Fréttir

Stefndi í slagsmál ungmenna
Lögreglu var tilkynnt um hópamyndun við verslunarmiðstöð á höfuðborgarsvæðinu. Sá sem tilkynnti sagði að það hafi verið að stefna í slagsmál. En þegar lögreglu bar að garði voru flestir farnir.

Höfða mál vegna dauða sonar síns af völdum One Chip Challenge
Foreldrar Harris Wolobah, sem lést eftir að hafa tekið þátt í „einnar flögu áskoruninni“ (e. One Chip Challenge) hafa höfðað mál á hendur Paqui, framleiðanda flögunnar.

Gular viðvaranir alla helgina
Gular viðvaranir vegna veðurs eru í þremur landshlutum um helgina. Fyrstu viðvaranirnar taka gildi klukkan níu í dag og eru vegna allhvassar sunnanáttar. Annars vegar er viðvörun í Breiðafirði sem stendur yfir til klukkan sjö í kvöld, og hins vegar er viðvörun á Vestfjörðum sem stendur yfir til klukkan níu í kvöld.

„Já ég veit muninn... annar er saksóknari hinn er glæpamaður“
Þrír bættust í hóp þeirra þingmanna Demókrataflokksins sem kalla nú eftir því að Joe Biden Bandaríkjaforseti stígi til hliðar í forsetakosningunum vestanhafs eftir blaðamannafund forsetans í gærkvöldi.

Mál mannsins á þingpöllunum komið til saksóknara
Máli íraksks flóttamanns sem var með háreysti á þingpöllum Algingis og steig yfir handrið þeirra í mars á síðasta ári hefur verið vísað til héraðssaksóknara.

Sjötíu og sjö grindhvalir dauðir eftir að hafa strandað á Orkneyjum
Sjötíu og sjö grindhvalir eru dauðir eftir að þeir strönduðu á Orkneyjum. Ekki hafa fleiri hvalir drepist við strendur Skotlands í marga áratugi en 55 grindhvalir drápust við Lewis í fyrra.

Vísaði til Selenskís sem Pútíns og varaforsetans sem Trumps
Ymjan fór um salinn þegar Joe Biden Bandaríkjaforseti fór mannavillt í annað skiptið í kvöld og kallaði Donald Trump varaforseta sinn. Hann hafði fyrr um kvöldið kynnt Volodímír Selenskí Úkraínuforseta upp í ræðustól sem „Pútín forseta.“

Loftbelgur frá NASA svífur yfir Austurlandi
Loftbelgur hefur sést svífa í háloftunum yfir Austurlandi í dag og margar kenningar hafa fæðst um hvaða fljúgandi furðuhlutur þetta sé. Sumir hafa haldið að um sé að ræða kínverskan eða rússneskan njósnabelg en aðrir einkennilega blöðrulaga ský. Sannleikurinn er sá að belgurinn er rannsóknarloftbelgur frá bandarísku heimvísindastofnuninni NASA.

Blaðamannafundur Biden á afmælisfundi Atlantshafsbandalagsins
Joe Biden Bandaríkjaforseti heldur í kvöld blaðamannafund að leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins loknum. Hann hefur sætt gagnrýni og jafnvel áköll um að stíga til hliðar í komandi forsetakosningum í Bandaríkjunum vegna lélegrar frammistöðu í kappræðum milli hans og Donalds Trump mótframbjóðanda hans.

Biden kynnti Selenskí sem „Pútín forseta“
Joe Biden Bandaríkjaforseti kynnti Volodímír Selenskí Úkraínuforseta sem „Pútín forseta“ við athöfn á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í kvöld.

Sjá fyrir endann á tvöföldun Reykjanesbrautar að flugstöð
Hringtorg víkja fyrir mislægum gatnamótum á Reykjanesbrautinni til að stuðla að öryggi íbúa og vegfarenda. Með fyrirhuguðum framkvæmdum verður brautin tvöfölduð frá höfuðborgarsvæðinu og alla leið að Keflavíkurflugvelli.

Má ekki hleypa köttum inn í sameiginlegt þvottahús
Íbúi í fjölbýlishúsi má ekki hleypa köttum sínum í gegnum sameiginlegt þvottahús, og ekki geyma þar dekk og aðra persónulega muni. Þetta er álit kærunefndar húsamála, en erindi barst til þeirra frá nágranna íbúans.

Biden lýsti aðdáun á Íslandi og hrósar framlagi til NATO
Framlag Íslands til Atlantshafsbandalagsins er til fyrirmyndar og umfram væntingar að sögn forseta Bandaríkjanna. Þetta sagði Joe Biden í samtali við Bjarna Benediktsson forsætisráðherra á leiðtogafundi NATO sem nú stendur yfir í Washington. Síðasti dagur 75 ára afmælis- og leiðtogafundar NATO er í dag en eftirvænting ríkir fyrir blaðamannafundi sem Biden hefur boðað síðar í kvöld.

Lúsmý verði bráðlega komið um allt land
Gísli Már Gíslason, vatnalíffræðingur og prófessor emeritus í dýrafræði við HÍ, segir lúsmýið munu brátt hafa breitt úr sér um allt land. Lúsmýið hafi greinst nýverið á Austfjörðum þar sem það hafði ekki greinst áður. Hann segir lúsmýið komið til að vera á Íslandi öllu nema yst á annesjum.

Svikahrappar reyna að gabba lögregluna
Óprúttinn aðili gerði í dag tilraun til að gabba lögregluna á Suðurnesjum með póstsvindli svokölluðu sem herjað hefur á landsmenn í auknum mæli undanfarin ár.

Leggja kílómetragjald á bensín- og olíubíla
Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur kynnt til samráðs mál um að kílómetragjald verði tekið upp fyrir bensín- og olíubíla. Gjaldið var lagt á rafmagns, tengiltvinnbíla, og vetnisbíla um síðustu áramót. Kílómetragjaldið á að koma í stað olíu- og bensíngjalda, sem nú eru greidd við kaup á jarðefnaeldsneyti. Áformað er að olíu- og bensíngjöld verði felld brott.

Vörubíll hafnaði utan vegar á hliðinni í Mýrdalshreppi
Vörubíll hafnaði á hliðinni eftir að hafa ekið út af veginum í neðstu beygjunni í Gatnabrún í Mýrdalshreppi á Hringveginum. Umferð hefur verið stöðvuð tímabundið.

Biden hrósar Íslendingum og litlaus bílafloti
Framlag Íslands til Atlantshafsbandalagsins er til fyrirmyndar og umfram væntingar að sögn forseta Bandaríkjanna. Þetta sagði Joe Biden í samtali við Bjarna Benediktsson forsætisráðherra á leiðtogafundi NATO sem nú stendur yfir í Washington. Við fjöllum um fundinn í fréttatímanum.

Gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu um helgina
Gular viðvaranir hafa verið gefnar út vegna veður í Faxaflóa, Breiðafirði og á Vestfjörðum um helgina. Á höfuðborgarsvæðinu tekur viðvörunin gildi á miðnætti föstudagskvöld og er í gildi til klukkan sex síðdegis á sunnudag.

Hildur biður Samfylkinguna afsökunar
Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, biður Samfylkinguna afsökunar á rangfærslum í grein sem hún skrifaði í Morgunblaðið í dag. Í greininni segir hún Samfylkinguna ekki hafa komið á tólf mánaða fæðingarorlofi þrátt fyrir yfirlýsingar þeirra um að svo hafi verið, það reyndist ekki alveg rétt hjá henni

Stöðvuðu starfsemi Hríseyjar Seafood
Matvælafyrirtækið sem Matvælastofnun gerði að hætta starfsemi í síðustu viku, vegna alvarlegra frávika frá matvælalögum, er Hrísey Seafood. Fiskvinnslu félagsins var lokað og má ekki opna aftur fyrr en úrbætur hafa verið gerðar.

Rússar reyndu að ráða forstjóra Rheinmetall af dögum
Bandarísk yfirvöld komust að því í upphafi árs að rússnesk stjórnvöld hefðu áform um að drepa Armin Papperger, forstjóra þýska fyrirtækisins Rheinmetall. Fyrirtækið er einn stærsti vopnaframleiðandi Evrópu og hefur sent hergögn í gífurlegu magni til Úkraínu. Þýskum yfirvöldum tókst að koma í veg fyrir tilræðið, eftir að hafa verið vöruð við af bandarísku leyniþjónustunni.

Stjórnsýslufræðingur segir Þórarinn Inga brotlegan við siðareglur
Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur telur blasa við að Þórarinn Ingi Pétursson Framsóknarflokki, hafi brotið siðareglur þingsins, þá er hann mælti fyrir breytingu á búvörulögum.

Edda Sif segir ranghugmyndir um Carbfix með miklum ósköpum
Edda Sif Aradóttir framkvæmdastjóri Carbfix fettir fingur út í ummæli Davíðs Arnars Stefánssonar, sem er sérfræðingur á sviði sjálfbærrar landnýtingar hjá Land og skógi og oddviti Vg í Hafnarfirði og segir þau dæma sig sjálf. Líkt og önnur þess efnis að Carbfix ógni fólki með einhverjum hætti.

Telur pólitísk afskipti hafa ráðið því að ráðningin var dregin til baka
Óskar Steinn Ómarsson stjórnmálafræðingur telur pólitísk afskipti af ráðningarferli Hafnarfjarðarbæjar vera ástæðu þess að ráðning hans í starf deildarstjóra í grunnskóla í bænum hafi verið dregin til baka. Hann segist ætla með málið eins langt og hægt er.

Framkvæmdir við Suðurnesjalínu 2 hefjast á næstu dögum
Framkvæmdir við Suðurnesjalínu 2 hefjast á næstu dögum, en með tilkomu línunnar verður flutningskerfi raforku sveigjanlegra á Suðurnesjunum og mun afhendingaröryggi aukast til muna.

„Rasísk“ ummæli foreldrafulltrúa vekja reiði íbúa
Til stendur að starfrækja móttökuúrræði fyrir börn í leit að alþjóðlegri vernd í Breiðagerðisskóla í Reykjavík frá og með næsta hausti. Fulltrúi foreldra í skólaráði telur úrræðið slæmt fyrir börn í skólanum, sem eigi ekki „blandast“ með börnum í neyð. Aðrir íbúar hneykslast á þessum ummælum foreldrafulltrúans.

Óttast vaxandi atvinnuleysi á næstu misserum
Atvinnuleysi í júní mælist ívið meira en í fyrra, en skráð atvinnuleysi var 3,1% á landsvísu. Hagfræðingur ASÍ óttast að atvinnuleysi fari vaxandi á næstunni í ljósi horfa í efnahagslífinu. Meðal annars sé hátt vaxtastig farið að hægja á umsvifum í hagkerfinu og því sé ekki ólíklegt að minni umsvif hafi áhrif á atvinnustigið.

Aurskriða í Syðridal: „Ég hef aldrei séð svona áður“
Aurskriða féll í Syðridal nærri Bolungarvík klukkan ellefu í dag. Mikill hávaði fylgdi og svart ský myndaðist fyrir ofan skriðuna, sem náðist á myndband.

Skipstjórinn var drukkinn og skipaði stýrimanni að sigla á brott
Skipstjóri og stýrimaður fraktskipsins Longdawn játuðu sök þegar mál ákæruvaldsins á hendur þeim var þingfest í dag. Þeim var gefið að sök að hafa skilið skipstjóra strandveiðibátsins Höddu HF eftir í sjávarháska, eftir að hafa siglt skipinu á bátinn. Þá játaði skipstjórinn að hafa verið drukkinn.