Blikastúlkur unnu tvisvar á Akureyri og eru komnar upp í Dominos Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. mars 2017 21:06 Isabella Ósk Sigurðardóttir átti mjög flottan leik með Breiðabliki. Vísir/Ernir
Breiðablik tryggðu sér sæti í Domino´s deild kvenna í körfubolta í kvöld eftir fjórtán stiga sigur á deildarmeisturum Þórs á Akureyri, 56-42, en oddaleikur liðanna var spilaður í Síðuskóla á Akureyri. Isabella Ósk Sigurðardóttir átti mjög flottan leik með Breiðabliki í kvöld en hún skoraði 21 stig, tók 18 fráköst og varði fjögur skot. Sóllilja Bjarnadóttir, sem kom aftur heim í Breiðablik í haust, skoraði 13 stig og Telma Lind Ásgeirsdóttir var með 10 stig eins og Auður Ólafsdóttir sem kom frá Skallagrími á miðju tímabili. Helga Rut Hallgrímsdóttir var með 12 stig og 12 fráköst hjá Þór og Rut Herner Konráðsdóttir skoraði 11 stig. Hildur Sigurðardóttir er á sínu fyrsta ári sem þjálfari í meistaraflokki og hún skilaði Blikaliðinu upp í Domino´s deildina strax á fyrsta ári. Blikar eiga því aftur lið í efstu deild kvenna en Blikar féllu úr deildinni vorið 2015 eða sama ár og Hildur lagði skóna á hilluna. Þórsliðið vann deildina og var með heimavallarrétt í lokaúrslitunum en það dugði skammt þar sem Breiðablik vann báða leiki liðanna á Akureyri. Þór náði að sækja sigur í Smárann í Kópavogi í síðasta leik og tryggja sér oddaleik en norðanstúlkur náðu ekki að fylgja því eftir í kvöld. Þórsliðið var reyndar fimm stigum yfir eftir fyrsta leikhlutann, 18-13, en Blikar unnu annan leikhlutann 16-8 og voru því komnar þremur stigum yfir í hálfleik, 29-26. Blikar héldu forystunni og voru síðan sex stigum yfir, 42-36, fyrir lokaleikhlutann. Í fjórða og síðasta leikhlutanum var sigur Blika aldrei í mikilli hættu.Þór Ak.-Breiðablik 42-56 (18-13, 8-16, 10-13, 6-14)Þór Ak.: Helga Rut Hallgrímsdóttir 12/12 fráköst, Rut Herner Konráðsdóttir 11/4 fráköst, Unnur Lára Ásgeirsdóttir 9/7 fráköst, Thelma Hrund Tryggvadóttir 6, Erna Rún Magnúsdóttir 4/6 fráköst.Breiðablik: Isabella Ósk Sigurðardóttir 21/18 fráköst/4 varin skot, Sóllilja Bjarnadóttir 13, Telma Lind Ásgeirsdóttir 10, Auður Íris Ólafsdóttir 10/8 fráköst, Eyrún Ósk Alfreðsdóttir 2/5 fráköst.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Willum vill fara norsku leiðina Sport Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti Sakar lækni landsliðsins um loddaraskap Fótbolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn Bróðir Yamals slær í gegn á HM Fótbolti Aukinn viðbúnaður vegna sögu Englands og Argentínu Fótbolti „Þetta er svo hörmulegur dómur, án gríns“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Sjá meira