Erlent Krefjast afsökunarbeiðni lögreglu Áætlað er að þúsund manns hafi tekið þátt í mótmælagöngu í austurhluta Lundúna í gær til að krefjast formlegrar afsökunarbeiðni frá bresku lögreglunni eftir áhlaup lögreglumanna í byrjun mánaðarins vegna gruns um hryðjuverkastarfsemi. Erlent 19.6.2006 09:24 Líkt við örkina hans Nóa Norðmenn eru byrjaðir að byggja eins konar dómsdagsbyrgi, sem grafið verður inn í frosnar fjallshlíðar Svalbarða, og á að geyma plöntufræ hvaðanæva að úr veröldinni til að hægt sé að hefja ræktun á ný ef stórslys á borð við miklar loftslagsbreytingar eða kjarnorkustríð skyldi stefna uppskeru á jörðinni í hættu Erlent 18.6.2006 21:37 Nakinn maður eltur og skotinn
Eru að friða kjósendur sína Erlent 17.6.2006 21:19 Hvað er leiðtogaráð ESB? Í leiðtogaráði Evrópusambandsins (á ensku: European Council) sitja ríkisstjórnaleiðtogar aðildarríkjanna auk forseta framkvæmdastjórnar ESB. Leiðtogaráðið leggur línurnar og er driffjöður í hinu pólitíska samstarfi aðildarríkjanna. Það tekur ákvarðanir í mikilvægustu málunum og þeim málum sem fagráðherrarnir hafa ekki náð samkomulagi um. Erlent 17.6.2006 21:19 Íransforseti fær kaldar kveðjur Yfir þúsund manns tóku þátt í friðsömum mótmælum gegn forseta Írans um helgina þegar fótboltalandslið Írans lék annan leik sinn á heimsmeistaramótinu í Þýskalandi. Styr hefur staðið um forsetann, Mahmoud Ahmadinejad, vegna ítrekaðra ummæla hans í fjölmiðlum þar sem hann hefur afneitar helförinni gegn gyðingum í síðari heimsstyrjöldinni og efast um tilverurétt Ísraelsríkis. Erlent 17.6.2006 21:19 « ‹ 323 324 325 326 327 328 329 330 331 … 334 ›
Krefjast afsökunarbeiðni lögreglu Áætlað er að þúsund manns hafi tekið þátt í mótmælagöngu í austurhluta Lundúna í gær til að krefjast formlegrar afsökunarbeiðni frá bresku lögreglunni eftir áhlaup lögreglumanna í byrjun mánaðarins vegna gruns um hryðjuverkastarfsemi. Erlent 19.6.2006 09:24
Líkt við örkina hans Nóa Norðmenn eru byrjaðir að byggja eins konar dómsdagsbyrgi, sem grafið verður inn í frosnar fjallshlíðar Svalbarða, og á að geyma plöntufræ hvaðanæva að úr veröldinni til að hægt sé að hefja ræktun á ný ef stórslys á borð við miklar loftslagsbreytingar eða kjarnorkustríð skyldi stefna uppskeru á jörðinni í hættu Erlent 18.6.2006 21:37
Hefndarmorð á unglingum Fimm unglingar voru skotnir til bana í New Orleans í Bandaríkjunum í gær, og er það versta fjöldamorð sem framið hefur verið í sögu borgarinnar. Fórnarlömbin, fimm ungir piltar á aldrinum 16 til 19 ára, fundust í og við bíl þeirra eftir að morðingjarnir höfðu skotið fjölmörgum skotum á bílinn með þeim afleiðingum að allir í honum létust. Erlent 18.6.2006 21:37
Ævintýraleg þorskveiði Þorskurinn virðist vera kominn aftur í hafið við Grænland eftir 15 ára bið, að sögn vefútgáfu norska blaðsins Fiskeribladet, og hann lítur vel út sá sem veiðist. "Ævintýraleg veiði," segir Leivur á Rógvi skipstjóri. Erlent 18.6.2006 21:37
Discovery út í geiminn 1. júlí Bandaríska geimferðastofnunin NASA ákvað á laugardag að skjóta skyldi geimferjunni Discovery út í geim þann 1. júlí næstkomandi. Ákvörðunin er tekin þvert á ráðleggingar sérfræðinga sem segja stofnunina ekki fyllilega hafa leyst þau vandamál sem urðu til þess að geimferjan Columbia fórst árið 2003 með þeim afleiðingum að sjö geimfarar fórust. Erlent 18.6.2006 21:37
Sátt milli fylkinga í Palestínu hugsanleg Viðræður eru í gangi á milli Hamas-samtakanna og Fatah-hreyfingarinnar í Palestínu um að tilvist Ísraelsríkis verði viðurkennd en Hamas-samtökin hafa hingað til neitað að gera það. Samningamenn eru bjartsýnir á að sátt náist. Erlent 18.6.2006 21:37
Steypa forseta ekki af stóli Leiðtogi íslömsku skæruliðahreyfingarinnar sem lagði undir sig Mogadishu, höfuðborg Sómalíu, í seinustu viku hefur heitið því að samtök hans muni ekki steypa Abdullah Yusuf, forseta Sómalíu, af stóli. Fréttir hafa borist af innrás eþíópísks herliðs sem koma átti bráðabirgðastjórn Yusuf til aðstoðar en því neita Eþíópíumenn. Erlent 18.6.2006 21:37
Stjórnarandstaðan sigraði Stjórnarandstaðan í Slóvakíu hrósaði sigri í þingkosningunum sem fram fóru þar í fyrradag. Forseti landsins hefur falið Robert Fico, leiðtoga vinstriflokksins Smer, stjórnarmyndun, en flokkurinn náði ekki hreinum meirihluta og verður því að mynda stjórn í samráði við aðra flokka. Erlent 18.6.2006 21:37
Mótvægi við Bandaríkin Mahmoud Ahmadinejad Íransforseti hvatti Kínverja, Rússa og aðrar Asíuþjóðir til að sameina efnahagslega og pólitíska krafta sína til mótstöðu við áhrif Bandaríkjanna. Erlent 18.6.2006 21:37
Hættu við 45 dögum áður Yfirvöldum í Bandaríkjunum bárust upplýsingar um að hryðjuverkasamtökin al-Kaída hefðu í hyggju að sleppa banvænu gasi í neðanjarðarlestakerfi New York árið 2003, en hætt hafi verið við árásina 45 dögum áður en láta átti til skarar skríða. Þetta kemur fram í bókarútdrætti sem tímaritið Time birti nýlega á vef sínum. Erlent 18.6.2006 21:37
Lífstíðardómur fyrir morð Tveir Bretar voru í gær dæmdir í lífstíðarfangelsi fyrir morð á samkynhneigðum barþjóni í London í október í fyrra. Frá þessu er greint á fréttavef BBC. Erlent 18.6.2006 21:37
Hitti forsætisráðherra Dana Kofi Annan, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, hitti Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Dana, á fundi í Danmörku í gær en þar var Annan í dagsheimsókn. Ekki er vitað hvað þeim fór á milli en líklegt er að málefni í Írak og Súdan hafi borið á góma ásamt hlutverki SÞ í Írak. Frá þessu greinir skrifstofa danska forsætisráðherrans. Erlent 18.6.2006 21:37
Tveir drengir í haldi lögreglu Tveir ungir piltar eru í gæsluvarðhaldi í Kent í Bretlandi vegna morðs á sextán ára pilti sem framið var þar á föstudagskvöld. Piltarnir, sem eru sextán og átján ára gamlir, voru handteknir í fyrradag og voru þeir yfirheyrðir í dag. Erlent 18.6.2006 21:37
Gagnrýna löggæslu landsins Yfir tvö hundruð manns komu saman á torgi í Moskvu á sunnudaginn til að gagnrýna löggæslustofnanir landsins og krefjast þess að lögreglan geri meira til að verja Rússa. Samkoman var skipulögð af fylgjendum Garrys Kasparov, fyrrverandi heimsmeistara í skák, sem hætti keppni á seinasta ári til að hefja pólitískt stríð gegn ríkisstjórn Vladimírs Pútín, forseta landsins, og vaxandi valdníðslu í Rússlandi. Erlent 18.6.2006 21:37
Paul orðinn 64 ára Síðustu mánuðir hafa ekki verið þeir sælustu í lífi Pauls McCartneys en í dag hafði hann þó ástæðu til að gleðjast. 64 ára afmælisdagurinn, sem hann söng svo eftirminnilega um hér um árið, er loksins runninn upp. Erlent 18.6.2006 17:46
Ólgan vex í Sómalíu Ástandið í Sómalíu er orðið svo viðkvæmt að fulltrúar Sameinuðu þjóðanna óttast að á hverri stundu geti borgarastyrjöld brotist þar út á ný. Eþíópískt herlið er í viðbragðsstöðu við sómölsku landamærin, tilbúið að verja bráðabirgðastjórnina í landinu. Erlent 18.6.2006 17:51
Örkin hans Nóa á Svalbarða Á leiðtogafundi Norðurlandanna sem fram fer á Svalbarða á morgun verður hornsteinn lagður að neðanjarðarhólfi sem geyma á fræ þriggja milljóna plöntutegunda alls staðar að úr heiminum. Erlent 18.6.2006 17:43
Discovery út í geim þvert á ráðleggingar Bandaríska geimferðastofnunin NASA hefur ákveðið að skjóta geimferjunni Discovery út í geiminn 1. júlí næstkomandi. Ákvörðunin er þvert á ráðleggingar ýmissa sérfræðinga stofnunarinnar sem segja ferjuna enn ekki nægilega örugga til geimferða. Erlent 18.6.2006 16:18
Tveir í haldi vegna morðs á ungling í Bretlandi Tveir piltar eru í haldi í lögreglunnar í Kent í Bretlandi vegna morðs á sextán ára dreng þar um slóðir á föstudagskvöldið. Piltarnir sem eru í haldi lögreglu eru 16 og 18 ára gamlir og voru handteknir seint í gærkvöld og var ætlunin að yfirheyra þá í dag. Erlent 18.6.2006 14:41
Fjórar stúlkur létust eftir gassprengingu Fjórar stúlkur létust og fjölmargir særðust þegar gassprenging varð í skóla í borginni Herat í Afganistan í morgun. Mikil skelfing greip um sig þegar gasketill í eldhúsi skólans sprakk og myndaðist þá öngþveiti þar sem telpurnar, sem voru á aldrinum 6-9 ára, tróðust undir. Erlent 18.6.2006 14:24
Þjóðaratkvæðagreiðsla í Katalóníu í dag Þjóðaratkvæðagreiðsla fer fram í dag í Katalóníu á Spáni um aukið sjálfstæði héraðsins. Búist er að við Katalónar samþykki tillögurnar en samkvæmt þeim fær héraðsstjórnin stærri hlut af skatttekjum ríkisins og heimastjórn í mikilvægum málum, til dæmis á sviði samgangna og innflytjendamála. Erlent 18.6.2006 12:10
Fimm unglingar skotnir í New Orleans Fimm unglingar voru skotnir til bana í New Orleans í Bandaríkjunum í gær. Þetta er versta fjöldamorð í sögu borgarinnar. Erlent 18.6.2006 11:57
Ætla ekki að steypa forsetanum af stóli Leiðtogi íslömsku skæruliðahreyfingarinnar sem lagði undir sig Mogadishu, höfuðborg Sómalíu, í síðustu viku hefur heitið því að samtök hans muni ekki steypa Abdullah Yusuf, forseta landsins, af stóli. Erlent 18.6.2006 09:52
Kvartettinn samþykkir neyðaraðstoð fyrir Palestínumenn Bandaríkin, Rússland, Sameinuðu þjóðirnar og Evrópusambandið, eða kvartettinn svonefndi hefur samþykkt tilboð þeirra síðastnefndu um neyðaraðstoð til handa Palestínumönnum án milligöngu Hamas-stjórnarinnar. Erlent 18.6.2006 09:51
Kveðst saklaus af hórmangi Ítalski konungssonurinn, Victor Emmanuel, var handtekinn á föstudag vegna gruns um glæpsamlegt athæfi. Er hann sakaður um spillingu í tengslum við spilavítisrekstur í Sviss og fyrir að hafa ráðið ítalskar vændiskonur til starfa á vegum þess. Erlent 17.6.2006 21:19
Bangsi á flótta Um sunnanvert Þýskaland og í Austurríki standa leitarmenn í ströngu við að finna bjarndýr sem er á flótta. Björninn var næstum unninn aðfaranótt föstudags, en komst naumlega undan í náttmyrkrinu. Upphaflega átti að skjóta bangsa en dýravinir brugðust skjótt við og komu í veg fyrir það. Nú eru einungis svefnlyf í byssunum. Erlent 17.6.2006 21:19
Hvað er leiðtogaráð ESB? Í leiðtogaráði Evrópusambandsins (á ensku: European Council) sitja ríkisstjórnaleiðtogar aðildarríkjanna auk forseta framkvæmdastjórnar ESB. Leiðtogaráðið leggur línurnar og er driffjöður í hinu pólitíska samstarfi aðildarríkjanna. Það tekur ákvarðanir í mikilvægustu málunum og þeim málum sem fagráðherrarnir hafa ekki náð samkomulagi um. Erlent 17.6.2006 21:19
Íransforseti fær kaldar kveðjur Yfir þúsund manns tóku þátt í friðsömum mótmælum gegn forseta Írans um helgina þegar fótboltalandslið Írans lék annan leik sinn á heimsmeistaramótinu í Þýskalandi. Styr hefur staðið um forsetann, Mahmoud Ahmadinejad, vegna ítrekaðra ummæla hans í fjölmiðlum þar sem hann hefur afneitar helförinni gegn gyðingum í síðari heimsstyrjöldinni og efast um tilverurétt Ísraelsríkis. Erlent 17.6.2006 21:19
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent