Loftslagsmál
16 17 18 19 20 21 22 23 24 … 79 ›
Barn dó í hagléli á Spáni og fimmtíu slösuðust Tuttugu mánaða gömul stúlka lést á Spáni í gær eftir að hafa orðið fyrir stærðarinnar hagléli. Þá slösuðust fimmtíu er mjög óvenjulegt óveður gekk yfir La Bisbal de l’Emporda og aðra bæi í Girona í Katalóníu á Spáni. Erlent 31.8.2022 12:45
Íslendingar verða að búa sig undir óafturkræfar afleiðingar loftslagsbreytinga Jafnvel þótt mannkynið hætti allri losun gróðurhúsalofttegunda í dag er ekki hægt að afstýra auknum hamförum vegna loftlagsbreytinganna. Íslendingar verða eins og aðrar þjóðir að aðlaga sig þessum raunveruleika að mati veðurstofustjóra. Innlent 30.8.2022 19:20
„Monsúnrigning á sterum“ Antonio Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir Pakistan standa frammi fyrir „monsúnrigningu á sterum“. Tugir milljóna hafa orðið fyrir barðinu á miklum flóðum þar og er einn þriðji landsins sagður undir vatni, þó rigningarnar hafi hætt fyrir þremur dögum. Erlent 30.8.2022 15:56
Yfirvöld nota gervigreind til að finna faldar sundlaugar Yfirvöld í Frakklandi hafa notað gervigreind til að leita að sundlaugum í níu héruðum, sem íbúar hafa ekki gefið upp. Fleiri en 20 þúsund sundlaugar hafa fundist til þessa og fært skattayfirvöldum jafnvirði 1,4 milljarða króna í tekjur. Erlent 30.8.2022 07:45
Minnst 27 sentímetra hækkun sjávarmáls óumflýjanleg Búist er við 27 sentímetra hækkun á sjávarmáli að lágmarki vegna yfirvofandi bráðnunar jökulhetta á Grænlandi í kjölfar frekari hlýnunar jarðar. Þessi hækkun er sögð ekki taka til greina bráðnun annarsstaðar í heiminum en sú frá Grænlandi myndi ein valda fyrrnefndri hækkun enda um mikið magn íss að ræða eða 110 billjón tonn. Erlent 29.8.2022 20:08
Pakistanar kalla eftir aðstoð vegna gífurlegra flóða Ráðamenn í Pakistan segja ríkið nauðsynlega þurfa aðstoð til að bregðast við miklum flóðum þar í landi. Minnst þúsund eru látnir vegna flóðanna og eru þau sögð hafa valdið gífurlegum skaða víðsvegar um landið. Erlent 29.8.2022 10:51
Kolefnisjöfnun er mikilvæg en það þarf að standa rétt að henni Kolefnisjöfnun er hugtak sem heyrist æ oftar notað hér á landi. Okkur býðst að kolefnisjafna kaup á vörum og þjónustu, eldsneyti, flugferðir og allt þar á milli. Það er jákvætt að sjá að íslensk fyrirtæki og almenningur taki ábyrgð á kolefnisspori sínu eins og frekast má og séu hluti af vitundarvakningu um allan heim um áhrif loftslagsbreytinga. Skoðun 29.8.2022 10:00
Vatnsbúskapur í Evrópu í mikilli hættu vegna hlýnunar Bráðnun jökla hefur aldrei verið meiri en í ár. Veðurstofustjóri segir vatnsbúskap í sérstakri hættu og segir það skýrt hverjar afleiðingar hlýnunar verði í framtíðinni. Innlent 28.8.2022 13:50
Segir Reykjavíkurflugvöll gríðarlega mikilvægan varavöll millilandaflugs Yfirflugstjóri Icelandair segir gríðarlega mikilvægt að geta notað Reykjavíkurflugvöll sem varavöll millilandaflugs og kallar eftir betri innviðum á vellinum. Hann spari Icelandair hálfan milljarð króna á ári í eldsneytiskostnað og dragi verulega úr útblæstri koltvísýrings. Innlent 26.8.2022 22:12
Orkuveitan freistar þess að fá alþjóðlegt fjármagn inn í rekstur Carbfix Orkuveita Reykjavíkur mun hefja undirbúning að hlutafjármögnun dótturfélagsins Carbfix sem gæti numið um 1,4 milljörðum króna. Fjöldi alþjóðlegra fjárfesta, þar á meðal Credit Suisse og og fjárfestingaarmur norska ríkisolíufélagsins Equinor, hefur lýst yfir áhuga á því að koma að uppbyggingu íslenska nýsköpunarfyrirtækisins. Innherji 26.8.2022 07:25
Ætla að þvinga rigningu úr skýjum í von um að bjarga uppskerum Yfirvöld í Kína hyggjast framkalla rigningu með því að sá efnum í ský til að vernda kornuppskeru landsins. Sumarið í ár er það heitasta og þurrasta frá því mælingar hófust í Kína fyrir 61 ári. Vegna þess hafa uppskerur visnað og uppistöðulón eru helmingi vatnsminni en venjulega. Erlent 22.8.2022 07:52
Loftslagsmál, leikskólar, fíkniefni og formannsframboð Kristrúnar Frostadóttur í Sprengisandi Á Sprengisandi í dag verður rætt um „neyðarástand“ í loftslagsmálum, stefnu yfirvalda í fíkniefnamálum, loforð í leikskólamálum og framboð Kristrúnar Frostadóttur til formanns Samfylkingarinnar. Innlent 21.8.2022 09:52
Hafa aldrei mælt meiri hita utan eyðimerkur Ekki hefur rignt minna í Kína að sumri til í um sextíu ár. verksmiðjum víða um landið hefur verið gert að loka dyrum sínum samhliða því að mikið vatn vantar í vatnsból orkuvera og Kínverjar kveikja á loftkælingum sínum í massavís. Erlent 19.8.2022 13:40
Verkkvíði ríkisstjórnar í loftslagsmálum Það blasir alltaf skýrar við að aðgerðir í loftslagsmálum eru stærsta hagsmunamál komandi kynslóða. Í allt sumar hefur Evrópa glímt við mikla þurrka sem nú stefna í að verða þeir mestu í 500 ár. Þeir hafa valdið uppskerubresti, fiskidauða og truflunum á vöruflutningum. Vatnskortur sem einu sinn þótti óhugsandi er nú yfirvofandi og afleiðingarnar leyna sér ekki. Skoðun 19.8.2022 13:30
Katrín svarar Björk: Ekki þörf á fleiri orðum heldur aðgerðum Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, segir að sér þyki leitt að Björk Guðmundsdóttir hafi orðið fyrir vonbrigðum með hana. Meiri þörf á aðgerðum en orðum í loftslagsmálum. Innlent 19.8.2022 12:26
Björk sakar Katrínu um svik á ögurstundu Söngkonan Björk Guðmundsdóttir segir að Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, hafi á ögurstundu svikið samkomulag sem hún á að hafa gert við Björk og sænska loftslagsaðgerðasinnann Gretu Thunberg. Björk segir að Katrín hafi ekki gert neitt fyrir umhverfið. Innlent 19.8.2022 09:43
Hvað græðum við á loftslagsaðgerðum? Miðað við hægagang stjórnvalda í viðbrögðum sínum við yfirvofandi loftslagshamförum mætti halda að ábatinn af því að ráðast í aðgerðir fyrir samfélagið í heild sé ekki nægilega skýr. Skoðun 18.8.2022 12:30
Samstaða á tímum loftslagsbreytinga Eins og þið hafið eflaust oft heyrt erum við stödd á tíma mikilla loftslagsbreytinga. Þetta eru loftslagsbreytingar sem eru nú þegar byrjaðar að hafa mikil áhrif á líf fólks og munu halda áfram að gera. Til þess að koma í veg fyrir meiri skaða og takast á við verðandi afleiðingar loftslagsbreytinga er mikilvægt að við stöndum saman. Skoðun 16.8.2022 11:31
Í dag > Í gær Ég fæddist inn í þennan heim þegar mánaðarlegur meðalstyrkur koltvísýrings í andrúmsloftinu á Mauna Loa mælingastöðinni á Hawaii var rúmlega 357 milljónahlutar (ppm). Ég vill nýta tækifærið og þakka Charles David Keeling fyrir að sýna mikla þrautseigju við upphaf mælinga á the Keeling Curve. Skoðun 15.8.2022 10:01
Lífríki í ám og sjó ógnað Loftslagbreytingar, mengun og innrásartegundir í dýraríkinu valda því að dýraríkið í vötnum og sjó hefur tekið miklum breytingum á Spáni á síðustu árum. Erlent 13.8.2022 13:00
Carbfix vinnur að byltingarkenndri lausn í kolefnisbindingu Carbfix mun á næstunni hefja tilraunir með að nota sjó til að steinrenna koltvísýringi í berglögum neðanjarðar. Mikil tækifæri felast í tilraunum Carbfix fyrir lönd og landsvæði sem hafa takmarkað aðgengi að ferskvatni en eru nálægt sjó. Innlent 12.8.2022 11:44
Mestu þurrkar Evrópu í fimm hundruð ár Lítið sem ekkert hefur rignt í Vestur-, Suður- og Mið-Evrópu í tæpa tvo mánuði. Veðurfræðingar búast ekki við rigningu á næstunni og hefur þurrkunum verið lýst sem þeim verstu í heimsálfunni í fimm hundruð ár. Erlent 12.8.2022 10:37
Ég skora á þig að verða vegan! Í amstri dagsins er auðvelt að gleyma sér í hversdagsleikanum. Við hugsum um vinnuna eða skólann, og hvað verði í kvöldmatinn. Við heyrum talað um loftslagsvána í fréttunum og hversu stórt vandamál hún er. Við fáum hnút í magann og skiptum um rás. Skoðun 11.8.2022 14:00
Öldungadeildin samþykkir sögulegt frumvarp í baráttunni gegn loftslagsbreytingum Öldungadeild bandaríska þingsins samþykkti í gær löggjöf sem kveður á um eina umfangsmestu fjárfestingu Bandaríkjanna í aðgerðum gegn loftslagsbreytingum og til að lækka smásöluverð á lyfseðilsskyldum lyfjum. Erlent 8.8.2022 07:15
Segir þolmarkadag jarðar skuggalega framarlega á árinu Jarðarbúar eru komnir að þolmörkum á nýtingu auðlinda jarðar. Það þýðir að frá og með deginum í dag göngum við hraðar á auðlindir jarðar en þær ná að endurnýja sig. Sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun segir að dagurinn sé skuggalega framarlega á almanaksárinu og ítrekar að aðgerða sé þörf. Innlent 28.7.2022 11:45
Meira en 70 ferkílómetrar orðið eldunum við Yosemite að bráð Slökkviliðsmönnum í Kaliforníu hefur tekist að hægja verulega á útbreiðslu skógarelda í nágrenni við Yosemite þjóðgarðinn. Nú hafa 55 mannvirki orðið eldunum að bráð og þúsundir hafa þurft að flýja heimili sín. Erlent 26.7.2022 10:43
Skógareldarnir brenni í offorsi svæði sem hefðu átt að brenna á mörgum árum Íslendingur búsettur í Kaliforníu segir ekki boða gott að fyrstu gróðureldar sumarsins brenni með svo miklu offorsi. Eldarnir séu afleiðing áratugalangra mistaka hjá stjórnvöldum sem skilji ekki náttúruna á svæðinu. Innlent 25.7.2022 18:01
Segir fásinnu að stuðningur við rafbíla sé óhagkvæmur Formaður rafbílasambands segir mikið af ranghugmyndum í nýrri skýrslu Hagfræðistofnunar um hagkvæmni loftslagsaðgerða. Stofnunin gefi sér mikið af röngum forsendum og algjör fásinna sé að skella loftslagsskuldinni á rafbíla. Innlent 22.7.2022 12:55
Landgræðsla hagkvæmasta loftslagsaðgerðin Í nýrri skýrslu Hagfræðistofnunar segir að landgræðsla og skógrækt séu tvær hagkvæmustu loftslagsaðgerðir sem íslensk stjórnvöld hafa ráðist í. Á hinn bóginn sé stuðningur við kaup á rafbílum langóhagkvæmasta aðgerðin. Innlent 22.7.2022 07:16
Fyrirtækin sýna ábyrgð í loftslagsmálum Í viðtali á Stöð 2 sem endurbirt er á Vísi segir svokallaður loftslagssérfræðingur ASÍ að fyrirtækin í landinu geri lítið til að draga úr losun á gróðurhúsalofttegundum og takist því ekki á við loftslagsvandann. Þetta er fjarri öllum sannleika. Skoðun 21.7.2022 12:00
Fjölmiðlafólki vísað úr salnum við myndbirtingu: „Þetta er ósæmilegt og átakanlegt myndefni“ Erlent