Mjólkurbikar kvenna

Mjólkurbikar kvenna

Umfjöllun um Mjólkurbikar kvenna í knattspyrnu.

Fréttamynd

Þetta verður spennuleikur í Laugar­dalnum

„Ég er bara hrikalega spennt og bara svona pínu stress en aðallega bara spenningur,“ segir Álfhildur Rósa Kjartansdóttir, fyrirliði Þróttar, fyrir bikarúrslitaleiknum gegn Grindavík/Njarðvík sem fram fer á Laugardalsvellinum klukkan fjögur í dag.

Íslenski boltinn

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

„Búin að slá út ansi öflug lið“

Jóhann Kristinn Gunnarsson þjálfari Þróttar úr Reykjavík var afar hreykinn af liðsmönnum sínum eftir að liðið vann ÍBV 1-0 í undanúrslitum Mjólkurbikars kvenna í fótbolta á AVIS vellinum í Laugardal í kvöld. Þróttur er þar með kominn í bikarúrslit kvenna í annað sinn í sögunni.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Eyjakonur þétta vörnina

ÍBV hefur borist liðsstyrkur í formi bandaríska varnarmannsins Jessica Hinton fyrir komandi átök í Bestu deild kvenna og undanúrslitum Mjólkurbikarsins.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Þess vegna líður okkur svona vel í Laugar­dalnum“

„Við mættum bara miklu ákveðnari. Það vantaði smá upp á í hinum leikjunum í deildinni, þannig að við ákváðum bara aðeins að koma grimmar til leiks og það skilaði sínu,“ sagði Jelena Tinna Kujundzic, varnarmaður Þróttar, eftir glæstan 3-2 sigur á Íslands- og bikarmeisturum Breiðabliks á AVIS-vellinum í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Bríet treður upp á stór­leiknum

Poppstjarnan Bríet mun koma fram í hálfleik á leik Þróttar og Breiðabliks í sextán liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna síðar í dag. Ásamt hálfleikssýningunni mun Þróttur spila í og selja sérstakar treyjur úr smiðju söngkonunnar.

Íslenski boltinn