Fyrstur til að rjúfa 800 milljarða dala múrinn Samúel Karl Ólason skrifar 4. febrúar 2026 13:17 Elon Musk og Shivon Zillis, athafnakona og barnsmóðir Musks, í brúðkaupi um síðustu helgi. AP/Mark Schiefelbein Elon Musk, auðugasti maður heims, varð á dögunum fyrsti maðurinn til að vera metinn á meira en átta hundruð milljarða dala. Er það í kjölfar þess að fyrirtækin SpaceX og xAI voru sameinuð en hann er stærsti eigandi fyrirtækjanna sem eru nú saman metin á 1,25 billjón dala (um 154 billjónir króna).
Musk er talinn eiga um 42 prósenta hlut í SpaceX og 49 prósenta hlut í xAI. Eftir sameininguna er hlutur Musks í þessu sameinaða félagi nú metinn, samkvæmt Forbes, á 542 milljarða dala. Þá er hlutur hans í bílafyrirtækinu Tesla metinn á 178 milljarða og kaupréttur hans í Tesla er metinn á 124 milljarða dala. Heildarauður Musks er talinn 852 milljarðar dala. Þetta samsvarar tæpum 105 billjónum króna (tólf núll). Samkvæmt Hagstofunni var landsframleiðsla Íslands árið 2024 tæpar 1,2 billjónir króna. Sjá einnig: Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Í þessum auðæfum Musks eru ekki meðtaldar umfangsmiklar greiðslur sem hann gæti fengið frá Tesla á næstu árum í samræmi við nýlega samþykktan launapakka. Sá pakki veltur þó á því að Musk takist að bæta rekstur Tesla verulega. Nái Musk markmiðum sínum gæti þessi launapakki gert hann allt að 122 billjónum króna auðugri á næstu tíu árum. Sjá einnig: Samþykktu stærðarinnar launapakka Musks Sú sviðsmynd veltur þó á því að Musk komi markaðsvirði Tesla í 8,5 billjónir dala. Það er nú metið 1,3 billjónir dala og hefur lækkað um 0,2 billjónir frá því launapakkinn var samþykktur. Metinn á 500 milljarða í október Þetta er í annað sinn á innan við ári sem Musk sameinar fyrirtæki í hans eigin eigu. Í mars í fyrra sameinaði hann xAI við X (áður Twitter) en þá mat hann sjálfur xAI á áttatíu milljarða dala og X á 33 milljarða en hann borgaði 44 milljarða fyrir Twitter á sínum tíma. Í báðum tilfellum hefur staða Musks sem bæði seljandi og kaupandi vakið spurningar um það hvernig hann verðmetur fyrirtækin sín. Hann er þó sagður stefna að því að setja SpaceX á markað seinna á þessu ári. Aldrei jafn mikill munur á þeim ríkustu Annar auðugasti maður heims er Larry Page, einn af stofnendum Google, en hann er metinn á 281 milljarð dala. Það samsvarar um 34,5 billjónum króna. Munurinn á milli þeirra er 578 milljarðar dala en samkvæmt Forbes hefur munurinn á auðæfum ríkasta manns heims og þess næstríkasta aldrei verið svo mikill. Á einungis fjórum mánuðum hafa auðæfi Musks tekið stakkaskiptum. Í október varð hann fyrstur til að eignast fimm hundruð milljarða dala. Í desember rauf hann fyrstur sex hundruð milljarða dala múrinn en einungis fjórum dögum síðar fór auður hans yfir sjö hundruð milljarða, þegar hæstiréttur Delaware felldi úr gildi fyrri úrskurð um að kaupréttur hans á Tesla væri ólögmætur. Eins og áður segir, er hann nú metinn á 852 milljarða dala eða 105 billjónir króna. Í október 2021 spáðu greinendur Morgan Stanley að SpaceX myndi gera Musk að fyrsta billjónamæringi heims, í dölum talið.
Elon Musk Bandaríkin SpaceX Tesla X (Twitter) Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Sjá meira