„Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Andri Broddason skrifar 28. ágúst 2026 10:32 Craig Pedersen veit að hann á erfitt verkefni fyrir höndum gegn Nikola Jokic og félögum í Serbíu. Samsett/Vísir Íslenska karlalandsliðið í körfubolta er komið áfram í undankeppni heimsmeistaramótsins. Liðið mætir Serbíu og Tyrklandi í þessum glugga og eru bæði liðin gríðarlega sterk.
Martin Hermannsson er ánægður með að vera mættur aftur með vinum sínum í landsliðinu eftir gott sumarfrí. Martin Hermannsson er einn af lykilmönnum íslenska liðsins.Vísir / Anton Brink „Ákveðin tilhlökkun að koma og hitta strákana þó að tímapunkturinn sé smá skrítinn. Menn eru að byrja á undirbúningstímabili og margir hverjir búnir að vera góðir við sig í sumarfríinu. Þetta verða tveir mjög erfiðir leikir og við áttum okkur á því að við erum að fara í erfitt verkefni. Liðið er bara búið að vinna fyrir þessu að spila gegn bestu þjóðum heims.“ Íslenska liðið mætir Serbíu í kvöld á útivelli og Tyrklandi á heimavelli eftir helgi á, mánudaginn. Bæði liðin eru gríðarlega sterk en íslenska liðið mun finna leiðir til að máta sig við stóru liðin. „Þetta eru tvær af sterkustu körfuboltaþjóðum í heimi, með marga af bestu körfuboltamönnum í heimi. Það verður gaman að máta sig við þá og sjá hvar við stöndum. Það eru fáir að fara að tippa á okkur í þessum leikjum en vonandi eigum við tvær góðar frammistöður og sjáum hvert það tekur okkur,“ segir Martin Hermannsson. Mætum einum besta leikmanni heims Nikola Jokic er búinn að vera einn besti leikmaður NBA-deildarinnar síðustu ár og verður hann hluti af serbneska liðinu. Craig Pedersen þjálfari Íslands veit að þrátt fyrir að Jokic sé góður þá má ekki öll orka liðsins fara í hann. Fleiri leikmenn Serbíu eru hættulegir. „Auðvitað reynum við eitthvað en ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum, en við munum reyna það sem við getum,“ sagði Craig Pedersen en hann vill ekki eyða allri orkunni í þennan eina leikmann Serbíu. „Hann er ekki einn, Serbía er með tólf frábæra leikmenn. Ef við setjum þrjá menn að dekka Jokic þá geta hinir auðveldlega skorað stig. Þetta er ekki eins manns lið en auðvitað er hann frábær leikmaður sem getur gert allt. Það verður spennandi að keppa gegn besta leikmanni heims.“ Tyrkland enn ósigrað Seinni leikur Íslands er gegn Tyrklandi en hann verður spilaður í Laugardalshöllinni á mánudaginn. Tyrkland verður ekki auðveldur leikur þar sem tyrkneska liðið vann það serbneska í báðum leikjum undankeppninnar og hefur unnið alla sína leiki. Ísland og Tyrkland mættust síðast í febrúar árið 2025, þá einnig í Laugardalshöllinni. Ísland vann þann leik 83-71 og getur endurtekið leikinn með góðum stuðningi. „Stuðningurinn sem við höfum fengið síðustu leiki hefur verið frábær og hann hjálpar leikmönnunum virkilega. En í staðinn þurfum við að koma með mikla orku inn á völlinn til að fá áhorfendur með. Tyrkneska liðið er gott og eru leikmenn liðsins með mikil gæði svo við fáum vonandi frábæran leik.“
Landslið karla í körfubolta HM 2027 í körfubolta Mest lesið Óvæntar vendingar á elleftu stundu hjá Elísu í einu sterkasta hlaupi í heimi Sport Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Fótbolti Jón Arnór byrjar að þjálfa Körfubolti Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Enski boltinn Víkingar gefa frá sér sætið í Olís-deildinni Handbolti Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Enski boltinn „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Körfubolti Umdeild auglýsing heldur áfram að draga dilk á eftir sér Golf Fleiri fréttir „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sjá meira