Arion banki
1 2 3 4 5 6 7 … 7 ›
Afkoma Eyris rétti út kútnum eftir að yfirtökutilboð barst í Marel Eftir að hafa tapað samtals nærri hundrað milljörðum samhliða miklu verðfalli á hlutabréfaverði Marels á árunum 2022 og 2023 varð viðsnúningur í afkomu Eyris Invest á fyrri árshelmingi sem skilaði sér í lítilsháttar hagnaði þrátt fyrir að vaxtakostnaður hafi aukist nokkuð milli ára. Virði eignarhlutar Eyris í fjölmörgum fjárfestingafélögum í nýsköpun hélst nánast óbreytt en áður hafði það verið fært niður um marga milljarða. Innherji 10.9.2024 06:32
Samið um kaup bankans á Arngrimsson Advisors Arion banki hefur gengið frá samkomulagi um kaup á öllu hlutafé Arngrimsson Advisors Limited við hluthafa félagsins. Arngrimsson Advisors hefur sinnt eignastýringarráðgjöf með áherslu á erlenda fagfjárfestasjóði og sérhæfðar fjárfestingar frá árinu 2013. Viðskipti innlent 6.9.2024 14:32
Hagnaður Stefnis minnkar um nærri fjórðung en eignir í stýringu tóku stökk Sjóðastýringarfyrirtækið Stefnir, dótturfélag Arion banka, sá hagnað sinn dragast nokkuð saman á fyrri árshelmingi samtímis tekjutapi við áframhaldandi krefjandi aðstæður á innlendum mörkuðum. Virkar eignir í stýringu Stefnis jukust hins vegar á sama tíma verulega, einkum eftir að félagið kláraði fjármögnun á tugmilljarða framtakssjóð vegna kaupanna á leigufélaginu Heimstaden. Innherji 28.8.2024 17:29
Lítil virðisrýrnun hjá bönkum er áhyggjuefni en ekki „eitthvað til að gleðjast yfir“ Óeðlilega lítil virðisrýrnun í bankakerfinu síðastliðna tólf mánuði er „frekar áhyggjuefni en eitthvað til að gleðjast yfir“. Áhrif stýrivaxta koma síðast fram í vanskilum og því sé þessi þróun til marks um ójafnvægi og ofþenslu í hagkerfinu. „Stýrivaxtahækkanir Seðlabankans síðastliðin þrjú ár hafi ekki verið að bíta nægjanlega fast,“ segir í hlutabréfagreiningu. Innherji 28.8.2024 13:47
Verðtryggingarskekkja bankanna í hæstu hæðum vegna ásóknar í verðtryggð lán Verðtryggingarskekkja stóru viðskiptabankanna, munurinn á verðtryggðum eignum og skuldum á efnahagsreikningi þeirra, hefur margfaldast á aðeins átján mánuðum samtímis því að heimili og fyrirtæki flykkjast yfir í verðtryggða fjármögnun í skugga hárra vaxta. Skuldabréfamiðlari telur sennilegt að þessi þróun muni halda áfram af fullum þunga á næstunni sem ætti að óbreyttu að viðhalda raunvöxtum hærri en ella. Innherji 13.8.2024 07:01
„Ekkert hrun“ í ferðaþjónustu en stöðnun getur hitt sum fyrirtæki illa fyrir Nýjustu tölur um fjölda gistinátta erlendra ferðamanna í júní benda til þess að það sé „ekkert hrun“ í ferðaþjónustu, að sögn hagfræðinga Arion banka, en fyrir atvinnugrein sem hefur vaxið hratt og fjárfest í samræmi við það getur stöðnun hitt mögulega sum fyrirtæki illa fyrir. Stöðug fækkun að undanförnu í gistinóttum ferðamanna frá Bretlandi, næst fjölmennasta þjóðin til að sækja landið heim, gæti aukið á árstíðarsveifluna en þeir hafa verið duglegir að ferðast til Íslands yfir vetrarmánuðina. Innherji 2.8.2024 14:52
Hagnaður Arion banka dregst saman milli ára Hagnaður Arion banka á öðrum ársfjórðungi 2024 var 5,5 milljarðar, samanborið við 7,1 milljarð á sama tímabili í fyrra. Hagnaður fyrstu sex mánuði ársins var 9,9 milljarðar, samanborið við 13,4 milljarða fyrstu sex mánuði 2023. Bankastjóri segir margt gott í uppgjöri bankans þrátt fyrir að arðsemismarkmiði hafi ekki verið náð. Viðskipti innlent 25.7.2024 16:35
„Óvænt bakslag“ en ein verðbólgumæling breytir ekki heildarmyndinni Þegar leiðrétt er fyrir sveiflukenndum liðum í vísitölu neysluverðs, ásamt ytri þáttum sem tengjast ekki íslensku hagkerfi, þá virðist verðbólguþrýstingurinn enn vera nokkuð yfir markmiði Seðlabankans þótt hann hafi vissulega minnkað frá því að hann náði hámarki. Óvænt hækkun verðbólgunnar í þessum mánuði breytir ekki heildarmyndinni, að mati hagfræðinga Arion banka, en þeir benda á að verð á bæði innlendum vörum og þjónustu hefur verið að hækka af mikið að undanförnu. Innherji 25.7.2024 11:50
Greinendur vænta þess að afkoma bankanna haldi áfram að versna Greinendur gera að jafnaði ráð fyrir því að hagnaður stóru viðskiptabankanna sem skráðir eru í Kauphöll Íslands muni dragast nokkuð saman milli ára á öðrum ársfjórðungi. Útlit er fyrir að hagnaður bankanna fyrir tekjuskatt dragist saman um 18 til 20 prósent en miðað við þær spár munu þeir ekki ná arðsemismarkmiðum sínum. Innherji 11.7.2024 07:54
Ferðatryggingar og val á kreditkorti Stundum er ég spurð að því hvort ferðatryggingar kreditkorta séu ekki óþarfi þar sem margir eru með heimilistryggingar sem fela einnig í sér tryggingavernd á ferðalögum. Skoðun 3.7.2024 20:01
Uppbygging almannahagsmuna á Íslandi Þá er ég loksins búinn að klára skiptin úr Arion banka í ríkisbankann Íslandsbanka og ég vill endilega hvetja fólk til þess að sniðganga Arion banka. Skoðun 2.7.2024 07:31
Arion banki greiði Seðlabankanum 585 milljónir Arion banki hefur gert sátt við Seðlabanka Íslands og verður gert að greiða sekt að fjárhæð 585 milljóna króna ásamt því að skuldbinda sig til úrbætur vegna brota gegn lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Viðskipti innlent 28.6.2024 16:40
Steinunn Kristín ný í stjórn Varðar Steinunn Kristín Þórðardóttir hefur tekið sæti í stjórn Varðar trygginga. Viðskipti innlent 20.6.2024 08:57
Kristján Andrésson gengur til liðs við Arion banka Kristján Andrésson hefur tekið við starfi forstöðumanns rekstrar- og sjálfbærniáhættu hjá Arion banka. Viðskipti innlent 13.6.2024 11:28
Gæti hallað undan fæti hjá Arion á næsta ári því viðvörunarljós blikka Greinandi gerir ráð fyrir „hraustlegri“ virðisrýrnun útlána hjá Arion banka á næsta ári og spáir því að hún verði meiri en í síðasta verðmati. Það blikka viðvörunarljós sem munu grafa undan gengis- og verðstöðugleika hér á landi. Verðmatsgengi Arion lækkaði um nærri fimm prósent frá síðasta mati en er engu að síður 44 prósentum yfir markaðsgengi. Innherji 31.5.2024 13:58
Gengi bréfa Arion rýkur upp eftir „frábæra“ skuldabréfaútgáfu í evrum Hlutabréfaverð Arion hækkaði skarpt eftir að bankinn kláraði 300 milljóna evra almennt skuldabréfaútboð á hagstæðustu kjörum sem íslenskum bönkum hefur boðist í yfir tvö ár en umframeftirspurnin reyndist meiri en sést hefur í útgáfum evrópskra fjármálafyrirtækja í nokkurn tíma. Alþjóðlegi fjárfestingabankinn JP Morgan, einn umsjónaraðila útboðsins, segir niðurstöðuna endurspegla þann aukna áhuga sem er meðal fjárfesta á skuldabréfum íslenskra banka. Innherji 14.5.2024 17:10
Óvenju hátt skatthlutfall Arion vegna framvirkra samninga Yfir lengra tímabil hafa framvirkir samningar sem Arion banki hefur veitt viðskiptavinum leitt til lægra virks skatthlutfalls, upplýsti bankastjóri. Hagnaður af slíkum samningum urðu til þess að skatthlutfallið var óvenju hátt á fyrsta ársfjórðungi sem kom greinendum á óvart. Hann gerir ráð fyrir því að þróunin verði með öðrum hætti á yfirstandi ársfjórðungi. Innherji 2.5.2024 16:34
Hagnaður Arion dróst saman um tvo milljarða Arion banki hagnaðist um 4,4 milljarða króna á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Það er nokkur samdráttur sé fjórðungurinn borinn saman við sama tímabil í fyrra, þegar Arion hagnaðist um 6,3 milljarða. Bankastjóri segir afkomuna undir markmiðum. Viðskipti innlent 30.4.2024 16:24
Verðbólgan minnkar en vextirnir hækka Arion banki hefur ákveðið að hækka vexti á verðtryggðum íbúðalánum með föstum vöxtum um hálft prósentustig. Á föstudaginn lækka innlánsvextir veltureikninga um allt að 0,85 prósentustig. Viðskipti innlent 24.4.2024 10:17
Vanskil fyrirtækja „ekki til marks um almenna breytingu“ hjá viðskiptavinum Íslandsbanki hefur ekki fundið fyrir mikilli aukningu í vanskilum hjá fyrirtækjum á undanförnum mánuðum, hvorki lengri né skemmri tíma vanskilum, segir fjármálastjóri Íslandsbanka. Heildarvanskil hjá fyrirtækjum í viðskiptum við Landsbankans hafa lítið eitt aukist frá áramótum en breytingin er „óveruleg og er ekki til marks um almenna breytingu hjá okkar viðskiptavinum.“ Innherji 23.4.2024 18:01
Bankastjóri: Vanskil hjá fyrirtækjum aukast og raunvaxtastig er of hátt Vanskil fyrirtækja vaxa frá mánuði til mánaðar. Bankastjóri Arion banka segir að raunvaxtastig sé orðið of hátt og óttast að fyrirtæki verði nauðbeygð að segja upp starfsfólki. Fyrir vikið gæti atvinnuleysi aukist. Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands þurfi að taka tillit til þess við vaxtaákvarðanir að áhrif þeirra komi ekki fram að fullu fyrr en eftir 18 mánuði. Innherji 22.4.2024 10:25
Spá minni hagnaði hjá bönkum og að þeir nái ekki arðsemismarkmiði Greinendur telja að hagnaður viðskiptabankanna sem skráðir eru í Kauphöll Íslands muni dragast saman á fyrsta ársfjórðungi um ellefu og 16 prósent milli ára að jafnaði. Þeir spá því að bankarnir nái ekki markmiði sínu um arðsemi eiginfjár á ársfjórðungnum. Innherji 18.4.2024 16:11
Hákon nýr öryggisstjóri Arion Hákon L. Akerlund hefur tekið við starfi öryggisstjóra Arion banka. Viðskipti innlent 15.4.2024 09:35
Arion áminntur fyrir verklag í skoðun á mögulegum innherjasvikum Viðurlaganefnd Kauphallarinnar áminnti Arion banka opinberlega í dag fyrir að brjóta þannig gegn reglum hennar að hún gat ekki sinnt eftirliti þegar grunur um möguleg innherjasvik kom upp. Ekki var til upptaka af símtali miðlara við fjárfesti sem Kauphöllin sóttist eftir. Viðskipti innlent 11.4.2024 19:13
Hækka lánshæfismat bankanna Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið S&P Global Ratings (S&P) hækkaði í dag lánshæfismat Íslandsbanka, Landsbankans og Arion banka úr BBB í BBB+. Efnahagslegt ójafnvægi er sagt hafa dvínað og eru horfur stöðugar. Viðskipti innlent 4.4.2024 12:52
Lækkar óverðtryggða en hækkar verðtryggða Arion banki hefur breytt inn- og útlánavöxtum bankans frá og með deginum í dag. Óverðtryggðir fastir 3 ára íbúðalánavextir lækka um 0,50 prósentustig og verða 8,95 prósent og verðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir hækka um 0,25 prósentustig og verða 4,04 prósent. Viðskipti innlent 4.4.2024 10:07
Hagnaður Stefnis minnkaði um ellefu prósent eftir sveiflukennt ár á mörkuðum Sjóðastýringarfyrirtækið Stefnir, sem er í eigu Arion banka, skilaði um 1.095 milljóna króna hagnaði í fyrra og dróst hann saman um meira en ellefu prósent en eignir í stýringu minnkuðu jafnframt lítillega á ári sem einkenndist af sveiflum á verðbréfamörkuðum. Innlausnir hjá fjárfestum í stærsta innlenda hlutabréfasjóði landsins voru samtals tæplega 2,5 milljarðar á síðasta ári. Innherji 1.4.2024 11:03
„Engin takmörk“ virðast vera á sívaxandi útþenslu eftirlitsiðnaðarins Fráfarandi stjórnarformaður Arion skaut föstum skotum á það sem hann kallaði „sístækkandi og íþyngjandi hlutverk eftirlitsiðnaðarins“ á aðalfundi bankans fyrr í dag og sagði þá þróun valda honum áhyggjum í starfsumhverfi fyrirtækja á Íslandi, einkum í bankarekstri. Engin takmörk væru á útþenslu slíkra stofnana og starfsfólk þess virtist oft þurfa að sanna tilvist sína með því að kalla sífellt eftir strangri eftirliti og fleiri skýrslum. Innherji 13.3.2024 21:07
Árslaun stjórnarformanna bankanna hlupu á tugum milljóna Stjórnarformenn Íslandsbanka, Kviku banka, Arion banka og Landsbanka voru með á bilinu 1,1 til 2,2 milljónir króna í mánaðarlaun fyrir að gegna starfi stjórnarformanns. Öll sinna þau öðrum störfum samhliða formannssetunni Viðskipti innlent 7.3.2024 08:22
Hætta á að kosning á grundvelli aðeins hæfismats skili „of einsleitri“ stjórn Tilnefningarnefnd Arion varar við því að farin sé sú leið, sem meðal annars framkvæmdastjóri LSR hefur kallað opinberlega eftir, að einvörðungu sé framkvæmt hæfismat á frambjóðendum til stjórnarkjörs enda sé hætta á því að kosning myndi þá ekki skila nauðsynlegri fjölhæfni og þekkingu innan stjórnar. Hún segist hins vegar hafa skilning á því ef stórir hluthafar, sem „ekki hafa fylgst með“ tilnefningarferlinu, finnist skorta á gagnsæi þegar ítrekað sé sjálfkjörið í stjórnir félaga. Innherji 5.3.2024 14:04