Ástin á götunni
291 292 293 294 295 296 297 298 299 … 334 ›
Henry verður boðinn risasamningur Peter Hill-Wood, stjórnarformaður Arsenal, segir að félagið hafi í hyggju að bjóða Thierry Henry stærsta samning í sögu félagsins ef hann fellst á að vera áfram hjá félaginu. Samningurinn myndi hljóða upp á fjögur ár og 100 þúsund pund á viku. Sport 23.10.2005 15:03
Finnan ekki ákærður Varnarmaðurinn Steve Finnan verður ekki ákærður fyrir manndráp af gáleysi eftir að mál hans hefur verið tekið fyrir af saksóknara. Finnan lenti í árekstri við áttræðan mann í janúar á þessu ári, með þeim afleiðingum að maðurinn lést á sjúkrahúsi skömmu síðar. Sport 23.10.2005 15:03
Sérfræðingar óttast enskar bullur Hollenskur sérfræðingur sem hefur að atvinnu að rannsaka fótboltabullur, segir að þrátt fyrir þokkalega hegðun stuðningsmanna enska landsliðsins í knattspyrnu á síðustu tveimur stórmótum, stafi enn hætta af enskum fótboltabullum og bendir á að þær verði undir smásjánni á HM í Þýskalandi næsta sumar. Sport 23.10.2005 15:03
Fær Pleat stöðuhækkun? David Pleat hefur strax verið sterklega orðaður við stöðu yfirmanns knattspyrnumála hjá Portsmouth, eftir að Velimir Zajec sagði starfi sínu lausu eftir aðeins ellefu mánuði í starfi. Sport 23.10.2005 15:03
Meiðsli í herbúðum Englendinga Nú hefur verið staðfest að Steven Gerrard mun ekki verða með Englendingum í leiknum gegn Pólverjum um efsta sætið í sjötta riðlinum í undankeppni HM, en auk hans verða þeir Ashley Cole, Sol Campell og David Beckham frá vegna meiðsla og leikbanns. Sport 23.10.2005 15:03
Potsdam leiðir 2-1 í hálfleik Þýska stórliðið Potsdam hefur 2-1 forystu gegn Val í fyrri leik liðanna í 8 liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða á Laugardalsvelli, en nú er hálfleikur í viðureigninni. Fyrsta mark leiksins var sjálfsmark Valsstúlkna, en Guðný Óðinsdóttir náði að jafna metin á 36. mínútu. Þær þýsku komust svo yfir rétt fyrir lok hálfleiksins með glæsilegu marki. Sport 23.10.2005 15:03
Gallas vill fara frá Chelsea Franski varnarmaðurinn William Gallas hjá Chelsea hefur gefið það út að hann muni jafnvel fara frá liðnu þegar samningur hans rennur út eftir næsta keppnistímabil, því hann segist þurfa nýja áskorun áður en hann leggur skóna á hilluna. Sport 23.10.2005 15:03
Sigurður til Grindavíkur? Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins mun Sigurður Jónsson taka við af Milan Stefán Jankovic sem þjálfari meistaraflokks Grindavíkur í knattspyrnu. Sigurður stýrði Víkingum í sumar með góðum árangri og kom liðinu upp í Landsbankadeildina þrátt fyrir harða samkeppni frá KA-mönnum. Sport 23.10.2005 15:03
Sven-Göran bjartsýnn Sven-Göran Eriksson landsliðsþjálfari Englands segir að liðið geti vel orðið heimsmeistari í Þýskalandi ef það verður heppið varðandi meiðsli lykilmanna. Enska landsliðið tryggði sér farseðilinn til Þýskalands um helgina eftir að Holland bar sigurorð af Tékklandi. Sport 23.10.2005 15:03
Damien Duff meiddur Írski landsliðsmaðurinn Damien Duff verður frá keppni í nokkrar vikur vegna hnémeiðsla sem hann varð fyrir í leiknum gegn Kýpur á laugardaginn og missir því af leiknum mikilvæga gegn Sviss á miðvikudag. Sport 23.10.2005 15:03
Valsstúlkur kjöldregnar af Potsdam Kvennalið Vals var tekið í kennslustund af Evrópumeisturum félagsliða, Potsdam frá Þýskalandi, á Laugardalsvelli í dag. Eftir að leikurinn var nokkuð jafn í fyrri hálfleik, opnaðist fyrir allar flóðgáttir hjá Val í þeim síðari og niðurstaðan 8-1 sigur þýska liðsins. Sport 23.10.2005 15:03
Þær þýsku nýttu færi sín Þýsku Evrópumeistararnir í Potsdam sigrðu Valsstúlkur á Laugardalsvelli 8-1 í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða. Margrét Lára Viðarsdóttir átti stórleik í framlínu Vals. Sport 23.10.2005 15:03
Guðjón æfur eftir tapið í gær Guðjón Þórðarson, stjóri Notts County, var skiljanlega ekki kátur með sína menn eftir fyrsta tap liðsins á heimavelli á leiktíðinni gegn Boston United í gær og leikmenn hans eiga ekki von á góðu, því hann segist ætla að eyðileggja helgina fyrir þeim. Sport 23.10.2005 15:03
Englendingar sigruðu Austurríki Englendingar unnu tilþrifalítinn en mikilvægan sigur á Austurríkismönnum í 6. riðli undankeppni HM í Manchester í dag, en það var Frank Lampard sem skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrnu á 25. mínútu leiksins, en enska liðið lék manni færra frá 59. mínútu, eftir að fyrirliðanum David Beckham var vikið af leikvelli. Sport 23.10.2005 15:03
Króatar í toppsætið í 8. riðli Króatar skutust í kvöld í efsta sæti 8. riðilsins í undankeppni HM þegar þeir lögðu Svía 1-0 á heimavelli sínum. Það var Srna sem skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu á 56. mínútu. Fyrr um daginn sigruðu Búlgarir Ungverja 2-0 með mörkum frá Berbatov og Lazarov. Sport 23.10.2005 15:03
Beckham óhress með rauða spjaldið David Beckham var ekki sáttur við að vera rekinn af leikvelli í leiknum gegn Austurríki nú áðan og sagði bæði gulu spjöldin sem hann fékk hafa verið mjög strangir dómar. Sven-Göran Eriksson tók í sama streng, en var sáttur við sigurinn. Sport 23.10.2005 15:03
Óvíst með Auðun "Það er farið að líta betur út með Gunnar Heiðar en það er enn óvissa með Auðun fyrir þennan leik gegn Svíþjóð," sagði Logi Ólafsson landsliðsþjálfari í gær, rétt áður en haldið var til Svíþjóðar. Sport 23.10.2005 15:03
Beckham sá rautt David Beckham, fyrirliði enska landsliðsins, fékk að líta rauða spjaldið á 59. mínútu leiksins við Austurríki, eftir að hafa fengið að líta sitt annað gula spjald. Dómurinn var nokkuð strangur, því austurríski leikmaðurinn kryddaði brot Beckham nokkuð vel og fiskaði hann í raun útaf. Staðan í leiknum er enn 1-0 fyrir England. Sport 23.10.2005 15:03
Enskir geta þakkað Hollendingum Englendingar gátu leyft sér að fagna í gærkvöldi eftir sigur liðsins á Austurríki og enn fremur eftir sigur Hollands á Tékklandi. Þau úrslit þýddu að bæði Pólland og England eru komin áfram á HM þar sem þau tvö lið sem ná bestum árangri í 2. sæti riðlanna komast beint áfram. Sport 23.10.2005 15:03
Hollendingar skutu England á HM Hollendingar gerðu Englendingum stóran greiða í dag þegar þeir lögðu Tékka 2-0 á útivelli, en sigur Hollendinga þýðir að enska liðið er öruggt með sæti á HM, hvort sem það endar í fyrsta eða öðru sæti riðils síns. Sport 23.10.2005 15:03
