Stj.mál
142 143 144 145 146 147 148 149 150 … 187 ›
Stuðningurinn hófst í febrúar 2003 Íslensk stjórnvöld gáfu leyfi til þess í febrúar árið 2003 að herflugvélar gætu flogið um íslenska lofthelgi og haft hér viðdvöl vegna innrásar í Írak. Listi hinna staðföstu þjóða var ekki birtur fyrr en 18. mars. Í millitíðinni töluðu formenn stjórnarflokkanna í austur og vestur í afstöðunni til Íraksdeilunnar. Innlent 13.10.2005 15:26
Öll mismunun máð úr lögum Stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna hvetur þingmenn til þess að má úr lögum alla mismunun á grundvelli kynhneigðar. Stjórn SUS segir lög um staðfesta samvist og lög um tæknifrjóvganir fela í sér mismunun sem byggist á fordómum en ekki rökum. Innlent 13.10.2005 15:26
Reiði Össurar tilefnislaus IMG Gallup er ekki að gera skoðanakönnun fyrir stuðningsmenn Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, eins og Össur Skarphéðinsson hélt fram í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi. Varaþingmaður Samfylkingarinnar segir Össur hafa sýnt tilefnislausa reiði með ummælum sínum. Innlent 13.10.2005 15:26
Júsjenko útnefnir forsætisráðherra Viktor Júsjenko, nýkjörinn forseti Úkraínu, hefur útnefnt Juliu Tymoschenko sem forsætisráðherra landsins. Þingið í Úkraínu verður að samþykkja val Júsjenkos áður en forsætisráðherrann getur formlega tekið til starfa. Erlent 13.10.2005 15:26
Vilja breyta lögum um eftirlaun Forsætisráðherra vill breyta lögum um eftirlaun æðstu embættismanna ríkisins þannig að ekki verði lengur unnt að starfa á fullum launum og þiggja um leið eftirlaun. Guðmundur Árni Stefánsson, eini stjórnarandstæðingurinn sem studdi eftirlaunafrumvarpið, er sammála þessu. Innlent 13.10.2005 15:26
Órofa tengsl Samskipti verkalýðshreyfingarinnar og Samfylkingarinnar hafa talsvert verið til umræðu. Slík tengsl eiga sér langa sögu í íslenskum stjórnmálum og hafa velflestir flokkar kappkostað við að hafa ítök í launþegahreyfingunum og þær um leið í flokkunum. Innlent 13.10.2005 15:26
Kjarabætur stóðu ekki til Forsætisráðherra segir að mönnum hafi sést yfir þann möguleika að fyrrverandi ráðherrar gætu þegið eftirlaun á sama tíma og þeir gegndu starfi á vegum hins opinbera. Hann segir ástæðu til að taka málið til athugunar. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 15:26
Sérkennilegar kveðjur Formaður skipulagsráðs Reykjavíkur segir lögnámsbeiðni Kópavogs vera ótímabæra og ummæli Gunnars I. Birgissonar sérkennilega kveðju. Bæjarráðsmaður í Kópavogi segir ummæli Gunnars fordómafull og afturhaldssöm.</font /></b /> Innlent 13.10.2005 15:26
Aðför Fréttablaðsins að Halldóri Páll Magnússon, varaþingmaður Framsóknarflokksins og aðstoðarmaður iðnaðar- og viðskiptaráðherra, segir að Fréttablaðið sé í herferð gegn Halldóri Ásgrímssyni, forsætisráðherra og formanni Framsóknarflokksins. Páll vísar þar til umfjöllunar Fréttablaðsins um aðdraganda Íraksstríðsins og veru Íslands á lista hinna staðföstu þjóða. Innlent 13.10.2005 15:26
Stjórnarandstaðan á villigötum Fréttir um að listi hinna staðföstu þjóða sé ekki lengur til undirstrikar á hvaða villigötum stjórnarandstaðan er í Íraksmálinu, að mati Sólveigar Pétursdóttur, formanns utanríkismálanefndar Alþingis. Hún segir stjórnarliða aldrei hafa efast um að rétt hafi verið staðið að ákvörðun um stuðning Íslands við innrásina í Írak. Innlent 13.10.2005 15:26
