dag. Þetta er nokkuð í takt við þróun á erlendum hlutabréfamörkuðum, sem þó hafa hækkað litlu meira. Gengi bréfa í Bakkavör hækkaði mest í dag, eða um 1,87 prósent. Mest var lækkunin hins vegar á gengi bréfa í Straumi, sem fór niður um 0,52 prósent. Viðskipti innlent 21.9.2007 15:43
Airbus: Sterkt gengi evru til vandræða Stjórnendur evrópsku flugvélasmiðjunnar Airbus óttast að sterkt gengi evrunnar gagnvart öðrum gjaldmiðlum nú um stundir geti valdið því að fyrirtækið neyðist til að grípa til frekari uppsagna til að hagræða í rekstrinum. Viðskipti erlent 21.9.2007 13:24
Færeyingar efstir og neðstir í Kauphöllinni Gengi hlutabréfa hefur hækkað lítillega eftir að opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni í dag. Gengi bréfa í Föroya banka hefur hækkað langmest, eða um 3,23 prósent. Bréf í öðrum fyrirtækjum hefur ýmist hækkað rúmt hálft prósent eða staðið í stað. Gengi bréfa í færeyska bankanum Eik er hins vegar eina félagið sem hefur lækkað í dag. Viðskipti innlent 21.9.2007 11:04
Northern Rock hafnaði milljarðaláni Stjórnendum breska fasteignalánafyrirtækisins Northern Rock bauðst að fá lán upp á hálfan milljarð punda, jafnvirði 63,5 milljarða íslenskra króna, frá bandaríska fjárfestingabankanum JPMorgan seint í júlí. Þeir tóku því ekki. Breskir fjölmiðlar segja að hefðu stjórnendurnir gert það hefði bankinn ekki staðið frammi fyrir sama vanda og hann gerir í dag. Viðskipti erlent 21.9.2007 09:33
Dalurinn á ný í sögulegu lágmarki gagnvart evru Gengi evru fór enn í methæðir gagnvart bandaríkjadal í dag en munurinn á gengi myntanna hefur aldrei verið lægra. Gengi dals hefur lækkað nokkuð síðustu daga, ekki síst eftir að seðlabanki Bandaríkjanna lækkaði stýrivexti um 50 punkta á þriðjudag. Dalurinn kostaði jafn mikið og kanadískur dalur í gær en slíkt hefur ekki gerst í rúm þrjátíu ár. Viðskipti erlent 21.9.2007 09:10
Verður næststærsta Kauphöll heims Kauphöllin í Dubai eignast tuttugu prósenta hlut í sameinaðri Kauphöll NASDAQ og OMX. Með samkomulaginu lýkur baráttu NASDAQ og Kauphallarinnar í Dubai um yfirráð yfir OMX. Sýnileiki íslenskra fyrirtækja eykst til muna. „Þetta eru góð tíðindi fyrir okkur,“ segir forstjóri Kauphallar Íslands. Viðskipti innlent 21.9.2007 09:01
Vonbrigði Nick Leeson hélt erindi á morgunverðarfundi á vegum Icebank og Háskólans í Reykjavík í gærmorgun. Leeson er þekktur fyrir það eitt að vera verðbréfamiðlarinn fyrrverandi sem setti Baringsbanka, viðskiptabanka Englandsdrottningar, á hausinn með harla vafasömum gjaldeyrisviðskiptum árið 1995. Leeson var eðlilega fullur eftirsjár enda gjaldþrotið eitt það stærsta í bankaheiminum. Viðskipti innlent 21.9.2007 09:01
Metgjalddagi hafði lítil áhrif á gengi Krónubréf að nafnvirði sextíu milljarðar króna féllu á gjalddaga í gær. Þetta var stærsti einstaki krónubréfagjalddagi frá því að útgáfa þeirra hófst í ágúst 2005. Viðskipti innlent 21.9.2007 09:01
