Erlent
317 318 319 320 321 322 323 324 325 … 334 ›
Átök við Gaza í dag Til átaka kom á milli ísraelskra hermanna og herskárra Palestínumanna á landamærunum við Gaza í dag. Ísraelsmenn réðust þá inn á svæði nærri borginni Khan Younis með skriðdreka og jarðýtur en þá mætti þeim áköf skothríð frá palestínskum skæruliðum. Erlent 1.7.2006 16:56
Sex tvíburapör á 32 klukkustundum Sá fáheyrði atburður gerðist á fæðingardeildinni á Sparrow-sjúkrahúsinu í Lansing í Michiganríki í Bandaríkjunum í vikunni að þar komu í heimin sex tvíburapör á aðeins 32 klukkstundum. Fyrstu tvíburarnir fæddust snemma á þriðjudagsmorguninn og svo fylgdu fimm í kjölfarið. Aðeins eitt stúlkupar var í þessum fríða hópi. Allar fæðingarnar gengu hratt og vel fyrir sig og heilsast bæði mæðrum og börnum vel. Ein móðirin fæddi tvo drengi sem voru 16 merkur hvor. Ekki er vitað hvort um heimsmet sé að ræða en starfsmenn Heimsmetabókar Guinness kanna nú málið. Erlent 1.7.2006 13:35
Discovery á loft í kvöld Góðar líkur eru á að geimferjunni Discovery verði skotið á loft frá Canaveral-höfða í Flórída í kvöld. Slæm veðurspá undanfarinna daga hefur batnað mikið og þrumuveðrið á svæðinu er nánast gengið niður. Erlent 1.7.2006 13:23
Gíslinn er enn á lífi Palestínskur aðstoðarráðherra segist hafa haft spurnir af því að líðan ísraelska gíslsins væri stöðug eftir að hann fékk í sig þrjú skotsár. Erlent 1.7.2006 10:12
Hátt í sjötíu týndu lífi Að minnsta kosti 66 biðu bana þegar bílsprengja sprakk á markaði í Bagdad, höfuðborg Íraks, í morgun. Þá var þingkonu úr hópi súnnía rænt af óþekktum byssumönnum. Erlent 1.7.2006 10:09
Deilt um erlent eignarhald Sala norsku fjölmiðlasamsteypunnar Orkla Media til breska fjölmiðlafyrirtækisins Mecom hefur hrundið af stað umræðu í Noregi um kosti og galla erlends eignarhalds á fjölmiðlum þar í landi. Erlent 30.6.2006 21:23
Telpurnar voru kyrktar Belgísku telpurnar tvær sem fundust látnar á miðvikudag í Belgíu eftir tæplega þriggja vikna leit, voru báðar myrtar, að sögn belgískra saksóknara. Þær voru báðar kyrktar og hafði eldri telpunni verið nauðgað fyrir dauða hennar. Líkin voru krufin á fimmtudag. Erlent 30.6.2006 21:24
Bangsarnir gerðir þyngri Árum saman hafa bandarísk börn bætt á sig sífellt fleiri aukakílóum og verður þessi þróun heilbrigðiskerfinu þar í landi æ þyngri byrði. Erlent 30.6.2006 21:24
Beltið reyndist rangt tengt Sprengjubeltið sem fjarlægt var af manni í Stokkhólmi í Svíþjóð um síðustu helgi var rangt tengt og hefði því ekki getað sprungið í loft upp, að sögn sænsks saksóknara. Erlent 30.6.2006 21:23
Gagnrýnandi íslamstrúar varð ríkisstjórn að falli Hollenska ríkisstjórnin hefur sagt af sér eftir þriggja ára setu vegna ágreinings um mál þingkonunnar Ayaan Hirsi Ali, sem svipt var ríkisborgararétti sínum nýverið. Sviptingin hefur verið dregin til baka, en Hirsi Ali er farin úr landi. Erlent 30.6.2006 21:23
Heiðruðu konung rokksins Opinberri kveðjuheimsókn Junichiros Koizumi, forsætisráðherra Japans, til Bandaríkjanna lauk á léttari nótunum, þegar George W. Bush Bandaríkjaforseti bauð þessum japanska samherja sínum í heimsókn til Gracelands, seturs Elvis Presley. Erlent 30.6.2006 21:23
Tilraunaskot "óásættanlegt" Junichiro Koizumi, forsætisráðherra Japans, og George W. Bush, forseti Banda-ríkjanna, hittust á fimmtudag og vöruðu Norður-Kóreumenn við því að skjóta langdrægri eldflaug á loft í tilraunaskyni. Hótaði Koizumi Norður-Kóreumönnum "ýmsum þrýstingi" ef af skotinu yrði, án þess að útskýra orð sín nánar. Bush sagði að mögulegar tilraunir með eldflaugar í Norður-Kóreu væru "óásættanlegar". Erlent 30.6.2006 21:23