Vísa skoðun prófessors á bug Leiðtogar stjórnarandstöðunnar vísa algerlega á bug þeirri skoðun forseta lagadeildar Háskóla Íslands að oddvitum ríkisstjórnarinnar hafi verið heimilt að styðja innrásina í Írak án samráðs við Alþingi og utanríkismálanefnd. Þeir segja Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson klárlega hafa brotið lög og formaður Vinstri - grænna útilokar ekki að það geti leitt til afsagnar þeirra. Innlent 13.10.2005 15:26
Deilt um stuðningsyfirlýsingu "Mönnum finnst að Gylfi sé að taka að sér umboð sem hann ekki hefur og það sé ómaklegt," segir Árni Guðmundsson formaður Starfsmannafélags Hafnarfjarðar og félagi í verkalýðsmálaráði Samfylkingarinnar. Innlent 13.10.2005 15:26
Segir árásir flokksfélaga grófar Formaður Samfylkingarinnar segir stuðningsmenn Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur hafa ráðist að sér með grófari og persónulegri hætti á síðustu dögum en andstæðingar hans í pólitík hafi nokkru sinni gert. Einn af áhrifamönnum innan Samfylkingarinnar vill að Ingibjörg Sólrún dragi formannsframboð sitt til baka. Innlent 13.10.2005 15:26
Framsóknarmenn í ójafnvægi "Mig undrar að Framsóknarmenn skuli kalla fréttaskrif Fréttablaðsins aðför að forsætisráðherra. Blaðið hefur ekki gert annað en segja fréttir af umræðunni dagana sem Halldór Ásgrímsson og Davíð Oddsson ákváðu stuðning Íslendinga við innrásina í Írak," sagði Sigurjón M. Egilsson, fréttaritstjóri á Fréttablaðinu, um fullyrðingar Páls Magnússonar, aðstoðarmanns iðnaðarráðherra, um að Fréttablaðið væri með aðför að Halldóri Ágrímssyni forsætisráðherra. Innlent 13.10.2005 15:26
Borgarfulltrúar leiti sér sálfræðihjálpar Formaður bæjarráðs Kópavogs segir að vegna minnimáttarkenndar gagnvart Kópavogi ættu borgarfulltrúar R-listans kannski að leita sér sálfræðihjálpar. Reykjavíkurborg meinar Kópavogi að leggja vatnsleiðslu um land sitt. Iðnaðarráðuneytið er með málið til skoðunar. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 15:26
Friðarákvæði í Stjórnarskrá Samfylkingin leggur fram lagafrumvarp á Alþingi í dag þar sem lagt er til að í 21. grein stjórnarskrárinnar verði heimild til að lýsa yfir stuðningi eða eiga aðild að stríði bundin við meirihlutasamþykki Alþingis. Innlent 13.10.2005 15:26
Segir smáþjóðir geta skipt sköpum Ísland og aðrar smáþjóðir geta skipt sköpum í sáttaumleitunum með því að sýna hógværð í umdeildum alþjóðamálum, segir Thorvald Stoltenberg, fyrrverandi utanríkisráðherra Noregs. Hann telur smáþjóðir geta haft mikil áhrif með starfi innan öflugra alþjóðastofnana. Innlent 13.10.2005 15:26
Kárahnjúkar og Írak á Alþingi Formenn þingflokkanna segjast eiga von á því að Íraksmálið og Kárahnjúkar verði meðal þeirra mála sem rædd verði í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi sem kemur saman að nýju í dag eftir jólaleyfi. Innlent 13.10.2005 15:26
Höfðu heimild til að taka ákvörðun Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson höfðu fulla lagalega heimild til þess að taka einir þá ákvörðun að styðja innrás Bandaríkjanna og Bretlands í Írak. Þetta segir Eiríkur Tómasson, forseti lagadeildar Háskóla Íslands. Innlent 13.10.2005 15:26
Listinn ekki lengur notaður Ísland er ekki lengur á neinum lista yfir bandamenn Bandaríkjanna í Íraksmálinu, samkvæmt því sem Reuters-fréttastofan hafði eftir ónefndum bandarískum embættismanni í gær. Erlent 13.10.2005 15:26
Brunabótamatið ónothæft Brunbótamat er ónothæfur grundvöllur til að ákvarða veðhæfni eigna. Því ber að breyta strax og miða lánveitingar við kaupverð eigna, að mati Jónnu Sigurðardóttur þingmanns Samfylkingarinnar. Jóhanna ritar um málið á heimasíðu sinni og segir að vegna misræmis brunabótamats og kaupverðs hafi rýmkaðir lánamöguleikar Íbúðalánasjóðs ekki hafa nýst sem skyldi. Innlent 13.10.2005 15:26
Mikil viðbrögð Mikil viðbrögð hafa borist vegna auglýsingar Þjóðarhreyfingarinnar sem birtist í dagblaðinu New York Times á föstudag, að sögn Ólafs Hannibalssonar. Innlent 13.10.2005 15:26
Fátækt nýja ógnin Hagsmunum Norðurlandaþjóðanna er best borgið innan alþjóðlegra stofnana líkt og Sameinuðu þjóðanna, NATO og Evrópusambandsins. Þetta sagði Thorvald Stoltenberg, fyrrum utanríkisráðherra Noregs og forseti norska Rauða Krossins, á málþingi framtíðarhóps Samfylkingar í gær. Innlent 13.10.2005 15:26
Stoltenberg ræðir um öryggismál Thorvald Stoltenberg, fyrrverandi utanríkisráðherra Noregs, verður aðalræðumaður á málþingi framtíðarhóps Samfylkingarinnar um stöðu öryggismála í heiminum, sem fram fer á Grand Hóteli í Reykjavík í dag. Innlent 13.10.2005 15:26
Heimurinn hættulegri eftir innrás Heimurinn er hættulegri og hryðjuverkaógnin hefur aukist eftir innrásina í Írak, segir Thorvald Stoltenberg, fyrrverandi utanríkisráðherra Noregs, sem var aðalræðumaður á málþingi um öryggismál í heiminum, sem Samfylkingin hélt í dag. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segir að aðild Íslands að innrásinni gangi á svig við friðarímynd landsins. Innlent 13.10.2005 15:26
Funda um trúnað í utanríkisnefnd Halldór Ásgrímsson neitar að verða við beiðni fjölmiðla um viðtal vegna Íraksmálsins. Formaður utanríkismálanefndar segir að ekki standi til að aflétta trúnaði á fundargerðum nefndarinnar. </font /></b /> Erlent 13.10.2005 15:25
Ekki minnst á Gallup Auglýsing Þjóðarhreyfingarinnar þar sem íraska þjóðin er beðin afsökunar á stuðningi íslenskra stjórnvalda við innrásina í Írak birtist í New York Times í gær. Innlent 13.10.2005 15:25
Dreifbýli megi síst við hækkunum Húshitunarkostnaður á Vestfjörðum hækkar um 70 til 80 milljónir króna á ári, eða um hátt í tíu þúsund krónur á hvert mannsbarn, í kjölfar breytinga á rekstrarumhverfi raforkufyrirtækja. Einar K. Guðfinnsson alþingismaður segir að strjálbýlið megi alls ekki við slíku og að leita verði allra leiða til að koma í veg fyrir þetta. Innlent 13.10.2005 15:25
Ráðherra vill aukið eftirlit Eftirlit með erlendu ólöglegu vinnuafli hér á landi er á hendi lögreglu, segir dómsmálaráðherra. Ráðuneyti hans hefur ekki haft þessi mál sérstaklega til skoðunar að undanförnu, þrátt fyrir fullyrðingar um ólöglega atvinnustarfsemi hér. Félagsmálaráðherra vill hert eftirlit. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 15:25
Fundargerð orðin opinber Fréttablaðið birtir í morgun orðréttan texta upp úr fundargerðum utanríkismálanefndar Alþingis. Þingflokkur Samfylkingarinnar hefur farið fram á að trúnaði verði aflétt af fundargerðum nefndarinnar og ríkisstjórnarinnar þar sem fjallað var um aðdraganda ákvörðunarinnar um stuðning Íslands við innrásina í Írak og um að Ísland skyldi vera sett á lista hinna staðföstu þjóða. Innlent 13.10.2005 15:25