Erlent
281 282 283 284 285 286 287 288 289 … 334 ›
Kosningabaráttan heldur áfram að loknum kosningum Kosningabarátta forsetaframbjóðanda heldur áfram í Mexíkó þó að rúmir tveir mánuðir séu liðnir frá kjördegi. Forsetaframbjóðandi vinstri manna, Lopez Obrador, segist ætla að halda ráðstefnu á sjálfstæðisdag Mexíkó, þann 16. september, til þess að mynda aðra ríkisstjórn til höfuðs ríkisstjórn Felipe Calderons. Erlent 8.9.2006 08:18
Hönnun nýrra turna í stað Tvíburaturnanna kynnt Bandarískir arkitektar kynntu í gær hönnun sína að þremur nýjum skýjakljúfum sem munu rísa við hliðina á staðnum þar sem Tvíburaturnarnir stóðu í New York. Sá hæsti turnanna verður 78 hæðir og verður þakið á þeim turni skorið í fjóra tígla sem verða lýstir upp að næturlagi. Erlent 8.9.2006 07:43
Aukinn herafli NATO til Afganistans? Yfirmenn Atlantshafsbandalagsins munu hittast í Varsjá í dag til að ræða málefni Afganistans og hvort beri að senda þangað aukinn herafla. Breskur hershöfðingi lét þau orð falla í gær að alþjóðlegt herlið ætti við ramman reip að draga í Afganistan og að átökin þar nú væru harðari en til að mynda í Írak. Erlent 8.9.2006 07:10
Nýtt myndband með bin Laden Arabíska fréttastöðin Al Jazeera hefur sýnt myndband sem sagt er vera af fundi Osama Bin Laden, leiðtoga al Kaída hryðjuverkasamtakanna, með nokkrum þeirra sem tóku þátt í hryðjuverkaárásunum á Bandaríkin ellefta september 2001. Erlent 7.9.2006 22:19
Lægir ekki öldurnar í Verkamannaflokknum Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, ætlar að afsala sér ráðherraembætti og leiðtogahlutverki í Verkamannaflokknum innan árs en vill ekki tímasetja brotthvarf sitt nánar að sinni. Stjórnmálaskýrendur segja yfirlýsingu Blairs ekki lægja öldurnar í flokknum. Erlent 7.9.2006 20:34
Barcelona ber merki á treyjunni í fyrsta sinn fyrir UNICEF Fótboltafélagið Barcelona, sem Eiður Smári Guðjohnsen leikur með, og UNICEF kynntu í dag samstarf um að bæta líf barna í þróunarlöndunum sem meðal annars felur í sér að í fyrsta skipti í 107 ára sögu Barcelona skartar félagið merki á treyjum sínum, en það er merki UNICEF. Erlent 7.9.2006 17:05
Verðlækkun á hráolíu Verð á hráolíu lækkaði lítillega á markaði í Bandaríkjunum í dag þrátt fyrir að olíubirgðir landinu hafi dregist saman á milli vikna. Verðið hefur lækkað um 12 prósent undanfarna mánuði en verðið á hráolíu nú hefur ekki verið lægra síðan í byrjun apríl. Viðskipti erlent 7.9.2006 16:20
Leita námamanna á Austur-Indlandi Björgunarmenn leita nú fimmtíu og þriggja námamanna sem sitja fasti í kolanámu á Austur-Indlandi. Sprenging varð í göngunum og óttast er að mennirnir hafi allir týnt lífi. Mennirnir eru grafnir um tvö hundruð metra niðri í jörðinni og litlar líkur sagðar á því að þeir finnist lifandi. Erlent 7.9.2006 16:03
Byggingakostnaður DR fór langt fram úr áætlun Kostnaður við byggingu nýs húss danska ríkisútvarpsins (DR) í Ørestaden í Kaupmannahöfn hefur farið 600 milljónir danskra króna eða tæplega 7,2 milljarða íslenskra króna fram úr kostnaðaráætlun. Fjármálastjóri útvarpsins sagði af sér í dag vegna málsins. Viðskipti erlent 7.9.2006 15:30
Næsta flokksþing það síðasta hjá Blair Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, tilkynnti rétt í þessu að næsta flokksþing Verkamannaflokksins, sem verður haldið í lok september verði hans síðasta sem leiðtogi flokksins. Þar með er ljóst að hann mun segja af sér sem forsætisráðherra en Blair vildi ekki gefa hvenær nákvæmlega hann stigi niður úr stól forsætisráðherra. Sagðist hann vilja ráða því sjálfur og tilkynna um það síðar. Erlent 7.9.2006 14:04