Deutsche Bank í krísu vegna óróleikans Þýski bankinn Deutsche Bank hefur tilkynnt að hann muni þurfa að færa verðmæti fjármögnunarsamninga niður um allt að 625 milljónir evra, jafnvirði tæpra 56 milljarða íslenskra króna, á þriðja ársfjórðungi vegna mistaka sem bankinn gerði á uppgangstímum á fjármálamörkuðum sem lauk með lánsfjárkreppu í síðustu mánuðum. Viðskipti erlent 20.9.2007 16:07
Lækkun í Kauphöllinni í kjölfar hækkunar Gengi hlutabréfa lækkaði almennt í Kauphöllinni í dag eftir talsverða hækkun í gær. Gengi bréfa í færeyska olíuleitarfélaginu Atlantic Petroleum lækkaði mest, eða um 3,43 prósent. Gengi einungis tveggja félaga hækkaði i Kauphöllinni, í Teymi og FL Group. Viðskipti innlent 20.9.2007 15:38
Spáir stýrivaxtalækkun snemma á næsta ári Styrking evru gagnvart bandaríkjadal veldur því að evrópski seðlabankinn verði að breyta um stefnu og lækka stýrivexti. Þetta segir sérfræðingurinn Austin Hughes, hjá írska bankanum IIB. Gengi evru hefur haldið verið jafn sterk gagnvart bandaríkjadal og nú um stundir. Viðskipti erlent 20.9.2007 15:18
Samdrátturinn gæti haldið áfram Ben Bernanke, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, sagðist eftir yfirheyrslu fyrir fjárlaganefnd bandaríska þingsins í dag, að hann teldi hræringar á fjármálamörkuðum vegna vanskila á fasteignalánamarkaði ekki að baki. Það hafi hins vegar verið rétt ákvörðun bankastjórnarinnar að lækka stýrivexti og setja fé inn í efnahagslífið til að auðvelda aðgengi að fjármagni. Viðskipti erlent 20.9.2007 14:45
Afkoma Goldman Sachs umfram spár Hagnaður bandaríska bankans Goldman Sachs nam 2,85 milljörðum dala, jafnvirði rúmra 180 milljarða íslenskra króna, á þriðja ársfjórðungi. Þetta er 79 prósenta aukning frá sama tíma í fyrra og sá þriðji besti í 138 ára sögu bankans. Ólíkt flestum bönkum spáði Goldman Sachs samdrætti á fasteignalánamarkaði í Bandaríkjunum og stóð því ekki berskjaldur gagnvart þrengingunum. Viðskipti erlent 20.9.2007 14:09
Breski seðlabankinn gagnrýndur fyrir sein viðbrögð Mervyn King, seðlabankastjóri Englandsbanka, sagði fyrir breskri þingnefnd í dag, að lög í Bretlandi og innan Evrópusambandsins, hafi komið í veg fyrir að bankinn hefði getað beitt sér fyrir því að koma bönkum og fjármálafyrirtækjum á borð við Norther Rock til bjargar strax þegar óróleika varð vart á fjármálamörkuðum í sumar. Gengi bréfa í Nothern Rock, sem er með stærstu fasteignalánafyrirtækjum í Bretlandi, hefur fallið um heil 82 prósent síðan í lok febrúar. Viðskipti erlent 20.9.2007 11:47
Bandaríkjadalur aldrei lægri gagnvart evru Gengi bandaríkjadals fór í sögulegt lágmark gagnvart evru í dag í kjölfar 50 punkta lækkunar á stýrivöxtum í Bandaríkjunum á þriðjudag. Þá hefur gengi evru styrkst eftir að evrópski seðlabankinn gaf í skyn að stýrivextir hækki á evrusvæðinu á næstu mánuðum. Viðskipti erlent 20.9.2007 11:06