Ekkert lát á árásum Ísraela á Gazaströndina Ekkert lát er á árásum Ísraela á Gazaströndina en í morgun lögðu þeir innanríkisráðuneyti Palestínu í rúst, svo og skrifstofur Fatah-hreyfingarinnar. Ismail Haniyeh, forsætisráðherra palestínsku heimastjórnarinnar, segir árásirnar torvelda frelsun ísraelska gíslsins sem er í haldi skæruliða. Erlent 30.6.2006 20:08
Hluthafar styðja yfirtökutilboð Mittal Steel Rúmur helmingur hluthafa í evrópska stálframleiðandanum Arcelor var mótfallinn samruna við rússneska stálfyrirtækið Severstal á hluthafafundi fyrirtækisins í dag. Meirihluti hluthafa er hins vegar fylgjandi yfirtökutilboði Mittal Steel í fyrirtækið. Viðskipti erlent 30.6.2006 13:06
14 drukknað í flóðum í Kína Að minnsta kosti 14 hafa druknað og jafn margir slasast í flóðum í suð vestur hluta Kína síðustu tvo daga. Mikið hefur rignt á svæðinu og hefur úrkoma mælst 10-15 cm. Erlent 30.6.2006 10:08
Bauð hæst í mat með Buffett Kvöldverðarboð með bandaríska auðkýfingnum Warren Buffett fór á 620.100 Bandaríkjadali, jafnvirði 47,6 milljónir íslenskra króna, á uppboðsvefnum e-bay í gær. Þetta er hæsta boð sem einstaklingur hefur greitt fyrir að snæða með „vitringnum frá Omaha“, sem á dögunum ákvað að láta 85 prósent af auðæfum sínum renna til góðgerðarmála. Viðskipti erlent 30.6.2006 12:18
Rauði krossinn óskar eftir leyfi til að flytja hjálpargögn á Gaza Alþjóða Rauði krossinn hefur óskað eftir því að Ísraelar leyfi flutning á nauðsynlegum hjálpargöngum til íbúa á Gaza-svæðinu. Talsmaður samtakanna segir Ísraelum skylt, samkvæmt alþjóðalögum, að tryggja íbúum á svæðinu nauðsynleg lyf og önnur hjálpargögn. Erlent 30.6.2006 10:04
Bíræfið rán í Grimsby Bíræfði og þaulskipulagt rán var framið í frystigeymslu í Grimsby um síðustu helgi og er ræningjanna enn leitað, að því er fram kemur á vefsíðu Grimsby. Eftir að hafa barið næturvörð og læst framkvæmdastjóra frystigeymslunnar og son hans inni, lestuðu ræningjarnir fimm stolna frystibíla með frystum fiski, að andvirði 140 milljónir króna og komust undan. Erlent 30.6.2006 09:53
Ökumenn kúgaðir í Peking Lögreglan í Peking í Kína varaði í gær ökumenn við óvenjulegri fjárkúgunarstarfsemi sem hópur manna hefur orðið uppvís að þar í borg. Þeir hafa nefnilega stundað það að valda árekstrum við ökumenn utanbæjarbíla og heimta svo háar upphæðir í skaðabætur. Erlent 30.6.2006 09:50
Ferð Discovery verður ekki frestað Stjórnendur bandarísku Geimferðastofnunarinnar, NASA, segja að hægt verði að skjóta Discovery-geimflauginni á loft um laugardaginn eins og fyrirhugað er. Þeir segjast vissulega þurfa að taka tillit til veðurs en það eigi þó ekki að tefja áæltað geimskot. Þetta verður þá í fyrsta sinn í tæpt ár sem flauginni er skotið á loft. Erlent 30.6.2006 09:47
Bush vill nýjan herrétt Bush Bandaríkjaforseti útilokar ekki að mál fanga í Guantanamo-fangabúðunum á Kúbu fari fyrir herrétt þó Hæstiréttur Bandaríkjanna hafi komist að þeirri niðurstöðu að skipan slíks dómstóls sé ólögmæt. Úrskurður réttarins frá í gær er sagður mikið áfall fyrir Bandaríkjaforseta. Erlent 30.6.2006 09:43
