Hannes orðinn leikmaður Vals Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 9. apríl 2019 15:45 Hannes tekur í spaðann á Ólafi Jóhannessyni, þjálfara Vals. vísir/vilhelm
Hannes Þór Halldórsson er genginn í raðir Vals. Hann skrifaði undir fjögurra ára samning við Íslandsmeistarana.Hannes fékk sig lausan undan samningi hjá Qarabag í Aserbaídsjan í síðustu viku og er nú kominn aftur til Íslands. Auk þess að leika með Val mun einnig koma að þjálfun markvarða yngri flokka félagsins. Hannes lék í þrjú tímabil með KR (2011-13) áður en hann fór út í atvinnumennsku. Hann varð Íslandsmeistari með KR 2011 og 2013 og bikarmeistari 2011 og 2012. Hannes var valinn besti leikmaður Íslandsmótsins 2011. Á árunum í atvinnumennsku lék Hannes með Brann, Sandnes Ulf og Bodö/Glimt í Noregi, NEC í Hollandi og Randers í Danmörku.Hannes Þór Halldórsson landsliðsmarkvörður í Val Hannes Þór Halldórsson landsliðmarkvörður Íslands gengur til liðs við Íslandsmeistara Vals. #valurfotbolti#fotboltinet#ksi#pepsideildin#pepsimaxdeildin#origo#ruvithrottir#stod2sporthttps://t.co/AVH2pVdKdgpic.twitter.com/vBUn3kWnh8 — ValurFotbolti (@Valurfotbolti) April 9, 2019 Valur er fjórða Reykjavíkurfélagið sem Hannes spilar fyrir og það sjötta hér á landi. Hann hóf ferilinn hjá Leikni R., lék svo eitt tímabil með Aftureldingu og eitt með Stjörnunni áður en hann gekk í raðir Fram. Þar var hann í fjögur tímabil en fór svo yfir í KR. Hannes hefur leikið 147 leiki í efstu deild á Íslandi. Hannes, sem verður 35 ára síðar í mánuðinum, hefur verið aðalmarkvörður íslenska landsliðsins undanfarin ár. Hann hefur leikið 59 landsleiki og lék alla leiki Íslands á EM 2016 og HM 2018. Anton Ari Einarsson hefur varið mark Vals undanfarin þrjú tímabil. Óvíst er hvar framtíð hans liggur eftir komu Hannesar. Valur hefur orðið Íslandsmeistari síðustu tvö ár undir stjórn Ólafs Jóhannessonar sem gaf Hannesi sitt fyrsta tækifæri í íslenska landsliðinu. Valur mætir Víkingi R. í 1. umferð Pepsi Max-deildarinnar 26. apríl.Hannes með Íslandsmeistarabikarinn, sem Valur hefur unnið tvö ár í röð, í bakgrunni.vísir/vilhelm
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Hannes laus allra mála hjá Qarabag Landsliðsmarkvörðurinn er líklega á leið heim í Pepsi-deildina. 5. apríl 2019 11:29 Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Körfubolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira
Hannes laus allra mála hjá Qarabag Landsliðsmarkvörðurinn er líklega á leið heim í Pepsi-deildina. 5. apríl 2019 11:29