Yfirtstjórn hermála í hendur Íraka Bandaríkjamenn hafa fært yfirstjórn hermála í Írak í hendur forsætisráðherra landsins, Nouri Maliki. Frá þessu var greint á fréttavef BBC fyrir stundu. Maliki skrifaði undir samkomulag þessa efnis við athöfn í Bagdad í dag. Búist er við að sjóherinn og flugherinn verði fyrst undir stjórn Íraka en ekki liggur endanlega fyrir hversu hratt breytingarnar ganga í gegn. Erlent 7.9.2006 12:46
Óbreyttir stýrivextir í Bretlandi Stjórn Englandsbanka ákvað að loknum vaxtaákvörðunarfundi sínum í dag að halda stýrivöxtum óbreyttum í Bretlandi en þeir standa í 4,75 prósentum. Í rökstuðningi stjórnarinnar fyrir ákvörðuninni segir að þrátt fyrir hættu á aukinni verðbólgu þá hafi verð á helstu vöruflokkum, þar á meðal olíu, lækkað nokkuð síðustu vikurnar. Viðskipti erlent 7.9.2006 11:12
Búist við tilkynningu frá Blair eftir hádegið Tony Blair mun láta af embætti sem forsætisráðherra og leiðtogi Verkamannaflokksins í Bretlandi innan árs og mun tilkynna um það eftir hádegi. Erlent 7.9.2006 11:07
Lítil hækkun á olíuverði Verð á hráolíu hækkaði lítillega á helstu mörkuðum í dag eftir lækkanir í fyrstu viðskiptum dagsins. Lægst fór verðið í 67,41 bandaríkjadal á tunnu og hafði ekki verið lægra síðan í byrjun apríl. Sérfræðingar telja líkur á að olíuverðið geti lækkað um allt að 10 dali til viðbótar. Viðskipti erlent 7.9.2006 10:49
Hafnbanni aflétt í Líbanon í dag Ísraelar munu lyfta hafnbanni sínu á Líbanon klukkan sex í kvöld að íslenskum tíma. Þeir krefjast hins vegar að gulltryggt verði að Hisbollah-liðar geti ekki fyllt á vopnabirgðir sínar og munu þýsk herskip gegna lykilhlutverki í strandgæslu Líbanons. Erlent 7.9.2006 09:57
Nýjar höfuðstöðvar DR of dýrar Kostnaður við byggingu nýrra höfuðstöðva danska ríkisútvarpsins (DR) við Ørestaden í Kaupmannahöfn hefur farið 500 milljónir danskra króna, eða tæpa 6 milljarða íslenskar krónur, fram úr áætlun. Fyrirhugað er að flytja alla starfsemi útvarpsins í húsið í desember á þessu ári. Viðskipti erlent 7.9.2006 09:43
Ráðist á sjónvarpsfréttamann Sjónvarpsfréttamaður í San Diego þurfti að leggjast inn á sjúkrahús eftir að maður og kona sem hann var að fylgjast með fyrir sjónvarpsþátt réðust á hann, börðu og bitu. Fréttamaðurinn hafði komist á snoðir um umfangsmikið fasteignasvindl sem maðurinn stóð fyrir og var að taka viðtal við annan mann í tengslum við málið. Erlent 7.9.2006 08:35
Mikið um HIV smit hjá ungum körlum í Danmörku Fjöldi ungra manna sem hafa smitast af hiv er einn sá mesti í Danmörku síðan árið 1994. Politiken greinir frá því að um sé að ræða karlmenn undir 30 ára aldri sem hafi smitast af veirunni eftir kynmök með öðrum karlmanni. Erlent 7.9.2006 08:22
Búist við óbreyttum stýrivöxtum Stjórn Englandsbanka ákveður stýrivaxtastig í Bretlandi að loknum fundi sínum fyrir hádegi í dag. Stýrivextirnir standa nú í 4,75 prósentum. Greiningaraðilar búast almennt við óbreyttum vöxtum nú en hækkun síðar á árinu, jafnvel í nóvember. Viðskipti erlent 7.9.2006 08:22
Keypti og seldi fólki úldið kjöt Georg Bruner, 74 ára þýskur heildsali, fannst látinn heima hjá sér í Berlín í gær. Svo virðist sem hann hafi framið sjálfsmorð. Hann hafði orðið uppvís að því að selja gamalt kjöt í stórum stíl til 2.500 fyrirtækja í Þýskalandi og 50 að auki í Austurríki, Hollandi og fleiri nágrannaríkjum. Erlent 6.9.2006 21:56
Bush viðurkennir leynifangelsi George Bush Bandaríkjaforseti viðurkenndi í fyrsta skipti í gær að leynifangelsi hefðu verið rekin á vegum bandarísku leyniþjónustunnar. Hann sagði yfirheyrsluaðferðir leyniþjónustunnar mikilvægar en neitaði að fangar hafi verið pyntaðir. Erlent 7.9.2006 08:08
BAE selur hlutina í Airbus Stjórn breska félagsins British Aerospace (BAE) hefur samþykkt að selja 20 prósenta hlut sinn í evrópska flugvélaframleiðandanum Airbus til fransk-þýska félagsins EADS, stærsta hluthafa í Airbus, sem á 80 prósent hlutafjár fyrir. Kaupverð er talið nema 2,75 milljörðum evra eða tæplega 245 milljörðum íslenskra króna. Viðskipti erlent 7.9.2006 08:07
Andalæknar skrifa vottorð Hefðbundin afrísk læknisráð standa styrkum fótum í Simbabve og þótti það staðfest á dögunum þegar heilbrigðisráðherra landsins samþykkti að um fimmtán hundruð andalæknar og græðarar fengju hér eftir réttindi til að úrskurða um veikindi almennings. Þeir fá jafnframt leyfi til að gefa út vottorð þess efnis að fólk fái veikindafrí í vinnu. Erlent 6.9.2006 21:56
Þrýstingur eykst á Leijonborg Fram kom í gær að alls væru þrír starfsmenn sænska Þjóðarflokksins grunaðir um aðild að tölvunjósnum hjá Jafnaðarmannaflokknum og þrýstingur jókst á flokksformanninn að víkja. Hneykslið sagt geta ráðið úrslitum. Erlent 6.9.2006 21:56
Neyddi kvalara sinn til að halda upp á jól Natascha Kampusch rauf í gær þögnina í þremur viðtölum, þar sem hún tjáði sig um vistina hjá mannræningjanum Wolfgang Priklopil. Hún segist hafa látið sig dreyma um að höggva af honum hausinn og hugsaði stöðugt um flótta. Erlent 6.9.2006 21:56
Segir leynifangelsi nauðsynleg George W. Bush Bandaríkjaforseti viðurkenndi í gær í fyrsta sinn tilvist leynilegra fangelsa víða um heim, þar sem leyniþjónustan CIA hefur haldið föngum sem grunaðir eru um hryðjuverkastarfsemi. Erlent 6.9.2006 21:56
Dulbúin hótun í garð Bush Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, ítrekaði í gær tilboð sitt um viðræður við George W. Bush Bandaríkjaforseta. Hann sagði réttast að þær viðræður færu fram á vettvangi Sameinuðu þjóðanna í New York. Jafnframt sagði hann að sá sem hafnar boði hljóti ill örlög. Skilja mátti þetta sem dulbúna hótun til Bush. Þetta er ekki hótun frá mér. Þetta er hótun frá öllum alheiminum. Alheimurinn snýst gegn kúgun, sagði Ahmadinejad. Erlent 6.9.2006 21:56
Heilbrigðisráðherra segi af sér Yfir 80 alþjóðlegir vísindamenn og háskólaprófessorar fordæmdu stefnu Suður-Afríku hvað varðar eyðni og HIV, kölluðu hana gagnlausa og ósiðlega, og fóru fram á að heilbrigðisráðherra landsins segði af sér í bréfi sem þeir sendu forseta landsins, Thabo Mbeki, í gær. Erlent 6.9.2006 21:56
Þrjú tonn af kókaíni fundust Spænska og franska lögreglan gerðu þrjú tonn af hreinu kókaíni upptæk af seglskútu í síðustu viku. Skútan er skráð í Bretlandi og fjallaði breska ríkisútvarpið, BBC, um málið. Erlent 6.9.2006 21:56
Eftirlitssveitin lýsir ekki yfir stríði Norræna eftirlitssveitin, SLMM, mun ekki bregðast við beiðni Tamílatígra síðan á mánudaginn, en hún var þess efnis að skorið yrði úr um hvort eiginlegt stríð væri hafið á eyjunni og hvort vopnahléssamningurinn væri fallinn úr gildi. Erlent 6.9.2006 21:56