Nasdaq kaupir OMX-samstæðuna Nasdaq hefur gert samkomulag við kauphöllina í Dubaí sem felur í sér að Nasdaq kaupir samnorrænu OMX-kauphallarsamstæðuna. Kauphöllin í Dubaí mun eiga fimmtung í sameinuðum kauphöllum auk þess að fá 28 prósenta hlut Nasdaq í bresku kauphöllinni í Lundúnum (LSE). Lokað var fyrir viðskipti með bréf í OMX í gær. Viðskipti erlent 20.9.2007 10:35
Hækkanahrina í Kauphöllinni Gengi hlutabréfa tók stökkið við opnun viðskipta í Kauphöllinni í morgun. Þetta er í takti við þróunina á erlendum hlutabréfamörkuðum í kjölfar þess að bandaríski seðlabankinn lækkaði stýrivexti í gær meira en vonir stóðu til. Fjármálafyrirtæki leiða hækkanahrinuna. Gengi bréfa í Existu hefur hækkað langmest, eða um tæp 6,8 prósent. Viðskipti innlent 19.9.2007 10:04
Óbreyttir stýrivextir í Japan Bankastjórn japanska seðlabankans hefur ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum í 0,5 prósentum. Fjármálasérfræðingar gerðu flestir hverjir ráð fyrir þessari niðurstöðu vegna aðstæðna á fjármálamörkuðum. Þetta er sjöundi mánuðurinn í röð sem seðlabankinn heldur vöxtunum óbreyttum eftir að hafa hækkað þá einungis tvisvar frá árinu 2000. Viðskipti erlent 19.9.2007 08:57
Vísitölur taka stökkið á Evrópumörkuðum Helstu hlutabréfavísitölur hafa hækkað á fjármálamörkuðum í dag eftir að Seðlabanki Bandaríkjanna lækkaði stýrivexti í gær meira en vongóðust fjármálasérfræðingar þorðu að vona. Nikkei-hlutabréfavísitalan í Japan hækkaði um heil 3,67 prósent við lokun markaðar í Tókýó í morgun. Hlutabréfavísitölur í Evrópu hafa í dag hækkað um og yfir tvö prósent í dag. Viðskipti erlent 19.9.2007 08:25
Íslendingar kaupa fasteignir í Noregi Fasteignafélagið City Center Properties, sem er að stærstum hluta í íslenskri eigu, hefur keypt átta stórar fasteignir í Noregi af norska fasteignafélaginu BSA Kontoreiendom. Um er að ræða sex skrifstofubyggingar og tvær byggingar sem hýsa bæði skrifstofur og vörugeymslur, alls 67 þúsund fermetrar. Sjö bygginganna eru í Osló og ein í Bergen. Viðskipti innlent 18.9.2007 16:31
Eignaupptökum fjölgar í Bandaríkjunum Upptaka banka og fjármálafyrirtækja á fasteignum og öðrum eignum í Bandaríkjunum vegna skulda einstaklinga voru 243.947 talsins í síðasta mánuði. Þetta er heilum 36 prósentum meira en í júlí og tvöfalt meira en á sama tíma í fyrra. Sérfræðingar í Bandaríkjunum segjast óttast að þetta geti valdið nýrri öldu samdráttar á fasteignamarkaði vestanhafs. Viðskipti innlent 18.9.2007 16:13
Færeyingar efstir og neðstir í Kauphöllinni Gengi hlutabréfa hækkaði almennt við lokun Kauphallarinnar í dag. Þetta er í takti við þróun á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum en fjárfestar þykja stíga varlega til jarðar áður en greint verður frá því hvort breytingar verði gerðar á stýrivaxtastigi í Bandaríkjunum um fimmleytið. Gengi bréfa í færeyska olíuleitarfélaginu Atlantic Petroleum hækkaði langmest, eða um rúm fjögur prósent. Gengi landa Færeyinganna í Föroya banka lækkaði á móti mest, eða um 3,23 prósent. Viðskipti innlent 18.9.2007 15:44
