Bjarni Guðjónsson aðstoðar Loga hjá Víkingum Tómas Þór Þórðarson skrifar 1. júní 2017 12:05 Logi Ólafsson og Bjarni Guðjónsson rauðir og svartir í Víkinni í dag. mynd/víkingur
Víkingar eru að gera breytingu á þjálfarateymi sínu í Pepsi-deild karla í fótbolta. Bjarni Guðjónsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Loga Ólafssonar en Dragan Kazic er að fá risastórt starf í heimalandinu. Leikmönnum Víkings var tilkynnt þetta í hádeginu í dag en Bjarni var síðast aðalþjálfari KR í Pepsi-deildinni í fyrra. Hann var rekinn eftir slakt gengi í byrjun móts og þá tók Willum Þór Þórsson við. Bjarni, sem varð tvívegis Íslandsmeistari sem leikmaður KR og einu sinni sem leikmaður ÍA, tók við KR-liðinu fyrir sumarið 2015 og skilaði því í þriðja sæti deildarinnar með 42 stig. Bjarni fór út í þjálfun árið 2013 eftir að hann lagði skóna á hilluna og tók þá við Fram en hann féll með liðið. Hann sagði þá upp hjá Fram en var ráðinn þjálfari KR þegar Rúnar Kristinsson hélt til Noregs. Logi og Bjarni þekkjast vel en Logi fékk hann til KR á miðju sumri 2008 og gerði hann að fyrirliða. Þá var Logi einnig með hann sem ungan leikmann í meistaraflokki ÍA þegar Logi gerði Skagamenn að meisturum árið 1995. Svartfellingurinn Dragan Kazic, sem hefur verið aðstoðarþjálfari Víkings síðan í haust, lætur af störfum en samkvæmt fréttum þar í landi er hann að fá stærsta starfið í Svartfjallalandi. Dragan er sagður vera að taka við meisturum Budocnost en Miodrag Vukotic, þjálfari liðsins, var látinn fara þrátt fyrir að gera liðið að svartfellskum meistara.Missum frábæran mann. Tók 4 þætti að selja @Bjarnigudjons Gangi þér vel í nýjum störfum. Fengum tilboð sem við gátum ekki hafnað #teigurinn pic.twitter.com/BQHtOoi3Pf— Teigurinn (@teigurinn) June 1, 2017
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira