Kári kominn aftur í Víking Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 21. júní 2019 15:21 Kári og Heimir Gunnlaugsson, varaformaður knattspyrnudeildar Víkings, handsala samninginn. vísir/vilhelm
Landsliðsmaðurinn Kári Árnason er genginn í raðir Víkings R. Kári skrifaði í dag undir samning við Víking sem gildir út tímabilið 2020. Kári er uppalinn Víkingur og lék síðast með liðinu 2004. Hann lék 15 leiki með Víkingi í efstu deild, 26 í B-deildinni auk átta bikarleikja.Velkominn heim @karibestmeisterpic.twitter.com/OsTpL6TIL7 — Víkingur FC (@vikingurfc) June 21, 2019 Kári ætlaði að koma heim í Víking eftir HM 2018 en gekk til liðs við Genclerbirligi í tyrknesku B-deildinni. Liðið vann sér sæti í tyrknesku úrvalsdeildinni í vetur. Miðvörðurinn öflugi, sem verður 37 ára í október, fær leikheimild 1. júlí. Sama dag tekur Víkingur á móti ÍA og Kári gæti þá leikið sinn fyrsta leik í búningi Víkings í 15 ár. Kári kom víða við á atvinnumannaferlinum og lék með níu félögum í sex löndum. Hann hefur leikið 77 landsleiki og skorað sex mörk. Kári lék alla leiki Íslands á EM 2016 og tvo af þremur leikjum íslenska liðsins á HM 2018. Víkingur er með sjö stig í 10. sæti Pepsi Max-deildarinnar. Liðið sækir KA heim á sunnudaginn.Kári og Sölvi Geir Ottesen eru sameinaðir hjá Víkingi að nýju.vísir/vilhelm
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Messi eyddi kvöldinu með Trump Fótbolti Elvar en ekki Friðriksson Körfubolti Annar þjálfari hættur skömmu fyrir HM Fótbolti Fram fær hávaxna Hvergerðinginn Íslenski boltinn Viktor fagnaði fyrsta sigrinum gegn félögum sínum í Magdeburg Handbolti Óþægileg heimkoma af ÓL: Sátu fyrir henni og eltu upp að bílnum Sport Dagskráin: Liverpool vill hefna, Formúlan af stað og mikil spenna í Bónus-deildinni Sport „Ég er bara ekki nógu gáfaður til að geta rýnt almennilega í þessa stöðu“ Handbolti Árið enn fullkomið hjá sveinum Guðjóns Vals Handbolti Bræður settir í bann en fyrirliðinn sér tækifæri í skandalnum Fótbolti Fleiri fréttir Fram fær hávaxna Hvergerðinginn Þróttarar fyrstir til að vinna Fylki og enn barist um efsta sætið Kani í mark Víkinga „Talaði við nokkur lið en á endanum var Víkingur mest heillandi“ Ejub látinn fara af fjárhagslegum ástæðum Dramatík í Nettóhöllinni FH-ingar kláruðu leikinn en töpuðu Jóhannes Kristinn gengur til liðs við Víking „Hvað er hann að gera hér?“ Keflavík fær víking að láni HM-farinn Cisse strax búinn að kveðja Vestra „Þetta voru orðnar hættulegar aðstæður“ Stjörnukonur burstuðu Þrótt og Þór/KA vann stórt fyrir austan Flautaði leikinn af þegar FH-ingar komu ekki út í seinni hálfleik Tillaga um nýtt knattspyrnufélag í Breiðholti lögð fyrir ársþing KSÍ Skagamenn enduðu sigurgöngu Valsmanna í Lengjubikarnum Þórsarar semja við Ganverja til þriggja ára Verðlaunaðir fyrir þættina Lengsta undirbúningstímabil í heimi Sagður á leið í Víkina Tvö mörk í blálokin færðu Víkingum fyrsta titil ársins Bikar undir í gulri viðvörun Óvíst hvenær en Ægir Jarl mun ganga til liðs við Fram Úrslitaleikur Reykjavíkurmóts karla á miðvikudagskvöld Matthías Daði skoraði þrennu gegn Völsungi Þórdís gerði gömlu félögunum grikk og endurkoma hjá Þrótturum Valsarar skoruðu fjögur og Njarðvíkingar enn ósigraðir Stjarnan á toppinn með sigurmarki Samúels Kára Íslensk félög greiddu yfir fimm milljónir í sektir Arnar og Bjarki fengu gullmerki ÍA á sama tíma Jasmín á gamlar slóðir yngri bróður síns Sjá meira