Stýrivextir hækka í Bandaríkjunum Gengi hlutabréfa á Wall Street í Bandaríkjunum hækkaði talsvert í kjölfar þess að Seðlabanki Bandaríkjanna hækkaði stýrivexti í gær um 25 punkta í 5,25 prósentur. Þetta er 17. stýrivaxtahækkunin í Bandaríkjunum en Ben Bernanke, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, gaf til kynna að hækkanaferlið væri brátt á enda. Viðskipti erlent 30.6.2006 10:10
Nýtt myndband frá bin Laden Osama bin Laden, leiðtogi al Kaída hryðjuverkasamtakanna, vottar Abu Musab al-Zarqawi, látnum leiðtoga samtakanna í Írak, virðingu sína á nýju myndbandi sem birt var á vefsíðu íslamskra öfgamanna í nótt. (LUM) Þar hrósar hann al-Zarqawi og ver árásir hans á óbreytta borgara. Hann krefst þess einnig að bandarísk stjórnvöld afhendi ættingjum al-Zarqawi líkið af honum. Myndbandið sýnir ekki nýjar myndir af bin Laden heldur er þar gamla mynd af honum að finna, auk myndar af al-Zarqawi. Nýjar myndir hafa ekki verið teknar af bin Laden síðan í október 2004. Ekki hefur fengist formlega staðfest að þetta sé rödd bin Laden sem heyrist á myndbandinu en það er þó talið líklegt. Bandaríska leyniþjónustan, CIA, fer nú yfir myndbandið sem er það fjórða frá bin Laden í ár reynist það ósvikið. Erlent 30.6.2006 09:33
Ríkisstjórn Hollands víkur Forsætisráðherra Hollands, Jan Peter Balkenende, tilkynnti í gær um afsögn ríkisstjórnar landsins, eftir að ráðherrar í einum flokka samsteypustjórnarinnar sögðu sig úr henni. Mikið ósætti hefur verið innan stjórnarinnar eftir að ráðherra innflytjendamála svipti þingkonuna fyrrverandi Hrisi Ali ríkisborgararétti á þeim forsendum að hún hefði logið til um nafn þegar hún kom til landsins árið 1992. Erlent 30.6.2006 08:42
Mannfall við landamærin í Kasmír Indverskir hermenn skutu átta menn til bana þegar þeir reyndu að smygla sér yfir landamæri indverska og pakistanska hluta Kasmírs-héraðs í morgun. Talsmaður hersins segir þá hafa verið íslamska vígamenn. Erlent 30.6.2006 09:24
Árásum á Gaza haldið áfram Ísraelskar herþotur gerðu í nótt árásir á ýmis skotmörk á Gaza-svæðinu, þar á meðal innanríkisráðuneyti heimastjórnar Palestínumanna og skrifstofur Fatah-hreyfingar Abbas, forseta, í Gaza-borg. Einn Palestínumaður er sagður hafa fallið. Erlent 30.6.2006 08:15
Konur kjósa í fyrsta sinn Þingkosningar voru haldnar í Kúveit í gær og var þetta í fyrsta sinn sem konur fengu að kjósa í hinu olíuríka arabalandi. Kjörstaðir voru kynskiptir. Erlent 29.6.2006 21:11
Fangaréttarhöld eru lögleysa Hæstiréttur Bandaríkjanna komst í gær að þeirri niðurstöðu að stríðsglæparéttarhöld yfir föngum sem hafa verið í haldi í bandarískum fangabúðum á Kúbu, brjóti bæði í bága við bandarísk herlög og Genfarsáttmálana. Erlent 29.6.2006 21:11
Ríkisstjórnir heims axli meiri ábyrgð Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hvatti á mánudag ríkisstjórnir heims til að gæta vopnabúra sinna betur og setja aukinn kraft í að eyða ólöglegum vopnum. Á alþjóðlegri ráðstefnu um ólöglega vopnasölu sem nú stendur yfir sagði Annan vopnasmyglara, þjófa og spillta embættismenn höfuðandstæðinga þeirra sem vilja koma böndum á ólöglega vopnasölu í heiminum, en þó mættu ríkisstjórnir heimsins leggja mun meira af mörkum til að sporna við henni. Erlent 29.6.2006 21:11
Búast við svari frá Íransstjórn Bandaríkin, Rússland og önnur iðnríki í hópi átta stærstu iðnríkja heims sögðust í gær vænta þess að írönsk stjórnvöld veiti svar í næstu viku við tilboði stórveldanna til lausnar deilunni um kjarnorkuáform Írana. Erlent 29.6.2006 21:11
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent