Ítalski boltinn
185 186 187 188 189 190 191 192 193 … 198 ›
Milan lagði Juventus AC Milan lagði erkifjendur sína í Juventus 3-2 í hörkuleik um Berlusconi-bikarinn árlega þar sem stórveldin tvö etja kappi. Leikurinn átti upphaflega að fara fram í haust samkvæmt venju, en var frestað í kjölfar knattspyrnuskandalsins á Ítalíu. Fótbolti 6.1.2007 20:16
Framtíð Figo í uppnámi Mikil óvissa ríkir nú um framtíð miðjumannsins Figo hjá Inter Milan, en stutt er síðan knattspyrnufélag í Saudi Arabíu fullyrti að það hefði náð samkomulagi við Inter um kaup á kappanum. Roberto Mancini þjálfari Inter segir hinn 34 ára gamla leikmann ekki vera á förum frá félaginu og bendir á að hann sé samningsbundinn Inter út árið. Fótbolti 4.1.2007 17:32
Juventus sagt hafa áhuga á Crouch Ítalskir fjölmiðlar greina frá því í dag að stórlið Juventus í B-deildinni hafi áhuga á að kaupa enska landsliðsmanninn Peter Crouch frá Liverpool, hugsanlega til að fylla skarð hins franska David Trezeguet sem vitað er að vilji fara frá Tórínóliðinu. Fótbolti 4.1.2007 14:48
Inter hefur áhuga á Gilberto Ítölsku meistararnir Inter Milan eru sagðir hafa mikinn áhuga á að fá brasilíska miðjumanninn Gilberto Silva í sínar raðir. Gilberto er samningsbundinn Arsenal til ársins 2009 og ólíklegt verður að teljast að enska félagið vilji selja brasilíska landsliðsmanninn. Fótbolti 3.1.2007 19:15
Parma á uppboð Ítalska knattspyrnufélagið Parma hefur nú verið sett á uppboð og vonast stjórn félagsins til að kaupandi finnist fyrir lok félagaskiptagluggans í þessum mánuði. Félagið hefur barist í bökkum síðan bakhjarl liðsins Parmalat fór á hausinn í desember árið 2003 og er nú í næstneðsta sæti deildarinnar. Fótbolti 2.1.2007 15:16
Markmið AC Milan er Meistaradeildin Brasilíski markvörðurinn hjá AC Milan, Dida, segir að markmið leikmanna hjá liðinu sé að tryggja sér sæti í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. AC Milan hefur gengið afleitlega það sem af er leiktíð og situr sem stendur í 12. sæti deildarinnar. Fótbolti 31.12.2006 11:45
Milan staðfestir áhuga á Cassano AC Milan á Ítalíu hefur boðist til þess að fá ítalska sóknarmanninn Antonio Cassano að láni frá Real Madrid fram á vor, með hugsanleg kaup í huga eftir tímabilið. Samkvæmt ítölskum fjölmiðlum eru forráðamenn Real jákvæðir fyrir slíkum samningi. Fótbolti 28.12.2006 23:28
Totti vill hvergi annarstaðar vera Francesco Totti, fyrirliði Roma á Ítalíu, er svo ánægður í herbúðum félagsins að hann vill helst enda ferilinn hjá því. Þetta sagði Totti í samtali við ítalska fjölmiðla í morgun. Fótbolti 28.12.2006 14:56
Adriano þakkar samherjum sínum Brasilíski sóknarmaðurinn Adriano tileinkaði liðsfélögum sínum hjá Inter markið sem hann skoraði gegn Atalanta á laugardag. Markið var hans fyrsta í átta mánuði fyrir félagið, en Adriano hefur verið í mikilli lægð á þessu ári eftir frábært tímabil í fyrra. Fótbolti 25.12.2006 14:00
Inter jafnaði metið Inter Milan jafnaði í gær met í ítölsku A-deildinni í fótbolta þegar liðið vann sinn 11 sigur í röð. Þá lagði liðið Atalanta af velli, 2-1, en Roma náði samskonar sigurgöngu á síðustu leiktíð. Inter er langefst á Ítalíu þegar farið er í jólafrí, eða með sjö stiga forystu. Fótbolti 24.12.2006 10:57
Inter fær ekki aðstoð frá dómurum Roberto Mancini, þjálfari Inter á Ítalíu, hlær að öllum samsæriskenningum þess efnis að leikmenn liðsins njóti friðhelgi hjá dómurum deildarinnar. Nokkur umræða hefur verið á Ítalíu þess efnis að Inter sé í náðinni hjá hinum ýmsu dómurum, einhverra hluta vegna. Fótbolti 23.12.2006 12:11
