Stj.mál
138 139 140 141 142 143 144 145 146 … 187 ›
70 hafa skráð sig í Samfylkinguna Sjötíu manns hafa skráð sig í Samfylkinguna frá 10. janúar, þegar framkvæmdastjórn flokksins ákvað að halda landsfund þann 20. maí. Fimm hafa gengið úr Samfylkingunni á sama tíma. Kjörseðlar vegna formannskosninga verða sendir út 20. apríl. Innlent 13.10.2005 15:31
Sjálfstæðisflokkurinn í lægð Sjálfstæðisflokkurinn mælist með um 33,5 prósent að meðaltali úr síðustu ellefu skoðanakönnunum Fréttablaðsins sem ná frá ágúst mánuði árið 2003 til 1. febrúar síðastliðins. Sjálfstæðisflokkurinn fékk 33,7 prósenta fylgi í síðustu alþingiskosningum. Það er þriðja lakasata útkoma flokksins frá upphafi. Innlent 13.10.2005 15:31
Segir könnun Gallups marktækari Fylgi Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar er nær hnífjafnt ef marka má könnun Fréttablaðsins í dag. Vinsældir Framsóknarflokksins hafa hins vegar sjaldan verið minni en varaformaður hans telur könnun Gallups marktækari. Innlent 13.10.2005 15:31
Reiðubúinn að leiða í Kópavogi Ómar Stefánsson, formaður Framsóknarfélagsins í Kópavogi, kveðst reiðubúinn að leiða flokkinn í bæjarstjórnarkosningunum á næsta ári. Innlent 13.10.2005 15:31
Styrki stöðu fjölskyldunnar Ríkisstjórn Íslands hefur ákveðið að skipa nefnd sem hefur það verkefni að styrkja enn frekar stöðu íslensku fjölskyldunnar. Í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu segir að skipun nefndarinnar komi í kjölfar áramótaávarps Halldórs Ásgrímssonar þar sem hann sagði meðal annars að samheldin fjölskylda væri kjarni hvers þjóðfélags. Formaður nefndarinnar er Björn Ingi Hrafnsson, aðstoðarmaður forsætisráðherra. Innlent 13.10.2005 15:31
Sagði sig úr Samfylkingunni Aðalheiður Sigursveinsdóttir, sem kjörin var í stjórn Freyju, félags Framsóknarkvenna í Kópavogi, í síðustu viku sagði sig úr Samfylkingunni sama dag og hún var kjörin í stjórn Framsóknarfélagsins. Innlent 13.10.2005 15:31
Stjórnarskipan frestað í Úkraínu Þingumræðum um skipan nýrrar ríkisstjórnar Úkraínu hefur verið frestað að ósk hins nýja forseta landsins, Viktors Júsjenko. Hann átti að tilkynna ráðherratilnefningar sínar í dag en að sögn talsmanns úkraínska þingsins bað Júsjenko, sem legið hefur sveittur yfir málinu nú í vikutíma, um lengri frest til stjórnarmyndunarinnar. Erlent 13.10.2005 15:30
Heilbrigðisstéttir megi auglýsa Lögð hefur verið fram tillaga á Alþingi um að auglýsingar lækna, tannlækna og annarra heilbrigðisstétta, sem og auglýsingar heilbrigðisstofnana, verði heimilaðar. Flutningsmaður tillögunnar er Ágúst Ólafur Ágústsson, alþingismaður Samfylkingarinnar. Innlent 17.10.2005 23:41
Sharon fundar með ríkisstjórninni Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, ræðir í dag við ríkisstjórn sína með hvaða hætti hann geti komið til móts við Palestínumenn á fundi sem hann á með Mahmoud Abbas, forseta Palestínu, í Egyptalandi í næstu viku. Þar stendur til að hefja á ný friðarviðræður. Erlent 13.10.2005 15:30
Könnunin skemmtilegt gisk Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, segir könnun Fréttablaðsins í raun skemmtilegt gisk blaðsins. Spurt sé „hverju menn spái“ en „ekki hvað menn vilji“. Það sé stór galli á könnuninni. Innlent 13.10.2005 15:30
Fangelsisreksturinn lagður niður Leggja þarf niður fangelsisrekstur í Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg á næstu þremur árum, að mati Fangelsismálastofnunar. Þetta kemur fram í svari dómsmálaráðherra við fyrirspurn þingmanna Samfylkingarinnar um breytingar í fangelsismálum. Innlent 13.10.2005 15:30
Máli Fischers frestað Bobby Fischer verður enn að bíða eftir íslenskum ríkisborgararétti. Allsherjarnefnd ákvað í morgun að fresta málinu á ný þar sem frekari rökstuðnings væri þörf. Innlent 13.10.2005 15:30
Sameinuðu þjóðirnar fá á baukinn Sameinuðu þjóðirnar fá á baukinn í nýrri rannsóknarskýrslu sem birtist nú síðdegis um olíusöluáætlunina sem var við lýði þegar Saddam Hussein var við völd í Írak. Samkvæmt skýrslunni var framkvæmd áætlunarinnar gölluð og spilling þreifst meðal þeirra embættismanna Sameinuðu þjóðanna sem sáu um málið. Erlent 13.10.2005 15:31
Vantrauststillaga á ríkisstjórnina Þingmenn stjórnarandstöðunnar í Búlgaríu hafa lýst yfir vantrausti á ríkisstjórn landsins, nú þegar fimm mánuðir eru fram að þingkosningum. Stjórnarflokkarnir í Búlgaríu eru í minnihluta á þinginu og því getur vel farið svo að stjórnin verði felld í atkvæðagreiðslu um tillöguna. Erlent 13.10.2005 15:30
Skattsvik verður að uppræta Rætt var um skýrslu starfshóps um umfang skattsvika á Íslandi á alþingi í gær. Í skýrslunni, sem birt var í desember kom fram að skattsvik á Íslandi nema allt að því 35 milljörðum króna. Innlent 13.10.2005 15:30
Læstar inni í fangelsi fátæktar Nelson Mandela skoraði í dag á G7, samtök sjö ríkustu þjóða heims, að stuðla að minni fátækt í heiminum með því meðal annars að leggja aukið fé í hjálparstarf og fella niður skuldir á fátækustu ríkjum veraldar. Mandela er nú staddur í Lundúnum þar sem fjármálaráðherrar aðildarlandanna eru samankomnir á ráðstefnu hjá G7-samtökunum. Erlent 13.10.2005 15:30
Hátt í 200 nýskráningar í Framsókn Á annað hundrað manns skráðu sig í Framsóknarflokkinn í Kópavogi í dag og er búist við átakafundi hjá félagi Framsóknarmanna í bæjarfélaginu í kvöld. Það er best fyrir flokkinn að leggja niður deilur og láta komandi flokksþing einkennast af sáttum, segir aðstoðarmaður Halldórs Ágrímssonar. Innlent 13.10.2005 15:31
Árni í formannsframboð? Háværar raddir eru uppi innan Framsóknarflokksins um að Árni Magnússon félagsmálaráðherra muni bjóða sig fram til formennsku í Framsóknarflokknum á flokksþinginu sem haldið verður í lok þessa mánaðar. Innlent 13.10.2005 15:30
Varar Sýrlendinga og Írana við Bush Bandaríkjaforseti notaði stefnuræðu sína í gær meðal annars til að vara bæði Sýrlendinga og Írana við því að eiga samstarf við hryðjuverkahópa. Ljóst þykir að Bandaríkjastjórn mun á næstunni beina sjónum sínum að þessum tveimur löndum. Erlent 13.10.2005 15:30
Palestínumenn fá 22 milljarða Það þarf að skerða lífeyrisréttindi Bandaríkjamanna á næstu misserum, ekki er hægt að segja til um hvenær Bandaríkjamenn fara frá Írak og Palestínumenn fá tuttugu og tvo milljarða króna í styrk frá Bandaríkjamönnum á næstu árum. Þetta er meðal þess sem kom fram í stefnuræðu George Bush Bandaríkjaforseta í Washington í gær. Erlent 13.10.2005 15:30
Helmingi fleiri nefna Ingibjörgu Mun fleiri telja að Ingibjörg Sólrún verði næsti formaður Samfylkingarinnar, en að Össur haldi áfram. Gunnar Helgi Kristinsson segist ekki telja að Össur eigi möguleika á sigri og man ekki eftir formannsslag þar sem sitjandi formaður hafði svo slaka stöðu. Innlent 13.10.2005 18:45
Bush orðinn sturlaður? Fídel Kastró, leiðtogi Kúbu, sagði í gær að George Bush, forseti Bandaríkjanna, virtist vera orðinn sturlaður. Kastró lét þessi orð falla þegar hann ávarpaði kennararáðstefnu á Havana í gær. Ummæli hans koma í kjölfar þess að nýskipaður utanríkisráðherra Bandaríkjanna lýsti á dögunum Kúbu sem einu af löndunum þar sem harðstjórar væru við völd. Erlent 13.10.2005 18:45
Sharon og Abbas til Egyptalands? Hosni Mubarak, forseti Egyptalands, hefur boðið Ariel Sharon, forsætisráðherra Íraels, og Mahmoud Abbas, forseta Palestínu, til fundar í Egyptalandi í næstu viku að sögn forsætisráðuneytinu í Ísrael. Sharon hefur þegar þáð boðið en ekki hafa borist fregnir af viðbrögðum palestínskra yfirvalda. Erlent 13.10.2005 18:45
Flestir trúa á formannsskipti Um helmingi fleiri telja að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir verði næsti formaður Samfylkingarinnar, en þeir sem telja að Össur haldi áfram formennsku. Ef einungis er litið til stuðningsmanna flokksins er munurinn enn meiri. Innlent 13.10.2005 18:45
Fékk ekki aðgang að fundargerðum Eiríkur Tómasson lögfræðiprófessor hafði ekki aðgang að fundargerðum utanríkismálanefndar er hann vann álit fyrir forsætisráðherra um lögmæti ákvörðunar ríkisstjórnarinnar að styðja innrásina í Írak. Erlent 13.10.2005 18:45
Apótekari gagnrýndur í bæjarstjórn Framkvæmdastjóri Apóteks Vestmannaeyja segir bæjarfulltrúa hafa skaðað rekstur apóteksins með neikvæðri umræðu. Bæjarfulltrúinn hefur tvisvar sakað eiganda apóteksins um að standa ekki við gefin fyrirheit um samkeppnishæft vöruverð. Innlent 13.10.2005 18:45
Upplýst samþykki fyrir líffæragjöf Samband ungra framsóknarmanna skorar á Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra að skoða hvort hægt sé að útbúa upplýst samþykki landsmanna fyrir líffæragjöf. Benda ungir framsóknarmenn sérstaklega á framkvæmd sem tíðkast í nokkrum fylkjum Bandaríkjanna þar sem tekið er fram á ökuskírteini viðkomandi hvort líffæragjöf er samþykkt eður ei. Innlent 13.10.2005 18:45
Átök innan Framsóknar halda áfram Átök innan Framsóknarflokksins halda áfram, enda aðeins rúmar þrjár vikur í landsfund flokksins. Gera þurfti hlé á fundi Ungra framsóknarmanna í Kópavogi í gærkvöldi eftir að deilur spruttu upp vegna fjörutíu nýskráninga í félagið fyrir fundinn. Innlent 13.10.2005 18:45
Maraþonátök í Framsóknarflokknum Átökin í Framsóknarflokknum eru til tveggja ára því flokksmenn telja að þá muni Halldór Ásgrímsson hætta í stjórnmálum. Árni Magnússon ætlar sér formannsstólinn og hefur hafið valdatafl þar sem hver leikur skiptir máli. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 18:45
Vilja viðræður við einkaskóla Sjálfstæðismenn í borgarstjórn hafa áhyggjur af því að fjárskortur sé að sliga einkaskóla í borginni og vilja hefja við þá samningaviðræður. Innlent 13.10.2005 15:30