Box

Hopkins: Loksins fæ ég möguleika á að hefna mín
Gömlu hnefaleikakempurnar Roy Jones Jnr og Bernard Hopkins mætast loks aftur í hringnum 3. apríl í Las Vegas í Bandaríkjunum.

Mayweather: Hatton ætti bara að leggja hanskana á hilluna
Hnefaleikamaðurinn málglaði Floyd Mayweather kveðst í viðtali við Sky Sports fréttastofuna aðeins vera að einbeita sér að bardaga sínum gegn Shane Mosley og sé hættur að hugsa um Manny Pacquiao í bili.

Bandaríkjamennirnir Mayweather og Mosley mætast
Nú er búið að staðfesta að næsti bardagi hins ósigraða Floyd Mayweather verður gegn Shane Mosley 1. maí í Las Vegas. Það er því ljóst að í bili að minnsta kosti verður ekkert af óskaeinvígi flestra hnefaleikaaðdáanda á milli Mayweather og Manny Pacquiao en viðræður áttu sér þó stað á milli þeirra.

Ruiz: Það er hræðilega leiðinlegt að horfa á Haye
Áskorandinn John Ruiz sem mætir WBA-þungavigtarmeistaranum David Haye í titilbardaga í byrjun apríl hefur skotið þungum skotum að breska meistaranum og kallað hann „leiðinlegan“.

Haye: Mun ekki bara vinna heldur einnig rota hann
Bretinn David Haye, WBA-þungavigtarmeistari í hnefaleikum, býr sig nú undir að verja titil sinn í fyrsta skiptið þegar hann mætir Bandaríkjamanninum John Ruiz í MEN Arena í Manchester á Englandi 3. apríl næstkomandi.

Pacquiao búinn að finna sér nýjan andstæðing
Hnefaleikakappinn Manny Pacquiao hefur fundið sér annan andstæðing til að berjast við í stað Floyd Mayweather í mars næstkomandi.

Sáttasemjari reynir að bjarga bardaga Mayweather og Pacquaio
Sáttasemjari hefur verið ráðinn til þess að reyna að bjarga bardaga Floyd Mayweather og Manny Pacquiao sem áætlað var að færi fram þann 13. mars næstkomandi.

Pacquiao kærir Mayweather
Hin endalausa deila á milli boxaranna Manny Paquiao og Floyd Mayweather virðist engan enda ætla að taka.

Óvíst hvort Pacquiao og Mayweather mætast
Óvíst er hvort að þeir Manny Pacquiao og Floyd Mayweather yngri mætist í hringnum þann 13. mars næstkomandi eins og áætlað var.

Pacquiao og Mayweather munu ekki slást í Dallas
Það er nú orðið ljóst að bardagi þeirra Manny Pacquiao og Floyd Mayweather mun ekki fara fram á hinum stórglæsilega Cowboys Stadium í Dallas.

Khan: Tilbúinn að setja pening á að þetta klárist með rothöggi
WBA-léttveltivigtarmeistarinn Amir Khan er fullur sjálfstrausts fyrir fyrstu titilvörn sína þegar hann mætir Dmitriy Salita í Newcastle á Englandi um næstu helgi.

Vill halda hnefaleikabardaga á 80 þúsund manna leikvangi
Eigandi bandaríska fótboltaliðsins Dallas Cowboys vill ólmur að hnefaleikabardagi Floyd Mayweather og Manny Pacquiao verði á heimavelli Dallas-liðsins. Enn liggur ekkert fyrir hvar eða hvenær bardaginn verður en talið er líklegt að þeir berjist í maí á næsta ári.

W. Klitschko: Ekki hægt að taka Haye alvarlega
IBF og WBO-þungavigtameistarinn í hnefaleikum Wladimir Klitschko frá Úkraínu kveðst í nýlegu viðtali við Sky Sports fréttastofuna vera orðinn þreyttur á að þurfa endalaust að vera að tjá sig um Bretann David Haye sem tryggði sér WBA-þungavigtatitilinn nýlega þegar hann vann Nikolai Valuev.

Roach: Khan á eftir að klára bardagann með rothöggi
Hnefaleikaþjálfarinn Freddie Roach er sannfærður um að skjólstæðingur sinn Amir Khan eigi eftir að klára titilvarnarbardaga sinn í WBA-léttveltivigt gegn Dmitriy Salita með rothöggi.

Arum: Mayweather þorir ekki að mæta Pacquiao
Bob Arum, forgöngumaður fyrir WBO-veltivigtarmeistarann Manny „Pac-Man“ Pacquiao frá Filippseyjum, skýtur föstum skotum á hinn ósigraða Floyd Maweather Jr. frá Bandaríkjunum í nýlegu viðtali og segir hann hræddan við skjólstæðing sinn.

