Færð á vegum „
1 2 3 4 5 6 … 8 ›
„Skítaveður á aðfangadagskvöld og jóladag“ Varasamt ferðaveður er víða á landinu í dag, og verður einkum norðan- og norðaustanlands í kvöld. Öllu innanlandsflugi hefur verið aflýst fram yfir hádegi og vegum gæti verið lokað án fyrirvara. Þá er spáð jólastormi á sunnan- og vestanverðu landinu á morgun og hinn. Innlent 23.12.2024 11:58
Vegur að Patreksfirði lokaður vegna snjóflóðs Eitt lítið snjóflóð féll niður í Raknadalshlíð í morgun. Vegur að Patreksfirði er lokaður. Innlent 23.12.2024 10:14
Lokað um Þrengsli og vegir víða á óvissustigi Gul viðvörun er í gildi á stórum hluta landsins og víða hvasst og hált. Þrengsli eru lokuð og Krýsuvíkurvegur. Allt norðanvert Snæfellsnes er ófært og fjöldi vega á Vesturlandi á óvissustigi og verða það þar til klukkan 21 í kvöld. Veður 23.12.2024 06:52
Vegir víða hálir á morgun og blint á fjallvegum Spáð er suðaustanstormi á vestanverðu landinu í nótt og til morguns, og hríðarveðri norðanlands annað kvöld. Gul veðurviðvörun tekur gildi eftir miðnætti um allt land fyrir utan austfirði og suðausturland. Vegir gætu víða orðið mjög hálir meðan snjó og klaka leysir. Innlent 22.12.2024 11:10
Lægð beinir vestlægri átt til landsins Lægð fyrir norðan land beinir til Íslands vestlægri átt. Því verða víða 8 til 15 metrar á sekúndu og él. Það verður þurrt að mestu austan til á landinu. Eftir hádegi fjarlægist lægðin og það dregur úr vindi. Frost yfirleitt 0 til 5 stig, en hiti í kringum frostmark við suður- og suðvesturströndina. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar í dag. Veður 15.12.2024 07:37
Hlýnar með skúrum og slydduéljum Í dag snýst í suðvestlæga átt og 10 til 18 metra á sekúndu. Það hlýnar með skúrum og slydduéljum en verður úrkomulítið á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti verður á bilinu 0 til 6 stig eftir hádegi. Veður 14.12.2024 08:01
Fimm bílar fastir í rúman sólarhring Björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu, Selfossi og í uppsveitum Árnessýslu voru kallaðar út að Kerlingarfjöllum þar sem hópur fólks á fimm bílum hafði setið fastur í rúman sólarhring. Innlent 8.12.2024 10:48
Reykjavíkurborg salti auðan stíg en ekki flughálan Yfirlæknir á bráðamóttöku Landspítalans hefur aldrei séð annan eins fjölda hálkuslysa á skömmum tíma, en flughált er víða. Íbúi í Vesturbæ Reykjavíkur segir farir sínar ekki sléttar af hálkuvörnum borgarinnar. Innlent 6.12.2024 20:03
Um 60 á bráðamóttöku í gær vegna hálkuslysa Alls leituðu 60 einstaklingar á bráðamóttöku Landspítalans í gær vegna hálkuslysa. Mikil hálka hefur verið síðustu daga á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 6.12.2024 15:24
Skúrir eða él á víð og dreif Nú í morgunsárið eru þrjár mis aðgangsharðar lægðir fyrir vestan land. Sú sem er skammt suðvestur af landinu mun sigla yfir landið í dag á meðan hinar halda sig nálægt Grænlandi og hafa takmörkuð áhrif á landsmenn. Veður 3.12.2024 07:13
Gekk betur en óttast var Umferðin á höfuðborgarsvæðinu undir kvöld virðist hafa gengið betur en óttast var, þó hún hafi farið hægar en gengu og gerist. Segja má að íbúar höfuðborgarsvæðisins hafi upplifað sinn fyrsta vetrardag í dag. Innlent 2.12.2024 19:33
Vaxandi lægð og gular viðvaranir víða um land Það var mjög kalt á landinu í nótt, frost fór til dæmis niður fyrir tuttugu stig á nokkrum stöðvum á Norðausturlandi. Veður 2.12.2024 07:29
Tekist að opna alla kjörstaði í Norðausturkjördæmi Framkvæmd alþingiskosninganna í Norðausturkjördæmi hefur gengið betur en menn þorðu að vona þrátt fyrir að færð hafi spillst af völdum veðurs, að sögn varaformanns yfirkjörstjórnar kjördæmisins. Tekist hefur að opna alla kjörstaði í kjördæminu. Innlent 30.11.2024 11:44
Fleiri gular viðvaranir á kjördag Gular veðurviðvaranir verða í gildi á stórum hluta landsins á kjördag á morgun. Veðurspáin hefur aukið ásókn í utankjörfundaratkvæðagreiðslu á Austurlandi en nú hafa viðvaranir vegna hríðar á norðanverðu landinu bæst við. Innlent 29.11.2024 13:14
Stefnir enn í hríðarveður á Austfjörðum á kjördag Gul veðurviðvörun tekur gildi síðdegis fyrir Suðausturland og klukkan átta í kvöld á Austfjörðum, þar sem spáð er norðaustan hríðarveðri þar sem vindhraði verði 15 til 20 metrar á sekúndu. Innlent 29.11.2024 06:51
Yfirgnæfandi líkur á óveðri á kjördag og líklegt að vegir teppist Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir yfirgnæfandi líkur á óveðri á Austurlandi og hríðarveðri á Norðurlandi og norðanverðum Vestfjörðum á kjördag. Hann segir líklegt að einhverjir vegir teppist á kjördag. Veður 27.11.2024 08:34
Leiðindafæri á Austurlandi og víða þungfært Leiðindafæri er víða á Austurlandi og þungfært nokkuð víða. Unnið er á mokstri en það gæti tekið tíma. Einnig er ófært um Öxi, Breiðdalsheiði og Mjóafjarðarheiði. Innlent 19.11.2024 07:35
Óvissustig á Hellisheiði, í Þrengslum og á Mosfellsheiði Norðvestan hvassviðrði eða stormur er að ganga yfir landið í dag og gular eða appelsínugular viðvaranir verða í gildi í öllum landshlutum á einhverjum tímapunkti næsta sólarhringinn og gott betur. Innlent 15.11.2024 07:03
Myndband sýnir umfang skriðanna í Eyrarhlíð Vegagerðin hefur birt myndband sem sýnir vel umfang þeirra aurskriða sem féllu yfir veginn um Eyrarhlíð, milli Ísafjarðar og Hnífsdals á þriðjudag. Þar má einnig sjá starfsfólk Vegagerðarinnar við vinnu að hreinsa veginn. Innlent 14.11.2024 12:57
Flateyringum ráðlagt að sjóða neysluvatn Veginum um Eyrarhlíð, á milli Ísafjarðar og Hnífsdals var lokað að nýju á miðnætti vegna skriðuhættu. Lögreglan ákvað þetta í gær í öryggisskyni en gert er ráð fyrir frekari úrkomu á Vestfjörðum og er óvissustig vegna skriðuhættu enn í gildi. Innlent 14.11.2024 06:47
Búast má við frekari vegalokunum þegar byrjar aftur að rigna Búið er að opna aftur vegi sem lokað var á norðanverðum Vestfjörðum í gær vegna aurskriða sem féllu, þrátt fyrir miklar skemmdir, og eins hefur Bíldudalsvegur verið opnaður að nýju. Óvissustig er enn í gildi og viðbragðsaðilar í viðbragðsstöðu. Búast má við úrkomu í kvöld og vegalokunum vegna þess. Innlent 13.11.2024 12:06
Hafa opnað veginn um Eyrarhlíð á ný Búið er að opna veginn um Eyrarhlíð á nýjan leik. Vegurinn liggur á milli Ísafjarðar og Bolungarvíkur og var lokað fyrr í vikunni eftir að aurskriður féllu þar. Innlent 13.11.2024 11:20
Reyna að hreinsa vatnsbólið á Flateyri eftir hádegi Íbúar á Flateyri eru beðnir um að fara sparlega með vatn í dag. Taka þurfti af vatn í vikunni í bænum á meðan vatnið var hreinsað. Í Bolungarvík, þar sem einnig þurfti að loka fyrir vatn, er nú vatnið aftur orðið neysluhæft. Mikil drulla komst í neyslubólið þar vegna mikilla rigninga. Innlent 13.11.2024 10:19
Búið að opna veginn um Ísafjarðardjúp Búið er að opna veginn um Steingrímsfjarðarheiði og Ísafjarðardjúp á ný. Einnig er búið að opna veginn um Súðavíkurhlíð, en ákveðið var að loka vegum í landshlutanum vegna skiðuhættu. Innlent 13.11.2024 10:02
Vegir enn lokaðir á Vestfjörðum Vegirnir í Ísafjarðardjúpi og vegurinn um Steingrímsfjarðarheiði eru enn lokaðir vegna skriðuhættu og þá er Bíldudalsvegur í sundur og því lokaður frá flugvellinum og að gatnamótunum að Dynjandisheiði. Innlent 13.11.2024 07:06
Súðavíkurhlíð líka lokað og fjöldahjálparstöðvar reyndust óþarfar Önnur aurskriða féll á Eyrarhlíð milli Ísafjarðar og Hnífsdals á fimmta tímanum. Vegurinn verður því lokaður út nóttina. Þá verður Súðavíkurhlíð einnig lokað klukkan tíu í kvöld. Fjöldahjálparstöðvar voru opnaðar í Bolungarvík og á Ísafirði en þeim hefur verið lokað á ný. Innlent 12.11.2024 16:59
Stór aurskriða féll við Eyrarhlíð Aurskriða féll á veginn um Eyrarhlíð milli Ísafjarðar og Hnífsdals um þrjúleytið. Vegurinn er lokaður vegna þessa og verður um sinn. Staðan verður metin út frá aðstæðum að því er segir í tilkynningu frá Lögreglunni á Vestfjörðum. Innlent 12.11.2024 15:32
Varað við vatnavöxtum og skriðuföllum: Vegir lokuðust á Vestfjörðum Vegurinn í Ísafjarðardjúpi lokaðist í nótt eftir að áin Rjúkandi í Hestfirði flæddi yfir veginn. Einnig féll aurskriða yfir veginn í sama firði, með þeim afleiðingum að nokkrir ökumenn komust ekki leiða sinna. Innlent 12.11.2024 06:38
Gular viðvaranir vegna hvassviðris eða storms Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir á norðvesturhluta landsins vegna sunnan hvassviðris eða storms. Veður 11.11.2024 10:03
Á enn eftir að hvessa meira á Norðausturlandi Gular og appelsínugular viðvaranir Veðurstofunnar renna út á næstu klukkutímunum. Veðurfræðingur á vakt segir að þó stutt sé í að veðrið gangi niður geti það enn valdið vandræðum síðustu klukkutímana á til dæmis Norðausturlandi. Veður 7.11.2024 22:00