Hlutabréfavísitölur lækka víða í Evrópu Gengi hlutabréfa hefur lækkað nokkuð í Kauphöllinni í dag líkt og á hlutabréfamörkuðum í Evrópu. Gengi bréfa í Exista hefur lækkað mest, eða um 3,84 prósent. Á eftir fylgir gengi bréfa í Kaupþingi, Straumi og Bakkavör, sem öll hafa lækkað um rúm tvö prósent. Ekkert félag hefur hækkað í dag. Viðskipti innlent 17.9.2007 10:51
Candover dregur tilboð í Stork til baka Breska fjárfestingafélagið Candover hefur dregið yfirtökutilboð sitt í hollensku iðnsamsteypuna Stork NV til baka þar sem tilskilinn fjöldi hluthafa var ekki samþykkur því. LME, eignarhaldsfélag í eigu Eyris Invest, Landsbankans og Marel, sem er stærsti hluthafi Stork, hefur átt í viðræðum við forsvarsmenn Candover vegna tilboðsins og verður þeim haldið áfram. Viðskipti innlent 17.9.2007 09:53
Hluthafar Storebrand sagðir styðja kaup á SPP Fulltrúar hluthafa í norska tryggingafyrirtækinu Storebrand eru sagðir styðja kaup félagsins á sænska tryggingafélagið SPP, líftryggingahluta Handelsbanken. Skrifað var undir yfirlýsingu um kaupin í byrjun mánaðar. Líklegt þykir að Kaupþing, sem er stærsti hluthafi Storebrand, sé fylgjandi kaupunum. Viðskipti innlent 15.9.2007 10:38
Úrvalsvísitalan lækkaði í Kauphöllinni Gengi hlutabréfa lækkaði talsvert í Kauphöllinni í dag en það er í takt við þróun á hlutabréfamörkuðum í Evrópu en gengi bréfa í fjármálafyrirtækjum lækkaði nokkuð eftir að breska fasteignalánafyrirtækið greindi frá því að það hefði nýtt sér lánaheimild Englandsbanka. Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,49 prósent og stendur í 7.772. Gengi bréfa í FL Group lækkaði mest, eða um 2,99 prósent. Viðskipti innlent 14.9.2007 16:30
Kínverjar hækka stýrivexti Kínverski seðlabankinn hækkaði stýrivexti sína um 27 punkta í dag með það fyrir augum að draga úr verðbólgu, sem mædlist 6,5 prósent í síðasta mánuði og hefur ekki verið meiri í 11 ár. Vextirnir standa nú í 7,29 prósentum. Þetta er fimmta stýrivaxtahækkun bankans á árinu. Greinendur bjuggust almennt við hækkuninni. Viðskipti erlent 14.9.2007 14:51
Hlutabréf lækka í Bandaríkjunum Gengi hlutabréfa lækkaði nokkuð eftir opnun fjármálamarkaða vestanhafs í kjölfar talna um vöxt í smásöluverslun þar í landi í ágúst. Tölurnar ollu fjárfestum nokkrum vonbrigðum. Smásöluverslu jókst um 0,3 prósent en vonast var til að hann yrði helmingi meiri. Aukin bílasala í síðasta mánuði miðað við síðasta ár vegur hins vegar á móti. Viðskipti erlent 14.9.2007 14:01
Vöxtur í smásöluverslun undir spám Smásöluverslun í Bandaríkjunum jókst um 0,3 prósent á milli mánaða í ágúst, samkvæmt nýbirtum tölum bandaríska viðskiptaráðuneytisins. Til samanburðar nemur aukningin 0,5 prósentum í júlí. Þetta er nokkru undir væntingum greinenda, sem telja að samdráttur á fasteignamarkaði vestanhafs hafi snert meira við einkaneyslu en talið hefur verið. Viðskipti erlent 14.9.2007 12:49
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti