Fréttir
265 266 267 268 269 270 271 272 273 … 334 ›
Engar nýjar vísbendingar í leit að Jóni Þresti Lögreglan á Írlandi hefur engar nýjar upplýsingar í rannsókn sinni á hvarfi Jóns Þrastar Jónssonar. Það staðfestir lögreglan í tölvupósti til fréttastofu. Innlent 21.2.2024 15:43
Biden situr á digrum sjóðum en Trump ver fúlgum í lögmenn Donald Trump og Nikki Haley eyddu bæði miklum fjármunum í kosningabaráttu þeirra í janúar. Trump varði einnig milljónum dala í lögfræðikostnað en hann stendur meðal annars frammi fyrir 91 ákærulið í fjórum mismunandi málum auk annarra lögsókna. Joe Biden á töluvert meira í sjóðum sínum en Trump. Erlent 21.2.2024 14:51
Missti aldrei stjórn á aðstæðum í baðstofunni Björn Leifsson, eigandi World Class, segir ekki rétt að hann hafi ekki ráðið við aðstæður sem upp komu í baðstofu Lauga Spa á laugardaginn. Greint var frá því á Vísi á mánudag að lögreglan hefði haft afskipti af góðkunningjum lögreglunnar í baðstofunni. Sérsveitarmenn hefðu mætt á svæðið. Innlent 21.2.2024 14:49
Tobba nýjasti fjölmiðlamaðurinn í starf upplýsingafulltrúa Þorbjörg Marinósdóttir hefur verið ráðin nýr upplýsingafulltrúi menningar- og viðskiptaráðuneytisins. Hún hefur störf á næstu dögum. Þetta kemur fram á vef ráðuneytisins. Innlent 21.2.2024 14:48
Leika listir sínar við Viðey Hnúfubakar hafa leikið listir sínar örskammt frá landi í Reykjavík undanfarna daga. Þeir virðast njóta athygli vegfarenda í botn. Innlent 21.2.2024 13:57
Óttast hallarbyltingu í Félagi eldri borgara Aðalfundur Félags eldri borgara í Reykjavík fer fram nú klukkan 14. Ábendingar hafa borist um að deild úr Sjálfstæðisflokknum hyggist yfirtaka félagið. Innlent 21.2.2024 13:42
Austur-Kongó og Rúanda á „barmi styrjaldar“ Hundruð þúsunda hafa þurft að flýja undan sífellt harðnandi átökum milli hers Austur-Kongó og M23 uppreisnarmanna í austurhluta Kongó. Uppreisnarmennirnir hafa barist gegn hernum í áratugi, með stuðningi yfirvalda í Rúanda, en líkur á almennu stríði milli Kongó og Rúanda hafa aukist verulega. Erlent 21.2.2024 13:33
Skilur ekki hvers vegna það er ekki allt brjálað vegna breytinganna Talskona Stígamóta segir að með nýrri stefnu ríkisstjórnarinnar sé verið að segja flóttafólki að það sé ekki velkomið til Íslands. Hún gagnrýnir sinn gamla flokk fyrir aðkomu sína að tilvonandi búsetuúrræði sem stangist á við stjórnarskrána. Innlent 21.2.2024 13:00
Aldrei séð annað eins í Reynisfjöru Stórbrim var í Reynisfjöru í gær. Öldurnar gengu alla leið upp í bílastæði ofan fjörunnar og brimaði langt upp á stuðlabergið. Innlent 21.2.2024 12:24
Hafði betur í baráttu við leigjanda sem skemmdi borðplötu Kona sem leigði íbúð í tæplega eitt ár þarf að sjá á eftir 873 þúsund krónum af tryggingafé sínu til leigusalans vegna skemmda sem hún vann á nýlegum borðplötum og vangoldinnar leigu. Innlent 21.2.2024 12:14
Lá við slysi æfingavélar og farþegavélar sem stefndu á sömu flugbraut Litlu munaði að flugslys yrði við Keflavíkurflugvöll þann 22. ágúst 2020 þegar æfingaflugvél og farþegaflugvél voru í lokalegg aðflugs að sömu flugbraut á sama tíma. Innlent 21.2.2024 12:11
„Galið“ að opna bæinn upp á gátt Formaður Verkalýðsfélags Grindavíkur furðar sig á því að bærinn hafi verið opnaður fyrir búsetu og atvinnustarfsemi. Hann segir ekkert samráð hafa verið haft við verkalýðsfélögin fyrr en í morgun, þegar þau voru boðuð á fund með fulltrúum ráðuneyta. Ekki nema um tíu manns gistu í Grindavík í nótt, fyrstu nóttina eftir að bærinn var opnaður að fullu. Innlent 21.2.2024 11:49
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum verður rætt við Drífu Snædal talskonu Stígamóta sem er gagnrýnin á nýframkomnar tillögur ríkisstjórnarinnar í útlendingamálum. Innlent 21.2.2024 11:37
Íslenski listinn einstakur og krefjist sérstakrar skoðunar Vinna þriggja manna sendinefndar utanríkisráðuneytisins við að koma dvalarleyfishöfum með fjölskyldusameiningu frá Gaza tekur tíma og ómögulegt að segja hvenær henni lýkur. Ástæðan er sú að enginn íslenskur ríkisborgari er á lista íslenskra stjórnvalda. Erlent 21.2.2024 11:12
Vilja rannsaka ummerki Tyrkjaránsins í erfðamengi Íslendinga Fimm þingmenn Sjálfstæðisflokksins leggja til að Íslenskri erfðagreiningu verði falið að gera rannsókn á ummerkjum Tyrkjaránsins í erfðamengi Íslendinga á Íslandi og finni blandaða afkomendur Íslendinganna í Alsír. Innlent 21.2.2024 11:11
Náttúruhamfaratrygging vill hlutdeild í tekjum af fasteignunum Náttúruhamfaratrygging Íslands gerir athugasemd við að á sama tíma og gert sé ráðfyrir að fjármálaráðherra sé heimilt að ráðstafa eignum NTÍ til að fjármagna kaup á heimilum Grindvíkinga, sé ekki gert ráð fyrir að stofnunin fái neitt í staðinn. Innlent 21.2.2024 11:09
Lyginn uppljóstrari í samskiptum við rússneska embættismenn Fyrrverandi uppljóstrari Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) sem sakaður er um að hafa logið um það að Joe Biden, forseti, og sonur hans Hunter hafi tekið við mútum segist hafa átt í samskiptum við útsendara frá rússneskri leyniþjónustu. Saksóknarar lýsa honum sem raðlygara sem geti ekki sagt satt um grunnatriði um eigið líf. Erlent 21.2.2024 10:45
Átta prósent ungmenna fóru í ljós í fyrra þrátt fyrir bann Um átta prósent ungmenna á aldrinum 12 til 17 ára notuðu ljósabekk einu sinni eða oftar á árinu 2023. Þetta er svipað hlutfall og árið 2016 en árið 2011 var sett á 18 ára aldurstakmark á notkun ljósabekkja á Íslandi. Innlent 21.2.2024 09:10
Styttingin hafi haft verri áhrif á drengi en stúlkur Samkvæmt rannsókn við Háskóla Íslands hefur stytting framhaldsskólans haft slæm áhrif á einkunnir ungmenna í háskóla, fjölda eininga teknum í háskóla og brotthvarf úr háskóla. Líklegra er að breytingin hafi haft slæm áhrif á drengi en stúlkur. Innlent 21.2.2024 08:50
Matvælaáætlun SÞ gerir hlé á neyðaraðstoð í norðurhluta Gasa Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) hefur tilkynnt að hún hyggist gera hlé á afhendingu mataraðstoðar í norðurhluta Gasa vegna niðurbrots á lögum og reglu. Erlent 21.2.2024 08:45
Segja Bandaríkin gefa grænt ljós á slátrun á Gasa Kínverjar gagnrýna Bandaríkin harðlega fyrir að hafa beitt neitunarvaldi sínu í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna þegar tillaga um vopnahlé á Gasa var lögð fyrir ráðið. Erlent 21.2.2024 08:28
Vill flýta endurskoðun laga um leigubílaakstur Birgir Þórarinsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, vill flýta endurskoðun laga um leigubifreiðaakstur. Í lögunum er heimild til endurskoðunar á næsta ári en hann telur best að henni sé flýtt. Vilji leigubílstjóra sem hann hafi talað við sé að þessu sé flýtt en að auk þess sé það áríðandi í ljósi nýlegra frétta af kynferðisbroti leigubílstjóra. Innlent 21.2.2024 08:24
Einn dregið sig úr útboðinu vegna Ölfusárbrúar og fleiri að íhuga það Að minnsta kosti einn aðili af fimm hefur dregið sig formlega úr tilboðsferlinu vegna byggingar Ölfusárbrúar og samkvæmt áreiðanlegum heimildum Vísis eru fleiri að íhuga að gera slíkt hið sama. Innlent 21.2.2024 08:01
Breytileg átt og einhver úrkoma Veðurstofan gerir ráð fyrir breytilegri átt í dag þar sem vindur verður á bilinu átta til fimmtán metrar á sekúndu. Víða má búast við einhverri úrkomu. Veður 21.2.2024 07:14
Vinsæll áhrifavaldur dæmdur fyrir að beita eigin börn ofbeldi Sex barna móðir, sem öðlaðist vinsældir og frægð fyrir að deila uppeldisráðum á YouTube-rás sinni, hefur verið dæmd í fjögurra til 60 ára fangelsi fyrir illa meðferð á börnum. Erlent 21.2.2024 07:10
Búið að afgreiða 244 umsóknir af 598 um endurmat brunabóta Eigendur 598 íbúða í Grindavík hafa óskað eftir endurmati brunabóta og af þeim hafa 244 umsóknir þegar verið afgreiddar. Þetta kemur fram í umsögn HMS við frumvarp um kaup ríkisins á íbúðarhúsnæði í Grindavík. Innlent 21.2.2024 06:45
Sextán ára handtekinn fyrir háskaakstur eftir eftirför á hálum ís Betur fór en á horfðist í gærkvöldi þegar lögreglan á höfuðborgarsvæðinu neyddist til að hefja eftirför eftir ökumanni bifreiðar sem sást aka gegn rauðu ljósi og sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu. Innlent 21.2.2024 06:21
Ekki tilbúin að sleppa taki af Kolaportinu Unnið er að því að finna nýja staðsetningu fyrir starfsemi Kolaportsins. Listaháskólinn flytur brátt í núverandi húsnæði þess en borgin er ekki tilbúin að sleppa taki af eina markaðstorgi miðbæjarins. Innlent 21.2.2024 06:01
Tveir ákærðir fyrir morð í sigurgöngu Kansas City Chiefs Tveir karlmenn eru ákærðir fyrir morð eftir að kona lét lífið og 22 særðust í skotárás í lestarstöð nærri sigurgöngu ameríska fótboltaliðsins Kansas City Chiefs síðasta miðvikudag, fjórum dögum eftir að ofurskálin fór fram. Erlent 20.2.2024 23:53
Samfylkingin hafi áður barist harðast gegn hertari innflytjendalöggjöf Prófessor í stjórnmálafræði segir verulega stefnubreytingu hafa átt sér stað í Samfylkingunni eftir að formaður flokksins viðraði skoðanir sínar á innflytjendamálum í síðustu viku. Innlent 20.2.2024 23:08