Tíu sigrar í röð hjá Inter Ítalíumeistarar Inter Milan unnu í gærkvöld sinn tíunda sigur í ítölsku A-deildinni þegar liðið skellti Lazio á útivelli 2-0 þrátt fyrir að vera manni færri frá miðjum fyrri hálfleik eftir að Zlatan Ibrahimovic var vikið af velli. Esteban Cambiasso og Marco Materazzi skoruðu mörk Inter í gær. Fótbolti 21.12.2006 12:43
Minningarathöfn um leikmenn Juventus Í dag var haldin sérstök minningarathöfn um leikmennina ungu sem drukknuðu við æfingasvæði Juventus um helgina. Leikmennirnir tveir drukknuðu í vatni við æfingasvæðið og er málið enn í rannsókn, enda voru tildrög þessa nöturlega atburðar nokkuð furðuleg. Leikmennirnir hétu Riccardo Neri og Alessio Ferramosca. Fótbolti 19.12.2006 17:57
Cannavaro maður ársins hjá World Soccer Ítalski varnarmaðurinn Fabio Cannavaro hefur verið útnefndur knattspyrnumaður ársins af breska tímaritinu World Soccer. Cannavaro er aðeins annar varnarmaðurinn sem hlýtur þessi verðlaun á þeim aldarfjórðungi sem þau hafa verið veitt, en áður hafði landi hans Paolo fengið þau árið 1994. Cannavaro fékk þrisvar sinnum fleiri atkvæði en næstu menn, þeir Thierry Henry og Samuel Eto´o. Fótbolti 16.12.2006 17:25
Shevchenko er kjölturakki konu sinnar Silvio Berlusconi, forseti AC Milan, virðist vera búinn að missa allt álit á félaga sínum og fyrrum leikmanni Andriy Shevchenko hjá Chelsea. Berlusconi segir framherjann vera eins og kjölturakka í höndum konu sinnar. Fótbolti 16.12.2006 16:55
Stankovic knattspyrnumaður ársins Miðjumaðurinn sterki Dejan Stankovic hjá Inter Milan hefur verið útnefndur knattspyrnumaður ársins í Serbíu, en hann er fyrsti leikmaðurinn sem hlýtur þessi verðlaun eftir að Serbía og Svartfjallaland skiptust upp. Fótbolti 16.12.2006 16:41
Deschamps hefur áhuga á Masherano Didier Deschamps, þjálfari ítalska liðsins Juventus, hefur viðurkennt að hann hafi mikinn áhuga á að fá til sín leikmann á borð við Javier Mascherano hjá West Ham, en þrálátur orðrómur er á kreiki um að Argentínumennirnir Masherano og Carlos Tevez verði seldir frá enska félaginu í janúar. Fótbolti 14.12.2006 15:09
Lazio vann grannaslaginn Lazio gerði grönnum sínum og erkifjendum í Roma litla greiða í kvöld þegar liðið vann 3-0 sigur í grannaslag liðanna í Rómarborg. Tap Roma þýðir að liðið er nú sjö stigum á eftir toppliði Inter Milan, en Lazio skellti sér í fimmta sætið með þessum glæsilega sigri. Fótbolti 10.12.2006 22:30
Auðvelt hjá Inter Inter Milan náði í dag 7 stiga forystu á toppi ítölsku deildarinnar með auðveldum 3-0 sigri á Empoli, en Roma getur minnkað forskot liðsins með sigri á grönnum sínum í Lazio í kvöld. Hernan Crespo, Zlatan Ibrahimovic og Walter Samuel skoruðu mörk Inter í dag, en vandræði granna þeirra í AC Milan halda áfram eftir að liðið gerði markalaust jafntefli við Torino á San Siro. Fótbolti 10.12.2006 18:47
Juventus á toppinn Juventus smellti sér á toppinn í ítölsku B-deildinni í knattspyrnu í dag þegar liðið lagði Verona 1-0 í dag með marki frá Mauro Camoranesi. Juventus er á toppnum ásamt Bologna með 28 stig, en Napoli getur komist á toppinn á ný með sigri á Cesena á mánudaginn. Fótbolti 9.12.2006 20:18
Nedved hótar að hætta Tékkneski miðjumaðurinn Pavel Nedved hjá Juventus er æfur yfir því að hafa verið dæmdur í fimm leikja keppnisbann fyrir að móðga og stíga ofan á dómara í leik Juve og Genoa um síðustu helgi. Nedved segist frekar ætla að hætta að spila en að gangast við banninu. Fótbolti 6.12.2006 15:58
Nýr skandall í uppsiglingu á Ítalíu? Svo gæti farið að annað stórt knattspyrnuhneyksli sé nú í uppsiglingu í ítalskri knattspyrnu en blaðið Gazzetta Dello Sport birti í dag nafnalista manna sem sakaðir eru um að hafa veðjað ólöglega á úrslit leikja á bilinu 1998-2005. Fótbolti 5.12.2006 16:03
Inter að undirbúa tilboð í Beckham? Breska götublaðið The Sun greinir frá því í dag að ítölsku meistararnir í Inter Milan séu að undirbúa að bjóða David Beckham frá Real Madrid samning og heldur því fram að hann muni fá 110 þúsund pund í vikulaun. Samningur Beckham rennur út í júlí og því geta félög boðið honum samning á nýju ári ef hann nær ekki samningum við Real. Fótbolti 5.12.2006 14:50
Nedved í fimm leikja bann Tékkneski miðjumaðurinn Pavel Nedved var í dag dæmdur í fimm leikja bann með liði Juventus í ítölsku B-deildinni eftir að hafa fengið rautt spjald í leik Juve og Genoa. Nedved missti stjórn á skapi sínu og traðkaði á andstæðingi sínum og bætti um betur og tróð dómaranum niður þegar hann fékk að líta rauða spjaldið. Juventus er í öðru sæti deildarinnar og mætir toppliðinu Bologna í næsta leik. Fótbolti 5.12.2006 14:45
Shevchenko er ekki á leið til Ítalíu Adriano Galliani hjá AC Milan, segir að ekkert sé til í þeim fullyrðingum bresku blaðanna að framherjinn Andriy Shevchenko sé á leið aftur til AC Milan. "Við höfum ekki verið í neinum viðræðum við Chelsea um að fá leikmanninn aftur til okkar," sagði Galliani á heimasíðu ítalska félagsins. Fótbolti 30.11.2006 16:09
Nesta og Serginho undir hnífinn? Svo gæti farið að varnarmennirnir Alessandro Nesta og Serginho hjá ítalska liðinu AC Milan þyrftu báðir að fara í aðgerð fljótlega vegna þrálátra meiðsla sem hafa hrjáð þá lengi. Nesta kom inn sem varamaður í leik gegn Messina á dögunum en kenndi sér meins í öxlinni og þarf nú líklega í uppskurð. Sömu sögu er að segja af Serginho, nema hvað hann er meiddur í baki. Fótbolti 30.11.2006 15:25
Af hverju að fara til Englands? Argentínski framherjinn Hernan Crespo hjá Inter Milan á Ítalíu segist ekki skilja af hverju framherji sem er sáttur í herbúðum liðs síns á Ítalíu ætti að láta sér detta í hug að flytja til Englands og spila í ensku úrvaldseildinni. Þessi orð lét hann falla í samtali við breska blaðið Mirror þegar hann svar spurður út í vandræði Andriy Shevchenko hjá Chelsea. Enski boltinn 30.11.2006 15:06
Dida dregur lappirnar Forráðamenn ítalska stórliðsins AC Milan hafa lýst yfir óánægju sína með það hversu erfiðlega gengur að ná samningum við brasilíska markvörðinn Dida. Samningur Dida rennur út í júní, en hann nú meiddur og getur ekki spilað með liðinu fyrr en í fyrsa lagi í janúar. Fótbolti 29.11.2006 16:13
Inter heldur toppsætinu Inter Milan hefur fjögurra stiga forskot á toppi ítölsku A-deildarinnar í knattspyrnu eftir mjög þýðingarmikinn 2-1 útisigur á Palermo á Sikiley í kvöld. Zlatan Ibrahimovic og Patrick Vieira skoruðu mörk Mílanóliðsins í kvöld. Palermo búið að missa annað sætið alfarið í hendur Roma sem lagði Sampdoria 4-2 í dag þar sem Francesco Totti skoraði tvö mörk og lagði upp eitt. Fótbolti 26.11.2006 21:38
Maldini tryggði Milan sigur Gamla brýnið Paolo Maldini var hetja AC Milan í dag þegar hann skoraði sigurmark liðsins í 1-0 sigri á Messina í ítölsku A-deildinni. Milan hafði ekki unnið sigur í fjórum síðustu leikjum sínum í deildinni og því má segja að mark fyrirliðans hafi verið gulls ígildi. Hann var raunar nálægt því að skora öðru sinni í leiknum en skalli hans hafnaði í slánni á marki Messina. Fótbolti 25.11.2006 22:08
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent