„Margir staðir og margir sakborningar“ Agnar Már Másson skrifar 5. mars 2026 22:02 Lögreglan hefur ráðist í húsleit í Reykjavík, Kópavogi, Raufarhöfn, Borgarnesi og fleiri bæjarfélögum. Málið er enn ekki komið á ákærusvið. Vísir/Fastinn/Já.is/Getty Hið minnsta fimmtán manns eru sakborningar í þeim nítján málum sem tengjast skipulögðum fíkniefnahring á Raufarhöfn og víðar. Lögreglan fyrir norðan hefur lagt hald á kannabis í kílóavís og hafa fleiri en hundrað rannsóknarúrskurðir verið kveðnir.
Síðan í sumar hefur lögreglan á Norðurlandi eystra rannsakað það sem hún telur vera þaulskipulagða kannabisframleiðslu sem teygir anga sína alla leið frá Raufarhöfn til Reykjavíkur. Fyrstu handtökur áttu sér stað um miðjan júní 2025 en enn hefur engin ákæra verið gefin út í málinu. Þó sat fjöldi sakborninga í einangrun, þar á meðal einn lögmaður, og hefur fjórum sakborningum verið vísað til Albaníu. Ráðist hefur verið í húsleitir í fjölda sveitarfélaga, meðal annars í Kópavogi og Reykjavík. Nítján mál, fimmtán sakborningar og ríflega hundrað úrskurðir „Þetta eru náttúrulega bara mörg mál, voru það í upphafi, en þetta er einn heildarpakki,“ segir Skarphéðinn Aðalsteinsson, rannsóknarlögreglumaður fyrir norðan, í samtali við Vísi. Málin séu alls nítján talsins í kerfi lögreglu og nái til fjögurra lögregluembætta; Lögreglunnar á Norðurlandi eystra, Vesturlandi, höfuðborgarsvæðinu og svo embættis Ríkislögreglustjóra. „Þetta er viðamikið,“ bætir rannsóknarlöggan við, „margir staðir og margir sakborningar.“ Hann segir að sakborningar séu fimmtán til sextán talsins. Fjórum þeirra var vísað til Albaníu í fyrra og þeir settir í endurkomubann til tveggja ára. Alls hafa verið gefnir út fleiri en hundrað rannsóknarúrskurðir í tengslum við málin, að sögn Skarphéðins, sem er talsvert meira en gengur og gerist. Fjórtán kíló af kannabis á Raufarhöfn, sjötíu plöntur og hundruð græðinga Lögreglan á Norðurlandi eystra hafði um nokkurt skeið grunað að fíkniefnaframleiðsla ætti sér stað í umdæminu og réðst þann 18. júní í húsleit á Raufarhöfn. Þar reyndist vera umfangsmikil kannabisræktun og fundust tæplega 70 plöntur, 250 græðlingar og um 14 kílógrömm af tilbúnu kannabisefni, samkvæmt því sem fram kemur í áfrýjuðum gæsluvarðhaldsúrskurðum sem finna má á vef Landsréttar. Síðar þennan sama júnídag réðust lögregla og sérsveit einnig í húsleit á tveimur öðrum stöðum, þar á meðal í Borgarnesi. Á öðrum staðnum fannst sambærileg ræktun og á Raufarhöfn, en á hinum var fullbúin aðstaða til ræktunar þótt engar plöntur væru þar, samkvæmt úrskurðinum. Tveimur dögum fyrir þetta, 16. júní, hafði lögreglan reyndar þegar farið í húsleit í íbúðarhúsnæði á ónefndum stað á Norðurlandi, samkvæmt gæsluvarðhaldsúrskurði yfir einum Albana frá því í júní. Þar hafi fundist ræktun á dvalarstað sakborningsins hinn 1. júlí, þar sem hafi verið um 40 plöntur auk fíkniefna. Hinn 3. júlí handtók lögreglan svo tvo eftir húsleit við Austurbrún í Laugardal í Reykjavík annars vegar og svo fleiri í Kópavogi hins vegar. Í fyrrnefndum gæsluvarðhaldsúrskurði er einmitt sagt frá húsleit að tveimur ónefndum stöðum; á öðrum staðnum hafi nokkuð magn fíkniefna fundist, en hinn staðinn hefðu sakborningar greinilega tekið á leigu nokkru áður og yfirgefið. Tekið er fram í öðrum úrskurði að við húsleit í Reykjavík hafi komist upp um aðra umfangsmikla fíkniefnaræktun og hið minnsta einn hafi verið handtekinn. Lögmaðurinn sagður hafa aðstoðað sakborning við peningaþvætti Eitt þessara nítján mála sem Skarphéðinn rannsóknarlögregla nefnir snýr að rannsókn á Gunnari Gíslasyni lögmanni, en Vísir hefur greint frá þeim anga. Lögmaðurinn var látinn dúsa í einangrun í tvær vikur í október og nóvember vegna gruns um að aðstoða erlenda ríkisborgara, meðal annars þá sakborninga sem hér um ræðir, við að komast inn í landið til að stunda glæpi án þess að vera stöðvaðir af lögreglu. Gunnar tjáði sig um málið við Vísi í desember og sagðist andlega í molum eftir dvölina í fangelsinu á Hólmsheiði þar sem hann þó kynntist besta fólki í heimi, fangavörðunum. „Ég er rosalega vinsæll á meðal Albananna og hef alltaf verið. Með gríðarlega marga albanska skjólstæðinga,“ sagði Gunnar þá. Lögreglan hefði viljað komast í vinnugögn hans í þeim tilgangi að mögulega finna höfuðpaurana. Það sé hans kenning. „Ég er lögmaður, venjulegur fjölskyldufaðir með konu og börn. Að halda að ég sé viðriðinn ræktun á kannabis er gjörsamlega fjarstæðukennt.“ Hann er sagður tengjast fimmtán málum á árinu 2025 þar sem einstaklingar sem síðar voru stöðvaðir við brotastarfsemi á Íslandi, samkvæmt Landsréttarúrskurði í máli hans. Lögregla rauf bankaleynd Gunnars, hleraði síma hans, setti GPS-búnað í bíl hans og gerði húsleit á heimili hans og starfsstöðvum. Í einum gæsluvarðhaldsúrskurði segir lögregla að í síma eins sakbornings sem handtekinn var í Borgarnesi hafi fundist WhatsApp-samskipti við Gunnar, þar sem hann var titlaður á grísku, þar sem rætt hafi verið um millifærslur á fjármunum og önnur samskipti „sem bera með sér að [Gunnar] sé að aðstoða [sakborning] við peningaþvætti“ og þar sem sakborningurinn hefði óskað eftir aðstoð Gunnars við að millifæra 10.000 evrur. Þá væru einnig samskipti þeirra á milli þar sem lögmaðurinn hefði sent sakborningum hlekk á frétt um tiltekið lögreglumál og spurt hvernig hann tengdist málinu, eftir að lögmaðurinn hafði verið viðstaddur skýrslutökur sem verjandi annars sakbornings í því máli þar sem mynd af sakborningnum hafi verið borin undir verjandann.
Norðurþing Albanía Borgarbyggð Kópavogur Reykjavík Lögreglumál Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Sjá meira