Fjárlagafrumvarp 2027

Fréttamynd

Kynna vaxtar­plan sem gæti skilað 300 milljarða viðsnúningi í af­komu ríkis­sjóðs

Með markvissum aðgerðum til að efla fimm helstu útflutningsgreinar landsins, sölu ríkiseigna og auknu aðhaldi í opinberum útgjöldum væri hægt að auka hagvöxt um nær helming frá núverandi spám og bæta afkomu ríkissjóðs um hátt í 300 milljarða króna á næstu fimm árum, samkvæmt tillögum sem forstjóri Stoða hefur kynnt hluthöfum. Telur hann að með slíkum aðgerðum mætti jafnframt lækka skuldir ríkissjóðs um helming og draga verulega úr vaxtakostnaði hins opinbera.

Innherji
Fréttamynd

Ríkis­stjórnin sker niður þjónustu við börn

Árið 2021 samþykkti Alþingi farsældarlögin undir forystu Ásmundar Einars Daðasonar fv. mennta- og barnamálaráðherra með stuðningi úr öllum flokkum. Loforðið var skýrt. Barn sem þarf stuðning á að halda, ber að fá hann snemma, á réttum stað og án þess að fjölskyldan þurfi að berjast við kerfið. Ríkisstjórnin ætlar nú að svíkja það loforð.

Skoðun
Fréttamynd

Nauð­syn­legt að ríkið fjár­magni fleiri stöðu­gildi

Embætti Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra segir það nauðsynlegt að ríkið geri ráð fyrir sjö nýjum stöðugildum hjá embættinu í fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2027. Þá er farið fram á verulegan hluta af tímabundinni fjármögnun fyrir sérstök verkefni.

Innlent
Fréttamynd

Lokun einu innilaugar sveitar­fé­lagsins í­búum mikið á­fall

Vegna aðhaldskröfu hefur Heilbrigðisstofnun Norðurlands ekki getað opnað eftir sumarlokun endurhæfingarlaug sem staðsett er á stofnuninni. Um er að ræða einu innilaugina á Norðurlandi vestra. Eldri borgarar, ungir foreldrar, barnshafandi konur og fólk með gigt hefur nýtt sér laugina. Íbúar segja lokunina mikið áfall og vilja að stjórnvöld bregðist við.

Innlent
Fréttamynd

Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu

Rekstrarfélag Herjólfs segist verða að hætta við kaup á tveimur varamótorum fyrir ferjuna ef ríkið tryggir ekki fjármögnun þeirra. Samkvæmt félaginu hafa mótorarnir þegar verið pantaðir og þrjátíu prósent kaupverðsins greidd en það segist ekki eiga fyrir eftirstöðvunum.

Innlent
Fréttamynd

Minni gjaldahækkanir kosti ríkis­sjóð 2,5 milljarða

Það myndi kosta ríkissjóð um tvo og hálfan milljarð króna að lækka fyrirhugaðar gjaldahækkanir úr 5,2 prósentum í 2,5 prósent, að sögn fjármálaráðherra. Hann segir svigrúm til þess í fjárlagafrumvarpinu og markmið um hallalaus fjárlög standi áfram.

Innlent
Fréttamynd

Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt

Þingmaður stjórnarandstöðunnar sem var einn þeirra sem fjármálaráðherra kallaði „þetta lið“ segist vart trúa því að hún þurfi enn á ný að „verjast óskiljanlegum brigslyrðum“ hæstvirts fjármálaráðherra í sinn garð. Hún hafni því sem hann haldi fram um að hún hafi sagt hallarekstur hvergi koma niður og krefst þess að ráðherra vísi þá til hvenær hún hafi gert það.

Innlent
Fréttamynd

Gagn­rýna harð­lega fyrir­hugaðar skatta- og gjaldahækkanir

Starfsgreinasamband Íslands (SGS) hefur skilað umsögn um frumvarp vegna fjárlaga 2027 en þar gagnrýnir sambandið harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir stjórnvalda. Sambandið geti með engu móti stutt það óbreytt og telur að „stjórnvöld þurfi að horfast í augu við eigin ábyrgð á verðbólguþróuninni“.

