Fréttir

Ný Ölfusárbrú farin að taka á sig mynd

Framkvæmdir við nýja Ölfusárbrú eru í fullum gangi og hún farin að taka á sig mynd. Nýja brúin liggur austar en sú gamla sem liggur inn á Selfoss og er ætlunin að færa umferðina fjær þéttbýlinu. Gert er ráð fyrir að brúin verði til haustið 2028.

Innlent

Drífa Snæ­dal snýr aftur

Drífa Snædal, talskona Stígamóta, ætlar að ganga aftur til liðs við Vinstrihreyfinguna – grænt framboð (VG). Hún yfirgaf flokkinn með áberandi hætti árið 2017 vegna óánægju með þá fyrirhugað ríkisstjórnarsamstarf Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokksins.

Innlent

Goddur jarð­sunginn

Útför Guðmundar Odds Magnússonar, listamannsins og hönnuðarins Godds, fór fram í Fríkirkjunni í dag. Mikill fjöldi var viðstaddur athöfnina en henni var einnig streymt í Listasafni Íslands.

Innlent

Tifandi tíma­sprengja, odd­viti í beinni og breytt Reynisfjara

Maður sem grunaður er um stunguárás um helgina var nýbúinn að afplána dóm fyrir önnur ofbeldisverk og sætir ákæru fyrir fleiri. Í kvöldfréttum verður rætt við formann Afstöðu sem gagnrýnir að manninum hafi verið sleppt úr haldi án þess að honum væri veittur stuðningur.

Innlent

Hvetur Starmer til að segja af sér

Leiðtogi Verkamannaflokksins í Skotlandi kallar eftir breytingum á þingi og vill að forsætisráðherra Bretlands, Keir Starmer, segi af sér. Þingmenn stíga fram og lýsa yfir stuðningi við forsætisráðherrann.

Erlent

„Þörfin er gríðar­leg“

„Þörfin er gríðarleg því bara á næstu 5 árum þurfum við hátt í 100 ný rými hér á Suðurlandi. Það má ekki missa sjónar á því að þetta mál snýst ekki um steypu eða stefnu, þetta snýst um það hvernig aðbúnað við viljum tryggja eldri borgurunum okkar. Það þarf að hugsa út fyrir boxið og viðurkenna að það gerir enginn neitt einn. Ríki, sveitarfélög og einkaaðilar þurfa að sameina krafta sína ef ekki á illa að fara. Við hér í Ölfusi ætlum að verða hluti af þessari lausn, með hagsmuni eldri borgara að leiðarljósi,“ segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri Sveitarfélagsins Ölfuss, sem berst nú fyrir því að hjúkrunarheimili verði byggt í Þorlákshöfn.

Innlent

Bauluðu á Vance af „evrópsku stolti“

Áhorfendur sem bauluðu á varaforseta Bandaríkjanna á opnunarhátíð vetrarólympíuleikanna í Mílanó í síðustu viku gerðu það til að sýna „evrópskt stolt“, að mati utanríkismálastjóra Evrópusambandsins. Ástæðan sé ítrekaðar skammir Vance í garð Evrópu að undanförnu.

Erlent

Á­hrifa­miklir norskir erind­rekar rann­sakaðir vegna Epsteins

Norsk yfirvöld hafa opnað rannsókn gagnvart áhrifamiklum fyrrverandi sendiherra og eiginmanni hennar vegna meintrar grófrar spillingar. Rannsókn efnahagsbrotadeildar norsku lögreglunnar (Økokrim) á rætur að rekja til sambands þeirra við Jeffrey Epstein en Mona Juul er grunuð um spillingu í starfi í utanríkisráðuneytinu og Terje Rød-Larsen, eiginmaður hennar, er grunaður um aðkomu að þeirri spillingu.

Erlent

Reiknar með einu gosi í við­bót

Ekki er útilokað að skjálftahrina við Eldey endi með eldgosi, að sögn prófessors í jarðeðlisfræði. Langmestu líkurnar séu þó á einu gosi til viðbótar á Sundhnúksgígaröð. Farið sé á að síga á seinni hlutann í yfirstandandi eldvirknitímabili á svæðinu.

Innlent

Flutti til Reykja­víkur í dag

Ari Edwald segir það spennandi tækifæri að fá að leiða Miðflokkinn í borgarstjórnarkosningum í vor. Borgarbúar þrái breytingar, sem hann vilji leiða. Hann flutti til Reykjavíkur í dag eftir að hafa búið í Portúgal og Garðabæ síðustu mánuði. 

Innlent

Þor­steinn fær á­heyrn Hæsta­réttar

Þorsteinn Hermann Þorbjörnsson, sem var sakfelldur í Landsrétti fyrir að svipta sambýliskonu sína lífi á heimili þeirra í Naustahverfi á Akureyri í apríl árið 2024, hefur fengið leyfi til að áfrýja dómi Landsréttar til Hæstaréttar.

Innlent

Christchurch-morðinginn vill draga játninguna til baka

Hvítur þjóðernissinni sem skaut 51 manns til bana í tveimur moskum í Christchurch á Nýja-Sjálandi árið 2019 vill draga játninguna sína til baka. Hann segist nú ekki hafa verið með réttu ráði þegar hann játaði vegna erfiðra aðstæðna í fangelsinu þar sem honum var haldið.

Erlent

Stjórnar­for­maðurinn verður for­stjóri Reykja­lundar

Svana Helen Björnsdóttir hefur verið ráðin forstjóri Reykjalundar. Hún hefur gegnt starfi forstjóra tímabundið frá því í lok nóvember síðasta árs, þegar fyrrum forstjóri sagði starfi sínu lausu. Svana Helen var áður formaður stjórnar Reykjalundar.

Innlent

Ís­lenska ríkið ræður lobbýista í Washington

Íslensk stjórnvöld hafa ráðið bandaríska fyrirtækið Brownstein Hyatt Farber Schreck til að sinna hagsmunagæslu fyrir Ísland í Washington. Samningur Íslands við fyrirtækið er til sex mánaða og fær Brownstein greidda 25 þúsund Bandaríkjadali á mánuði, eða sem nemur rúmum þremur milljónum íslenskra króna. Íslenska ríkið gerði samning við fyrirtækið í lok janúar, innan við mánuði eftir að sendiherraefni Bandaríkjanna gagnvart Íslandi grínaðist með að Ísland yrði 52. ríki Bandaríkjanna.

Innlent

Jarðskjálftahrinan við Eld­ey heldur á­fram

Jarðskjálftahrinan sem hófst við Eldey um hádegisbil í gær 7. febrúar heldur áfram. Nú hafa mælst rúmlega þrjú hundruð skjálftar í hrinunni og stendur hún enn yfir þó ákafinn hafi aðeins minnkað frá því í gær.

Innlent

Vinda­samt víða á landinu

Veðurstofan gerir ráð fyrir norðaustlægri átt, yfirleitt strekkingi eða allhvössum vindur en sums staðar hvassviðri á norðvesturhluta landsins.

Veður

Þetta eru launin sem fram­bjóð­endur geta vænst með kjöri í vor

Borgarfulltrúar í Reykjavík eru með langhæstu grunnlaunin meðal kjörinna fulltrúa á höfuðborgarsvæðinu en bæjarstjórar sveitarfélaganna sex eru með á bilinu tvær til þrjár milljónir króna í laun og aðrar fastar greiðslur á mánuði. Almennir bæjarfulltrúar á höfuðborgarsvæðinu eru flestir með á bilinu 350 til 420 þúsund krónur í föst grunnlaun á mánuði, en ofan á það leggjast ýmsar greiðslur fyrir formennsku og setu í ráðum og nefndum, og jafnvel er greitt fyrir setu á einstaka fundum, sem geta togað launin upp um nokkra hundraðþúsundkalla til viðbótar á mánuði.

Innlent