Englendingar komnir yfir Englendingar eru komnir yfir gegn Austurríkismönnum í undankeppni HM, en leikurinn fer fram á Old Trafford í Manchester. Það var Frank Lampard sem skoraði markið úr vítaspyrnu á 25. mínútu eftir að brotið hafði verið á Michael Owen í teignum. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn. Sport 23.10.2005 15:03
Toshack ánægður með sína menn John Toshack, landsliðsþjálfari Wales, hrósaði sínum mönnum fyrir góðan baráttuanda þegar liðið lagði Norður-Íra 3-2 í hörku leik í Belfast í dag, en Ryan Giggs skoraði sigurmark Wales úr aukaspyrnu eftir að þeir höfðu misst niður tveggja marka forystu sína. Sport 23.10.2005 15:03
Skotar töpuðu illa og eru úr leik Vonir Skota um að komast í lokakeppni HM í Þýskalandi eru formlega úr sögunni eftir að liðið tapaði illa 1-0 á heimavelli fyrir Hvít-Rússum í dag. Það var Vitaly Kutuzov sem skoraði eina mark leiksins, en þegar Norðmenn sigruðu svo Moldavíu 1-0 síðar í kvöld, var ljóst að Skotar væru dottnir út úr myndinni. Sport 23.10.2005 15:03
Írar halda enn í vonina Írar halda enn í vonina um að komast á HM næsta sumar, en þeir lögðu Kýpur 1-0 á útivelli í dag. Það var framherji Sunderland, Stephen Elliot sem skoraði eina mark leiksins strax á sjöttu mínútu leiksins. Írar geta þó þakkað markverði sínum Shay Given sigurinn, því hann varði stórkostlega í leiknum og þar á meðal vítaspyrnu frá heimamönnum. Sport 23.10.2005 15:03
Fjórir nýliðar frá Afríku á HM Mikil dramatík var í Afríkuriðlum undankeppni HM í dag, en eftir leiki dagsins var ljóst að þrjú lönd úr álfunni færu á heimsmeistaramótið í fyrsta skipti í sögunni. Þetta eru Togo, Gana, Fílabeinsströndin og Angóla. Sport 23.10.2005 15:03
Pamarot klár í slaginn með Spurs Franski bakvörðurinn Noe Pamarot er nú farinn að æfa á fullu með liði Tottenham Hotspurs, eftir að hafa verið meiddur á hné síðan í apríl í vor. "Ég er búinn að vera lengi frá og því var það sérstaklega ánægjulegt að ná að fara í gegn um heila æfingu," sagði Pamarot. Sport 23.10.2005 15:03
Valur mætir Potsdam í dag Valsstúlkur mæta í dag þýska liðinu Potsdam í átta liða úrslitum Evrópukeppninnar í knattspyrnu en leikurinn fer fram Laugardalsvelli. Ljóst er að lið Vals þarf að eiga góðan leik til þess að leggja þýska liðið að velli þar sem það er án efa eitt það sterkasta í Evrópu um þessar mundir. Sport 23.10.2005 15:03
Pólverjar komnir yfir Pólverjar eru komnir yfir í fyrsta sinn í leiknum við Íslendinga í Varsjá. Það var Smolarek sem skoraði markið á 64. mínútu eftir að hann fékk laglega sendingu innfyrir vörn íslenska liðsins og átti ekki í vandræðum með að skora framhjá Kristáni Finnbogasyni í markinu. Þetta var annað mark Pólverja á aðeins átta mínútum. Sport 23.10.2005 15:03
Arsenal íhugar kaup á miðjumanni Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, er á höttunum eftir miðjumanninum Hossam Ghaly hjá Feyenoord í Hollandi. Hossam er 23 ára gamall Egypti og hefur hann viðurkennt að það væri draumur fyrir sig að ganga í raðir enska liðsins. Sport 23.10.2005 15:02
Pólverjar jafna Það tók Pólverja aðeins tíu mínútur að jafna leikinn gegn íslenska liðinu í vináttulandsleik þjóðanna í Varsjá. Þar var að verki Krzynowek, eftir snarpa sókn heimamanna. Sport 23.10.2005 15:02