Erlent Leyfi gefið fyrir einum desilítra Evrópusambandið samþykkti í gær nýjar reglur um handfarangur í flugvélum. Mega farþegar nú hafa með sér samtals einn desilítra af vökva í snyrtivörum sínum og bera verður slíkan vökva í gegnsæjum plastpokum sem hægt er að loka. Erlent 5.10.2006 21:46 NATO tekur við her-stjórn í Afganistan Richard Davis herforingi, yfirmaður hersveitanna í Afganistan, segir þessi tímamót vera söguleg. NATO hefur aldrei tekist á við jafn erfitt verkefni. Erlent 5.10.2006 21:46 Öllum ákærum gegn John Mark Karr vísað frá Dómari í Kaliforníu vísað í dag frá dómi ákæru áhendur John Mark Karr um vörslu barnakláms. Karr hafði áður gefið sig fram í Tælandi og sagðist hafa myrt barnafegurðadrottninguna JonBenet Ramsey árið 1996. Síðar leiddi athugun á erfðaefni í ljós að Karr var ekki morðinginn og því var ákæru í því máli vísað frá. Erlent 5.10.2006 23:03 Faldi sig í helli Kínverskur maður hefur gefið sig fram við lögreglu eftir að hafa falið í helli í tæpan áratug. Maðurinn segist hafa verið að fela sig fyrir innheimtumönnum auk þess sem hann er sakaður um að hafa ógnað aðkomufólki með byssu. Erlent 5.10.2006 22:57 Ákærður fyrir að smygla dínamíti Bandarískur ferðamaður, sem reyndi að flytja dínamít með sér í farangri heim frá Suður-Ameríku til Bandaríkjanna, var ákærður í dag byrir brot á öryggislöggjöf. Hann gæti átt yfir höfði sér allt að 10 ára fangelsi. Erlent 5.10.2006 22:19 Hastert ætlar ekki að víkja Dennis Hastert, forseti fulltrúardeildar Bandaríkjaþings, ætlar ekki að segja af sér vegna hneyslismáls sem nú skekur Repúblíkanaflokkinn. Upp komst um það að fyrrverandi fulltrúardeildarþingmaður, Mark Foley, hefði sent klúr tölvupóstskeyti til ungra drengja sem unnu fyrir þingið. Foley hefur nú sagt af sér og beðist afsökunar á framferði sínu. Hastert segist þó bera fulla ábyrgð á að ekki hafi verið gripið í taumana fyrr. Hann sagðist gera allt sem í sínu valdi stæði til að koma í veg fyrir að svona nokkuð gerðist aftur. Erlent 5.10.2006 21:53 Hugsanlega sleppt þrátt fyrir fjöldamorð Bandaríska dómsmálaráðuneytið hefur mótmælt tillögu dómstóls í Bandaríkjunum um að herskáum andstæðingi stjórnar Fídels Kastró, forseta Kúbu, verði sleppt úr fangelsi þrátt fyrir að hann sé borin sökum um að bera ábyrgð á dauða 73 flugfarþega fyrir 20 árum. Erlent 5.10.2006 21:30 Þriðji dagur Dow Jones í methæðum Bandaríska hlutabréfavísitalan Dow Jones sló enn eitt metið við lokun markaða vestanhafs í dag. Vísitalan hækkaði um 16,08 punkta eða 0,14 prósent í viðskiptum dagsins og endaði í 11.866,69 stigum. Þetta er þriðji dagurinn í röð sem vísitalan nær sögulegu hámarki. Viðskipti erlent 5.10.2006 21:42 Rán í beinni útsendingu Löngum hefur verið sagt að armur laganna sé langur. Nýlegir atburðir í Bretlandi færðu sönnur á að almenningur getur framlengt hann enn frekar. Tveir innbrotsþjófar, sem brutust inn í hús í Lancaster á dögunum, vissu ekki betur en þeir væru að athafna sig óséðir í skjóli myrkurs. Svo var þó ekki því húsráðandi horfði á þá láta greipar sópa úr töluverðri fjarlægð í gegnum öryggismyndavél sem hann hafði tengt við farsíma sinn. Erlent 5.10.2006 21:03 Verðlaunamynd tryggði gervihendi Níu ára drengur, sem missti vinstri hönd sína í jarðskjálftanum í Pakistan í október í fyrra, hefur fengið gervihendi eftir að þýsk kona sá mynd af honum og ákvað að færa hann undir hendur færustu sérfræðinga á Ítalíu. 80 þúsund manns fórust í hamförunum og fjölmargir örkumluðust. Erlent 5.10.2006 20:40 Óvíst hvort al-Masri er lífs eða liðinn Írakar rannsaka nú erfðaefni úr látnum manni til að kanna hvort hann hafi verið Abu Ayyub al-Masri, nýr leiðtogi al Kaída í Írak. Tvær arabískar sjónvarpsstöðvar fullyrða að hann hafi fallið í loftárásum Bandaríkjamanna fyrr í vikunni. Erlent 5.10.2006 18:24 NATO tekið við í Afganistan Atlantshafsbandalagið tók í dag við stjórn öryggismála í Austur-Afganistan úr höndum Bandaríkjahers. Bandalagið hefur þegar tekið við stjórn mála í öðrum landshlutum, þar á meðal í höfuðborginni, Kabúl. Erlent 5.10.2006 18:20 Útgefendur Nyhedsavisen gagnrýndir Útgefendur Nyhedsavisen í Danmörku eru gagnrýndir harðlega í dönskum fjölmiðlum í dag fyrir að hafa ekki nú þegar gefið upp hverjir fjármagna útgáfu blaðsins. Hagfræðingur, sem hefur kannað málið fyrir danska blaðamannafélagið, segir þetta ótrúverðugt. Blaðið kemur út í fyrsta sinn á morgun. Erlent 5.10.2006 18:14 Rússar ræða beint við fulltrúa Norður-Kóreu Rússensk stjórnvöld segjast hafa verið í beinu sambandi við ráðamenn í Norður-Kóreu til að reyna að fá þá ofan af því að gera tilraunir með kjarnorkuvopn. Stjórnvöld í Pyongyang tilkynntu í fyrradag að slíkar tilraunir væru fyrirhugaðar. Alþjóðasamfélagið hefur varað Norðurkóreumenn við því að gera prófanir á slíkum vopnum. Erlent 5.10.2006 18:10 Reinfeldt nýr forsætisráðherra Svíþjóðar Fredrik Reinfeldt, leiðtogi sænska Hægriflokksins, var kjörinn forsætisráðherra Svíþjóðar í atkvæðagreiðslu á þingi í dag. Á morgun mun Reinfeldt kynna nýja ríkisstjórn sína og stefnumál hennar. Erlent 5.10.2006 17:51 Grænfriðungar stýra fiskverslun í Englandi Erlent 5.10.2006 16:49 OPEC hækkar verð á olíu Erlent 5.10.2006 16:08 Rússar þjarma enn að Georgíu Rússar hertu í dag enn tökin á smáríkinu Georgíu, með því að loka fyrirtækjum sem Georgíumenn eiga í Rússlandi, og frysta atvinnuleyfi. Þá eru þeir að undirbúa að stórhækka verð á gasi sem þeir selja til Georgíu, sem væri gríðarlegt áfall fyrir efnahag landsins. Erlent 5.10.2006 15:35 Seðlabanki Danmerkur hækkar stýrivexti Seðlabanki Danmerkur ákvað í dag að feta í fótspor evrópska seðlabankans og hækka stýrivexti um 25 punkta í 3,5 prósent. Viðskipti erlent 5.10.2006 15:03 Olía hækkar í verði Heimsmarkaðsverð á hráolíu hefur hækkað nokkuð á helstu fjármálamörkuðum í dag í kjölfar þess að forseti samtaka olíuútflutningsríkja, OPEC, sagði samtökin vera að íhuga að draga úr olíuframleiðslu til að sporna gegn frekari lækkunum á olíu. Viðskipti erlent 5.10.2006 14:51 Hópur sjakala réðst á þorp í Indlandi Flytja þurfti 35 manns á sjúkrahús eftir að hópur af sjakölum réðst á þorp, í Austur-Indlandi, í gær. Erlent 5.10.2006 14:50 Risa hafeðlur fundnar á Svalbarða Norskir vísindamenn hafa fundið beinagrindur af risa-hafeðlum, sem þeir segja að hafi verið jafnvel enn skelfilegri en landeðlan Tyrannosaurus Rex, sem kölluð er Grameðla, á íslensku. Erlent 5.10.2006 14:07 Evrópski seðlabankinn hækkar stýrivexti Seðlabanki Evrópu ákvað í dag að hækka stýrivexti á evrusvæðinu um 25 punkta í 3,25 prósent. Fjármálasérfræðingar töldu margir líkur á þessari ákvörðun bankastjórnarinnar. Viðskipti erlent 5.10.2006 11:50 Bernanke segir verðbólguna of háa Ben Bernanke, bankastjóri Seðlabanka Bandaríkjanna, varaði í gær við of mikilli verðbólgu vestanhafs. Hann gaf þó ekkert í skyn hvort bankinn muni hækka stýrivexti vegna þessa á næstunni. Viðskipti erlent 5.10.2006 11:32 Óbreyttir stýrivextir í Bretlandi Stjórn Englandsbanka ákvað í dag að halda stýrivöxtum í Bretlandi óbreyttum í 4,75 prósentum. Ákvörðunin kemur ekki á óvart enda bjuggust flestir greiningaraðilar við þessari niðurstöðu. Viðskipti erlent 5.10.2006 11:14 Dow Jones í nýjum hæðum Bandaríska hlutabréfavísitalan Dow Jones setti enn á ný met við lokun markaða vestanhafs í gær. Þetta er annar dagurinn sem lokagengi vísitölunnar nær sögulegum hæðum. Viðskipti erlent 5.10.2006 09:41 Ryanair vill Aer Lingus Írska lággjaldaflugfélagið Ryanair hefur gert tilboð í allt hlutafé írska flugfélagsins Aer Lingus. Tilboðið hljóðar upp á 1,48 milljarða evrur eða tæplega 130 milljarða íslenskra króna. Ryanair hefur þegar keypt 16 prósent í flugfélaginu. Forstjóri Ryanair segir þetta einstakt tækifæri til að byggja upp eitt sterkt flugfélag á Írlandi. Viðskipti erlent 5.10.2006 09:10 Mundi fyrstu 100.000 tölur pí Sextugur japanskur maður, Akira Haraguchi, sló heimsmet í gær þegar hann þuldi upp fyrstu 100.000 aukastafi í tölunni pí, sem hann hafði lært utanbókar. Afrekið tók ríflega 16 klukkustundir. Í nýjustu útgáfu heimsmetabókar Guinness er titilhafinn sagður Japaninn Hiroyuki Goto, sem árið 1995 þuldi upp fyrstu 42.195 aukastafi í pí. Talan pí er óræð tala sem ekki er hægt að skrifa sem brot þar sem heilli tölu er deilt í aðra heila tölu. Þegar pí er skrifað sem tugabrot verða aukastafirnir óendanlega margir. Hún byrjar á stöfunum 3,141592. Erlent 4.10.2006 21:47 Urðu hræddir við síðskegg „Þeir komu fram við mig eins og íslamskan hryðjuverkamenn vegna þess hvernig ég er útlits,“ sagði Pablo Gutierrez Vega, spænskur lagaprófessor á fertugsaldri, síðskeggjaður mjög, sem lenti heldur betur í hremmingum þegar hann sat um borð í þýskri farþegaflugvél á leiðinni frá Sevilla á Spáni til Dortmund í Þýskalandi. Erlent 4.10.2006 21:47 Allt bandarískir vísindamenn Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði, í lífeðlis- og læknisfræði og í efnafræði í ár fara til alls fimm bandarískra vísindamanna. Erlent 4.10.2006 21:47 « ‹ 261 262 263 264 265 266 267 268 269 … 334 ›
Leyfi gefið fyrir einum desilítra Evrópusambandið samþykkti í gær nýjar reglur um handfarangur í flugvélum. Mega farþegar nú hafa með sér samtals einn desilítra af vökva í snyrtivörum sínum og bera verður slíkan vökva í gegnsæjum plastpokum sem hægt er að loka. Erlent 5.10.2006 21:46
NATO tekur við her-stjórn í Afganistan Richard Davis herforingi, yfirmaður hersveitanna í Afganistan, segir þessi tímamót vera söguleg. NATO hefur aldrei tekist á við jafn erfitt verkefni. Erlent 5.10.2006 21:46
Öllum ákærum gegn John Mark Karr vísað frá Dómari í Kaliforníu vísað í dag frá dómi ákæru áhendur John Mark Karr um vörslu barnakláms. Karr hafði áður gefið sig fram í Tælandi og sagðist hafa myrt barnafegurðadrottninguna JonBenet Ramsey árið 1996. Síðar leiddi athugun á erfðaefni í ljós að Karr var ekki morðinginn og því var ákæru í því máli vísað frá. Erlent 5.10.2006 23:03
Faldi sig í helli Kínverskur maður hefur gefið sig fram við lögreglu eftir að hafa falið í helli í tæpan áratug. Maðurinn segist hafa verið að fela sig fyrir innheimtumönnum auk þess sem hann er sakaður um að hafa ógnað aðkomufólki með byssu. Erlent 5.10.2006 22:57
Ákærður fyrir að smygla dínamíti Bandarískur ferðamaður, sem reyndi að flytja dínamít með sér í farangri heim frá Suður-Ameríku til Bandaríkjanna, var ákærður í dag byrir brot á öryggislöggjöf. Hann gæti átt yfir höfði sér allt að 10 ára fangelsi. Erlent 5.10.2006 22:19
Hastert ætlar ekki að víkja Dennis Hastert, forseti fulltrúardeildar Bandaríkjaþings, ætlar ekki að segja af sér vegna hneyslismáls sem nú skekur Repúblíkanaflokkinn. Upp komst um það að fyrrverandi fulltrúardeildarþingmaður, Mark Foley, hefði sent klúr tölvupóstskeyti til ungra drengja sem unnu fyrir þingið. Foley hefur nú sagt af sér og beðist afsökunar á framferði sínu. Hastert segist þó bera fulla ábyrgð á að ekki hafi verið gripið í taumana fyrr. Hann sagðist gera allt sem í sínu valdi stæði til að koma í veg fyrir að svona nokkuð gerðist aftur. Erlent 5.10.2006 21:53
Hugsanlega sleppt þrátt fyrir fjöldamorð Bandaríska dómsmálaráðuneytið hefur mótmælt tillögu dómstóls í Bandaríkjunum um að herskáum andstæðingi stjórnar Fídels Kastró, forseta Kúbu, verði sleppt úr fangelsi þrátt fyrir að hann sé borin sökum um að bera ábyrgð á dauða 73 flugfarþega fyrir 20 árum. Erlent 5.10.2006 21:30
Þriðji dagur Dow Jones í methæðum Bandaríska hlutabréfavísitalan Dow Jones sló enn eitt metið við lokun markaða vestanhafs í dag. Vísitalan hækkaði um 16,08 punkta eða 0,14 prósent í viðskiptum dagsins og endaði í 11.866,69 stigum. Þetta er þriðji dagurinn í röð sem vísitalan nær sögulegu hámarki. Viðskipti erlent 5.10.2006 21:42