Khan: Ber of mikla virðingu fyrir Pacquiao til þess að mæta honum
WBA-léttveltivigtarmeistarinn í hnefaleikum Amir Khan hefur nánast útilokað að hann muni mæta nýkrýnda WBO-veltivigtarmeistaranum Manny „Pac-Man“ Pacquiao í hringnum.

Hatton að snúa aftur í hringinn næsta sumar?
Samkvæmt breskum fjölmiðlum í dag er hnefaleikakappinn Ricky Hatton í viðræðum við Juan Manuel Marquez um bardaga í létt-veltivigt næsta sumar.

Mayweather eldri ásakar Pacquiao um steranotkun
Hnefaleikaþjálfarinn Floyd Mayweather eldri hefur ráðlagt syni sínum Floyd Mayweather yngri að hugsa sig tvisvar um áður en hann ákveður að mæta Manny „Pac-Man“ Pacquiao, nýkrýndum WBO-veltivigtarmeistara, í hringnum.

Mayweather Jr. er tilbúinn að mæta Pacquiao
Góður möguleiki er fyrir hendi að draumabardagi margra hnefaleikaunnenda verði að veruleika ef marka má nýlegt viðtali við hinn ósigraða Floyd Mayweather Jr. þar sem hann kveðst reiðubúinn að mæta nýkrýndum WBO-veltivigtarmeistara Manny „Pac-Man“ Pacquiao í hringnum.

Pacquiao fagnaði sigri gegn Cotto
Manny Pacquiao undirstrikaði í nótt að hann er besti boxari heims pund fyrir pund er hann stöðvaði Miguel Cotto í lokalotunni er þeir börðust í Las Vegas.

Roach: Cotto verður pottþétt rotaður
Freddie Roach hnefaleikaþjálfari er sannfærður um að skjólstæðingur sinn Manny „Pac-Man“ Pacquiao muni vinna WBO-titilbardaga sinn í veltivigt gegn núverandi meistaranum Miguel Cotto.

Pacquiao: Ég hef aldrei verið í betra formi en nú
Hnefaleikamaðurinn Manny „Pac-Man“ Pacquiao er bjartsýnn fyrir WBO-veltivigtar titilbardaga sinn gegn Miguel Cotto í Las Vegas á aðfararnótt sunnudags og kveðst aldrei hafa verið í betra formi en nú.

Tyson kýldi ljósmyndara kaldan
Mike Tyson á yfir höfði sér kæru um líkamsárás eftir að hann kýldi ljósmyndara á flugvelli í Los Angeles.

Haye stefnir á að mæta Klitschko bróður á Wembley
Hnefaleikamaðurinn og nýkrýndur WBA-heimsmeistari í þungavigt lætur sig nú dreyma um að mæta öðrum hvorum Klitschko bræðranna á Wembley-leikvanginum í Lundúnum.

Davíð sigraði Golíat
Hnefaleikakappinn David Haye hafði í nótt betur gegn Rússanum risavaxna Nikolay Valuev í bardaga þeirra um WBA-heimsmeistaratignina í þungavigt.

Davíð vigtaðist tæpum 45 kílóum léttari en Golíat
Hnefaleikakapparnir David Haye og Nikolai Valuev voru vigtaðir í Nürnberg í Þýskalandi í dag fyrir bardaga kappanna sem fram fer á laugardagskvöld.

Cotto: Mér er alveg sama hvað veðbankarnir segja
WBO-veltivigtarmeistarinn Miguel Cotto frá Púertó Ríkó er hvergi banginn fyrir bardaga sinn gegn Manny „Pac-Man“ Pacquiao frá Filippseyjum þann 14. nóvember.

Haye: Ég mun standa við stóru orðin í hringnum
Breski hnefaleikakappinn David Haye hefur líst því yfir að hann muni fylgja eftir yfirlýsingum sínum fyrir bardagann við rússneska risann Nikolai Valuev þegar í hringinn er komið.

Tyson segir hæðina ekki skipta neinu máli - útilokar að snúa aftur
Hnefaleikagoðsögnin „Iron“ Mike Tyson hefur gefið Bretanum David Haye byr undir báða vængi fyrir bardaga sinn gegn rússneska risanum Nikolai Valuev.

Sky reddaði Haye nýju hóteli
Dramatíkin fyrir bardaga David Haye og Nikolai Valuev heldur áfram að byggjast upp en þeir mætast í Þýskalandi um helgina.