Eldgos og jarðhræringar
132 133 134 135 ›
Hætta á öskufalli í byggð Flugumferð hefur verið beint suður fyrir Ísland í nótt vegna gosmakkar frá eldgosinu. Mest hætta á öskufalli í byggð er sem stendur norðaustur af eldstöðinni, eins og í Vopnafirði. Víðir Reynisson, verkefnafulltrúi Almannavarna, segir hættu ekki stafa af gosinu að svo stöddu. Aukafréttatími verður á Stöð 2 klukkan 12.25. Innlent 13.10.2005 14:54
Miklar sprengingar í gígnum Miklar sprengingar hafa verið í gígnum í Grímsvötnum í dag og stíga háir öskubólstrar upp frá gosstöðvunum. Það er talið að Grímsvötn hafi gosið um sjötíu sinnum frá því að land byggðist, oftar en nokkur önnur eldstöð. Innlent 13.10.2005 14:54
Búfé á gjöf vegna goss Öllu fé var smalað og það sett inn á gjöf á Möðrudal á Möðrudalsöræfum í gær, að sögn Önnu Birnu Snæþórsdóttur húsfreyju. Innlent 13.10.2005 14:54
Gosmökkurinn nær hátt til himins Fyrstu merki um gosmökk frá eldgosinu í Grímsvötnum sáust á veðurradar Veðurstofunnar klukkan 23:10 í gærkvöld og náði mökkurinn þá upp í um 8 kílómetra hæð. Klukkan rúmlega 1 í nótt náði mökkurinn upp í um 13 kílómetra hæð, en hefur verið nokkuð breytilegur síðan þá. Gosmökkurinn sýnist á radarmyndinni vera frekar sunnarlega miðað við Grímsvötn, en að öllum líkindum er það vegna ónákvæmni í mælingunum, en radarinn er í um 260 km fjarlægð frá gosinu. Innlent 13.10.2005 14:54
Flugsvæði lokað Eldgosið í Grímsvötnum hefur valdið því að um 311.000 ferkílómetrasvæði norð-austur af gosstöðvunum er lokað fyrir flugumferð. Innlent 13.10.2005 14:54
Ljóst að um gos er að ræða "Smám saman hefur orðið ljósara að um gos er að ræða í eða við Grímsvötn og það upp úr ísnum," segir í tilkynningu sem Ragnar Stefánsson, jarðeðlisfræðingur á Veðurstofunni sendi frá sér rétt í þessu. Innlent 13.10.2005 14:54
Stöðugur gosórói í Grímsvötnum Fullvíst má nú telja að eldgos sé hafið í eða við Grímsvötn. Samkvæmt tilkynningu frá samhæfingarstöð almannavarna hófst stöðugur gosórói í Grímsvötnum um kl. 22:10 í kvöld. Í tilkynningunni segir að jarðvísindamenn og starfsfólk í samhæfingarstöð almannavarna fylgist með framvindu mála. Innlent 13.10.2005 14:54
Eldgos líklega hafið í Grímsvötnum "Það er margt sem bendir til þess að gos sé hafið í eða við Grímsvötn. Við vitum ekki mikið meira um það í bili, hvort það er enn ofan í vatninu sjálfu eða undir ís, eða hvort það hefur brotið sér leið upp. Þetta er á mjög svipuðum slóðum og eldgosið í Grímsvötnum 1998," sagði Ragnar Stefánsson, jarðeðlisfræðingur á Veðurstofu Íslands í kvöld. Innlent 13.10.2005 14:54
Veginum við Skeiðarársand lokað Lögreglustjórarnir í Vík í Mýrdal og á Höfn í Hornafirði hafa samkvæmt ráðleggingum jarðvísindamanna og almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra ákveðið að loka veginum um Skeiðarársand á miðnætti. Veginum verður lokað af öryggisástæðum. Lokanirnar verða við Núpsstað að vestan og við afleggjarann að Skaftafelli að austan. Innlent 13.10.2005 14:54