Innlent
Fréttamynd

Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir

Það væri undarleg taktík að boða 5,2 prósenta gjaldahækkanir til að fá sveitarfélög, atvinnurekendur og verkalýðsfélög að samningaborðinu um minni hækkanir, að mati Almars Guðmundssonar, formanns Sambands íslenskra sveitarfélaga. Hann vill að ríkið fylgi fordæmi sveitarfélaganna og takmarki hækkanirnar við 2,5 prósent.

Innlent
Fréttamynd

Skatt­lagning til vel­sældar

Í upphaf mánaðar kynnti ríkisstjórnin fjárlög fyrir árið 2027. Þar var í raun ekkert sem kom á óvart. Það voru auknar álögur á heimil og ferðamenn þrátt fyrir loforð forsætisráðherra fyrir síðustu alþingiskosningar um að skattar yrðu ekki hækkaðir á „venjulegt fólk”.

Skoðun
Fréttamynd

„Nauð­syn­legt er að kjara­samningar haldi“

Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga samþykkti í dag ályktun um að sveitarfélög sýni ábyrgð gagnvart stöðu efnahagsmála og taki virkan þátt í að bæta stöðuna. Ályktunin var lögð fram af formanni sambandsins, Almari Guðmundssyni.

Innlent
Fréttamynd

Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni

Fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2027 er kynnt með þeim orðum að efla eigi háskólastigið. Í málaflokki háskóla og rannsóknastarfsemi eru 1.343 milljónir króna sérstaklega ætlaðar til eflingar háskólastigsins, en um leið er gerð 1.351,4 milljóna króna aðhaldskrafa á málaflokkinn.

Skoðun
Fréttamynd

Útgjaldaaukningin mest hjá Ragnari

Hlutfallsleg aukning útgjalda er mest í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu ef marka má fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2027. Þetta segir hagfræðingur Viðskiptaráðs. Niðurskurður til vegamála hafi komið á óvart enda rími það illa við umræðu um mikla innviðauppbyggingu.

Innlent
Fréttamynd

Vonar að „Evrópu­sam­bands­blætið“ renni af for­ystu ríkis­stjórnarinnar

Sigríður Andersen, þingkona Miðflokksins, segir ríkisstjórnina verða dæmda af verkum sínum. Hún hafi verið með „Evrópusambandsblæti“ en þjóðin hafi talað. Hún ætti að einbeita sér að efnahagsmálunum næstu kjörtímabilin. Sigríður og Ása Berglind Hjálmarsdóttir, þingkona Samfylkingarinnar, tókust á í Sprengisandi um þingveturinn fram undan.

Innlent
Fréttamynd

Mennta­kerfið, út­lendinga­mál og halla­laus fjár­lög í Sprengi­sandi

Það er fjölbreytt dagskrá að vanda í Sprengisandi á Bylgjunni í dag. Páll Magnússon stýrir þættinum í dag og tekur á móti Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra til að ræða breytingar í útlendingamálum, tillögu um breytta skiptingu þingmanna milli kjördæma, fækkun sýslumanna og lögreglustjóra – og fleira.

Innlent
Fréttamynd

Gefa ríkis­stjórninni rauða spjaldið

„Miðstjórn Alþýðusambands Íslands (ASÍ) lýsir yfir þungum áhyggjum vegna fjárlagafrumvarps ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur, sem lagt var fram í liðinni viku. Framganga ríkisstjórnarinnar, ekki síst í ljósi krefjandi aðstæðna sem forsendubrestur kjarasamninga hefur skapað, er með öllu óskiljanleg og kallar á viðbrögð verkalýðshreyfingarinnar.“

Innlent
Fréttamynd

Kílómetragjald á um­önnun

Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027 er boðuð 15,9% hækkun kílómetragjalds. Fyrir fjölskyldur fatlaðra barna bætist hún við kostnað sem erfitt er að draga úr. Akstur til lækna, í þjálfun, skóla og önnur úrræði ræðst af þörfum barnsins og því hvar þjónustan fæst.

Skoðun
Fréttamynd

Heimilis­læknar minna ríkis­stjórn á gefin lof­orð

Stjórn Félags íslenskra heimilislækna (FÍH) lýsir yfir sárum vonbrigðum með fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar fyrir næsta ár. Í ályktun minnir stjórnin ríkisstjórnina á gefin loforð um að allir landsmenn eigi að hafa fastan heimilislækni.