Rán í beinni útsendingu Löngum hefur verið sagt að armur laganna sé langur. Nýlegir atburðir í Bretlandi færðu sönnur á að almenningur getur framlengt hann enn frekar. Tveir innbrotsþjófar, sem brutust inn í hús í Lancaster á dögunum, vissu ekki betur en þeir væru að athafna sig óséðir í skjóli myrkurs. Svo var þó ekki því húsráðandi horfði á þá láta greipar sópa úr töluverðri fjarlægð í gegnum öryggismyndavél sem hann hafði tengt við farsíma sinn. Erlent 5.10.2006 21:03
Verðlaunamynd tryggði gervihendi Níu ára drengur, sem missti vinstri hönd sína í jarðskjálftanum í Pakistan í október í fyrra, hefur fengið gervihendi eftir að þýsk kona sá mynd af honum og ákvað að færa hann undir hendur færustu sérfræðinga á Ítalíu. 80 þúsund manns fórust í hamförunum og fjölmargir örkumluðust. Erlent 5.10.2006 20:40
Óvíst hvort al-Masri er lífs eða liðinn Írakar rannsaka nú erfðaefni úr látnum manni til að kanna hvort hann hafi verið Abu Ayyub al-Masri, nýr leiðtogi al Kaída í Írak. Tvær arabískar sjónvarpsstöðvar fullyrða að hann hafi fallið í loftárásum Bandaríkjamanna fyrr í vikunni. Erlent 5.10.2006 18:24
NATO tekið við í Afganistan Atlantshafsbandalagið tók í dag við stjórn öryggismála í Austur-Afganistan úr höndum Bandaríkjahers. Bandalagið hefur þegar tekið við stjórn mála í öðrum landshlutum, þar á meðal í höfuðborginni, Kabúl. Erlent 5.10.2006 18:20
Útgefendur Nyhedsavisen gagnrýndir Útgefendur Nyhedsavisen í Danmörku eru gagnrýndir harðlega í dönskum fjölmiðlum í dag fyrir að hafa ekki nú þegar gefið upp hverjir fjármagna útgáfu blaðsins. Hagfræðingur, sem hefur kannað málið fyrir danska blaðamannafélagið, segir þetta ótrúverðugt. Blaðið kemur út í fyrsta sinn á morgun. Erlent 5.10.2006 18:14
Rússar ræða beint við fulltrúa Norður-Kóreu Rússensk stjórnvöld segjast hafa verið í beinu sambandi við ráðamenn í Norður-Kóreu til að reyna að fá þá ofan af því að gera tilraunir með kjarnorkuvopn. Stjórnvöld í Pyongyang tilkynntu í fyrradag að slíkar tilraunir væru fyrirhugaðar. Alþjóðasamfélagið hefur varað Norðurkóreumenn við því að gera prófanir á slíkum vopnum. Erlent 5.10.2006 18:10
Reinfeldt nýr forsætisráðherra Svíþjóðar Fredrik Reinfeldt, leiðtogi sænska Hægriflokksins, var kjörinn forsætisráðherra Svíþjóðar í atkvæðagreiðslu á þingi í dag. Á morgun mun Reinfeldt kynna nýja ríkisstjórn sína og stefnumál hennar. Erlent 5.10.2006 17:51
Rússar þjarma enn að Georgíu Rússar hertu í dag enn tökin á smáríkinu Georgíu, með því að loka fyrirtækjum sem Georgíumenn eiga í Rússlandi, og frysta atvinnuleyfi. Þá eru þeir að undirbúa að stórhækka verð á gasi sem þeir selja til Georgíu, sem væri gríðarlegt áfall fyrir efnahag landsins. Erlent 5.10.2006 15:35
Seðlabanki Danmerkur hækkar stýrivexti Seðlabanki Danmerkur ákvað í dag að feta í fótspor evrópska seðlabankans og hækka stýrivexti um 25 punkta í 3,5 prósent. Viðskipti erlent 5.10.2006 15:03
Olía hækkar í verði Heimsmarkaðsverð á hráolíu hefur hækkað nokkuð á helstu fjármálamörkuðum í dag í kjölfar þess að forseti samtaka olíuútflutningsríkja, OPEC, sagði samtökin vera að íhuga að draga úr olíuframleiðslu til að sporna gegn frekari lækkunum á olíu. Viðskipti erlent 5.10.2006 14:51
