Byssuskot á The Dubliner

Árásarmaðurinn á Dubliner fær ekki áheyrn í Hæstarétti
Tíu ára fangelsisdómur Fannars Daníels Guðmundssonar vegna skotárásar, frelsissviptingar og nauðgunar stendur. Hæstiréttur hefur hafnað málskotsbeiðni Fannars.

Skotárásarmaðurinn á Dubliner fær tíu ára dóm
Landsréttur þyngdi í dag fangelsisdóm Fannars Daníels Guðmundssonar sem hann hlaut vegna skotárásar á skemmtistaðnum The Dubliner í mars á síðasta ári og vegna frelsissviptingar og nauðgunar.

Átta ára fangelsi fyrir skotárás og fleiri brot
Fannar Daníel Guðmundsson hefur verið dæmdur til átta ára fangelsisvistar vegna skotárásar á skemmtistaðnum The Dubliner í mars síðastliðnum auk fleiri brota.

Byssumaðurinn á Dubliner segist hafa verið „svo grillaður“
Karlmaður um þrítugt sem sætir ákæru fyrir tilraun til manndráps á skemmtistaðnum The Dubliner í mars kaus að gefa ekki skýrslu við aðalmeðferð málsins sem hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Hann sagðist hafa verið „svo grillaður“ á þeim tíma sem atburðurinn átti sér stað.

Vafði byssunni inn í peysu til að smygla henni inn á Dubliner
Karlmaður rétt undir þrítugu hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps, með því að hleypa af haglabyssu inni á skemmtistaðnum The Dubliner í mars síðastliðnum.

Hafa lokið rannsókn á Dubliner málinu
Rannsókn lögreglu á atviki þar sem maður hleypti af skoti á Dubliner í Reykjavík í mars er lokið. Maðurinn, sem er á þrítugsaldri, situr áfram í gæsluvarðhaldi en það var framlengt þann 6. júní síðastliðinn.

Skotmaðurinn áfram í gæsluvarðhaldi
Gæsluvarðhald yfir karlmanni um þrítugt var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur framlengt til miðvikudagsins 15. maí vegna almannahagsmuna.

Meintur skotmaður á Dubliner dæmdur fyrir fjölda ótengdra brota
Tæplega þrítugur karlmaður sem er grunaður um að hleypa af skoti á skemmtistaðnum The Dubliner í síðasta mánuði var dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir fjölda ótengdra brota. Hann var meðal annars dæmdur fyrir að berja mann með kylfu.

Skotmaðurinn á Dubliner í fjögurra vikna gæsluvarðhald
Karlmaður sem grunaður er um að hafa hleypt af skoti inni á skemmtistaðnum The Dubliner var í dag úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 18. apríl á grundvelli almannahagsmuna.

Fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir skotmanninum
Lögregla á höfuðborgarsvæðinu mun fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir manninum sem hleypti af skoti inni á skemmtistaðnum The Dubliner í miðborg Reykjavíkur sunudagskvöldið 12. mars síðastliðinn.

Framlengja gæsluvarðhald yfir byssumanninum
Gæsluvarðhald yfir karlmanni um þrítugt var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur framlengt til miðvikudagsins 22. mars.

Í gæsluvarðhaldi fram að helgi
Karlmaðurinn sem grunaður eru um að hafa skotið af byssu inni á skemmtistaðnum The Dubliner við Naustina í miðbæ Reykjavíkur verður í gæsluvarðhaldi fram til klukkan fjögur á föstudaginn.

Fara fram á vikulangt gæsluvarðhald yfir byssumanninum
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur farið fram á vikulangt gæsluvarðhald yfir manninum sem grunaður er um að hafa skotið af byssu inni á skemmtistaðnum The Dubliner í miðborg Reykjavíkur á sunnudagskvöld.

Hafa ekki tekið ákvörðun um gæsluvarðhald yfir byssumanninum
„Það er eiginlega ekkert nýtt. Ég hugsa að það skýrist seinna í dag hvort það verði gerð krafa um gæsluvarðhald,“ segir Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn í samtali við Vísi.

Skotmaðurinn handtekinn
Maður sem grunaður er um að hafa skotið af byssu inni á skemmtistaðnum The Dubliner í miðborg Reykjavíkur í gærkvöldi hefur verið handtekinn. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segist ekki ætla að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.

Telja sig komna á slóð byssumanns
Lögregla er komin á slóð byssumanns sem hleypti af skoti á skemmtistaðnum Dubliner í miðborg Reykjavíkur í gærkvöldi. Yfirlögregluþjónn býst við að maðurinn verði handtekinn áður en langt um líður.

Umfangsmikil leit að skotmanninum: „Ljóst að um hættulegan einstakling er að ræða“
Umfangsmikil leit stendur yfir að byssumanni sem hleypti af skoti á skemmtistaðnum Dubliner í miðborg Reykjavíkur í gærkvöldi. Yfirlögregluþjónn vill ekki gefa upp hvort þau gruni um hvern sé að ræða, en segir háttsemi mannsins benda til þess að þarna sé hættulegur einstaklingur á ferð.

Skotið úr byssu inn á The Dubliner í miðborg Reykjavíkur
Rétt upp úr kl. 19.00 í kvöld fékk lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tilkynningu um að maður hefði komið inn á The Dubliner við Naustina í miðborg Reykjavíkur og hleypt af einu skoti inn á staðnum.