Innlent
Fréttamynd

Telja að hallinn geti orðið yfir fjöru­tíu milljarðar þrátt fyrir fyrir­heit um af­gang

Útlit er fyrir að afkoma ríkissjóðs á árinu 2027 verði umtalsvert lakari en lagt er upp með í nýju fjárlagafrumvarpi, að mati greinenda Acro, sem telja líklegustu sviðsmyndina vera halli upp á 43 milljarða. Forsendur frumvarpsins eru sagðar of bjartsýnar, „svo ekki sé fastar að orði kveðið“, miðað við hægari efnahagsumsvif og án frekari aðgerða sé erfitt að sjá hvernig markmið um fimm milljarða afgang geti gengið eftir.

Innherji
Fréttamynd

Sendir röng skila­boð og hreyfir við verðbólgu­væntingum á brot­hættum stað

Afleiðingarnar af því að boða hækkun á gjöldum ríkisins í samræmi við verðbólgu, sem hefur verið gert í síðustu tveimur fjárlagafrumvörpum, verða til þess að hreyfa við verðbólguvæntingum sem eru fyrir á „brothættum stað“, að sögn varaseðlabankastjóra, og að Seðlabankinn myndi gjarnan vilja sjá þetta endurhugsað. Hann segir jákvætt að aðhaldsstigið í ríkisfjármálum eigi að aukast á milli ára og varar við því að fara í meiri launahækkanir á vinnumarkaði, einkum núna þegar það er að myndast „mikill slaki í þjóðarbúinu.“

Innherji
Fréttamynd

Hart tekist á um fjár­lögin: „Hvað er að þessu liði?“

Fjármála- og efnahagsráðherra var ómyrkur í máli þegar fjárlagafrumvarp hans var rætt á fundi Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu í morgun. Hann sakaði fyrri ríkisstjórnir um að hafa eytt um efni fram allt frá árinu 2019 og komið ríkissjóði í 800 milljarða króna mínus. „Hvað er að þessu liði?“ spurði hann meðal annars.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Fjár­laga­frum­varpið „köld kveðja til launa­fólks“

Stjórn VR kallar fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar kalda kveðju til launafólks. Ekki aðeins hafi stjórnvöld virt að vettugi skuldbindingar um að halda gjaldskrárhækkunum í hófi, heldur hyggist ríkisstjórnin nú hækka gjaldskrár umfram verðbólgumarkmið Seðlabankans. Þá furðar stjórnin sig á því hvers vegna tímabundnar aðgerðir vegna hækkandi olíuverðs voru ekki framlengdar.

Innlent
Fréttamynd

„Við erum að gera stóra hluti í sam­göngum“

Hærri fjárhæðir eru ætlaðar til vegakerfisins og vetrarþjónustu í samgönguáætlun núverandi ríkisstjórnar en í tillögu fyrri ríkisstjórnar. Núverandi ríkisstjórn stefnir jafnframt að því að hefja framkvæmdir við Fljótagöng árið 2027 og undirbúa fleiri jarðgöng.

Innlent
Fréttamynd

Telur Þórð hafa mis­skilið en sama tala varð niður­staðan

Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra telur líklegt að Þórður Snær Júlíusson hafi misskilið upplýsingar þegar hann sagði í mars að bankaskattur ætti að skila sex milljörðum króna. Ráðherrann segist hins vegar ekki geta skýrt hvers vegna sama fjárhæð varð síðar niðurstaðan í fjárlagafrumvarpinu.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Skera rúma fjóra milljarða af vega­gerð

Ráðamenn Vegagerðarinnar og Betri samgangna lesa stórfelldan niðurskurð til framkvæmda í vegagerð út úr nýbirtu fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar, niðurskurð upp á samtals 4,4 milljarða króna. Hjá Vegagerðinni er boðaður 2,4 milljarða króna niðurskurður. Hjá Betri samgöngum, fyrirtæki ríkisins og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, er boðaður tveggja milljarða króna niðurskurður, samkvæmt upplýsingum frá fulltrúum þeirra.

Innlent
Fréttamynd

Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig

Taka þarf á agaleysi í útgjöldum ríkisstofnana segir fjármálaráðherra sem boðar verulega aukið eftirlit. Þingstörf hófust á ný í morgun þegar ráðherra mælti fyrir hallalausum fjárlögum. Þingmenn stjórnarandstöðunnar gagnrýndu gjaldahækkanir og óttast að sveitarfélög muni fylgja fordæmi ríkisins.

Innlent