Hópur sjakala réðst á þorp í Indlandi Flytja þurfti 35 manns á sjúkrahús eftir að hópur af sjakölum réðst á þorp, í Austur-Indlandi, í gær. Erlent 5.10.2006 14:50
Risa hafeðlur fundnar á Svalbarða Norskir vísindamenn hafa fundið beinagrindur af risa-hafeðlum, sem þeir segja að hafi verið jafnvel enn skelfilegri en landeðlan Tyrannosaurus Rex, sem kölluð er Grameðla, á íslensku. Erlent 5.10.2006 14:07
Evrópski seðlabankinn hækkar stýrivexti Seðlabanki Evrópu ákvað í dag að hækka stýrivexti á evrusvæðinu um 25 punkta í 3,25 prósent. Fjármálasérfræðingar töldu margir líkur á þessari ákvörðun bankastjórnarinnar. Viðskipti erlent 5.10.2006 11:50
Bernanke segir verðbólguna of háa Ben Bernanke, bankastjóri Seðlabanka Bandaríkjanna, varaði í gær við of mikilli verðbólgu vestanhafs. Hann gaf þó ekkert í skyn hvort bankinn muni hækka stýrivexti vegna þessa á næstunni. Viðskipti erlent 5.10.2006 11:32
Óbreyttir stýrivextir í Bretlandi Stjórn Englandsbanka ákvað í dag að halda stýrivöxtum í Bretlandi óbreyttum í 4,75 prósentum. Ákvörðunin kemur ekki á óvart enda bjuggust flestir greiningaraðilar við þessari niðurstöðu. Viðskipti erlent 5.10.2006 11:14
Dow Jones í nýjum hæðum Bandaríska hlutabréfavísitalan Dow Jones setti enn á ný met við lokun markaða vestanhafs í gær. Þetta er annar dagurinn sem lokagengi vísitölunnar nær sögulegum hæðum. Viðskipti erlent 5.10.2006 09:41
Ryanair vill Aer Lingus Írska lággjaldaflugfélagið Ryanair hefur gert tilboð í allt hlutafé írska flugfélagsins Aer Lingus. Tilboðið hljóðar upp á 1,48 milljarða evrur eða tæplega 130 milljarða íslenskra króna. Ryanair hefur þegar keypt 16 prósent í flugfélaginu. Forstjóri Ryanair segir þetta einstakt tækifæri til að byggja upp eitt sterkt flugfélag á Írlandi. Viðskipti erlent 5.10.2006 09:10
Mundi fyrstu 100.000 tölur pí Sextugur japanskur maður, Akira Haraguchi, sló heimsmet í gær þegar hann þuldi upp fyrstu 100.000 aukastafi í tölunni pí, sem hann hafði lært utanbókar. Afrekið tók ríflega 16 klukkustundir. Í nýjustu útgáfu heimsmetabókar Guinness er titilhafinn sagður Japaninn Hiroyuki Goto, sem árið 1995 þuldi upp fyrstu 42.195 aukastafi í pí. Talan pí er óræð tala sem ekki er hægt að skrifa sem brot þar sem heilli tölu er deilt í aðra heila tölu. Þegar pí er skrifað sem tugabrot verða aukastafirnir óendanlega margir. Hún byrjar á stöfunum 3,141592. Erlent 4.10.2006 21:47
Urðu hræddir við síðskegg „Þeir komu fram við mig eins og íslamskan hryðjuverkamenn vegna þess hvernig ég er útlits,“ sagði Pablo Gutierrez Vega, spænskur lagaprófessor á fertugsaldri, síðskeggjaður mjög, sem lenti heldur betur í hremmingum þegar hann sat um borð í þýskri farþegaflugvél á leiðinni frá Sevilla á Spáni til Dortmund í Þýskalandi. Erlent 4.10.2006 21:47
Allt bandarískir vísindamenn Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði, í lífeðlis- og læknisfræði og í efnafræði í ár fara til alls fimm bandarískra vísindamanna. Erlent 4.10.2006 21:47