Fótbolti

Haf­rún heiðraði mömmu sína og frænku

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hafrún Rakel Halldórsdóttir er hér fremst í hópi þeirra sem sögðu sögu sína.
Hafrún Rakel Halldórsdóttir er hér fremst í hópi þeirra sem sögðu sögu sína. @brondbywomen

Íslenska landsliðskonan Hafrún Rakel Halldórsdóttir var ekki með nafnið Hafrún eða Halldorsdottir á bakinu í leik sínum með Bröndby um helgina.

Síðasti sunnudagur var alveg sérstakur leikdagur fyrir Hafrúnu og félaga hennar í Bröndby.

Þegar leikmenn Bröndby gengu inn á völlinn báru leikmennirnir alveg sérstök nöfn á treyjunum, nöfn kvenna sem hver og ein þeirra vill heiðra. Á bak við hvert nafn býr saga.

Hafrún Rakel Halldórsdóttir sýnir nöfnin á baki hennar búningi.

Bröndby-leikmennirnir voru að styrkja „Støt Brysterne“ sem er árleg herferð dönsku krabbameinssamtakanna sem safna fé til rannsókna á brjóstakrabbameini, forvarna og stuðnings við sjúklinga í Danmörku.

Hafrún var ein þeirra leikmanna Bröndby sem sögðu frá því hvern hún heiðraði í leiknum. Hafrún heiðraði tvær konur, eða bæði móður sína og systur móður sinnar.

„Þann fyrsta nóvember spila ég fyrir móður mína og systur hennar Ellu. Móðir mín fékk brjóstakrabbamein þegar ég var lítil. Þetta var slæmt tilfelli en hún lifði það af,“ sagði Hafrún.

„Ella, systir mömmu, fékk líka krabbamein og við misstum hana fyrir tveimur árum. Ég vil heiðra þær báðar í þessum leik,“ sagði Hafrún.

Bröndby vann leikinn 2-0.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×