Fréttir

„Um­ferðin kemur til með að hægja veru­lega á sér“

Gefin hefur verið út appelsínugul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu í fyrramálið vegna suðaustan storms og stórhríðar. Skrifstofustjóri hjá Reykjavíkurborg býst við að verulega hægist á umferð og segir að viðbragðsáætlun vegna veðursins hafi verið virkjuð.

Innlent

Skrúfa fyrir eina helstu leiðina fyrir gas til Úkraínu

Ríkisstjórn Viktors Orbán í Ungverjalandi hefur ákveðið að skrúfa fyrir gasleiðslur til Úkraínu til þess að knýja á um að olíuleiðsla frá Rússlandi verði opnuð aftur. Orbán hefur tekið upp enn harðari stefnu gegn Úkraínu en áður í harðri kosningabaráttu sem hann háir heima fyrir.

Erlent

Tókust á um Borgarlínuna

Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, og Pétur Marteinsson, oddviti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar, tókust á um Borgarlínuna í Bítinu á Bylgjunni. Hildur telur að endurskoða þurfi áætlunina frá grunni en Pétur bendir á að verkefnið sé þegar hafið og skiljanlegt sé að finna fyrir einhverjum vaxtaverkjum. Þau sammælast um að flýta þurfi Miklubrautargöngunum.

Innlent

Tveir hand­teknir vegna sjúkrabílabrennu

Breska lögreglan handtók tvo karlmenn í tengslum við íkveikju í fjórum sjúkrabílum á vegum góðgerðasamtaka gyðinga í London. Yfirvöld rannsaka íkveikjurnar sem hatursglæp gegn gyðingum.

Erlent

Gremja innan Land­spítala vegna stóra páska­eggja­hallærisins

Ragnar Freyr Ingvarsson, sem bæði starfar sem sjálfstætt starfandi læknir sem og inni á Landspítalanum, furðar sig á forgangsröðunni en á Landspítalanum hefur verið tekin ákvörðun um að gefa starfsfólki ekki páskaegg í ár vegna niðurskurðarkröfu. Á sama tíma fær starfsfólk í heilbrigðisráðuneytinu páskaegg og ráðherra gefur ráðherrum veglegt egg.

Innlent

Hæddist að Krist­rúnu: „Halló! Ég er orðinn pirripú“

Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, flutti óhefðbundna ræðu á þinginu í gær þar sem hann setti sig í spor vinsæls menntaskólastráks. Óhætt er að segja að ræðan sé ádeila á Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra Íslands, og sagðist Jón, í karakter, vita betur en allir aðrir, vera stjórnlyndur og sagðist vera búinn að fá nóg af hinum krökkunum í skólanum.

Innlent

Vill halda á­fram sem for­sætis­ráðherra

Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, segist vilja halda áfram sem forsætisráðherra landsins, þrátt fyrir að flokkurinn hafi tapað tólf þingsætum í þingkosningunum sem fram fóru í gær.

Erlent

Bjóða Frosta að ræða „villu­ljós“ í Há­skóla Ís­lands

Forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands segir stofnunina ekki taka undir afstöðu Frosta Sigurjónssonar með því að bjóða honum að halda fyrirlestur um loftslagsmál. Helsti loftslagsvísindamaður landsins lýsti vísindalegri umfjöllun í nýlegri bók Frosta sem „villuljósi“

Innlent

Biðlar til Løkke að mynda með sér miðhægristjórn

Hvorki rauða né bláa blokkin náði hreinum meirihluta í þingkosningunum í Danmörku. Rauða blokkin fékk 84 þingsæti en sú bláa fékk 77. Moderaterne-flokkur Lars Løkke Rasmussen fékk fjórtán sæti og er í lykilstöðu fyrir stjórnarviðræður, sem gætu reynst flóknar en Troels Lund Poulsen, leiðtogi Venstre, hefur útilokað áframhaldandi ríkisstjórnarsamstarf með Sósíaldemókrataflokki Mette Frederiksen.

Erlent

Tæp­lega þúsund drónar á einum sólar­hring

Rússar gerðu á síðustu tveimur dögum umfangsmestu loftárásir á Úkraínu frá því innrásin hófst í febrúar 2022. Á 24 klukkustundum beindu Rússar 948 sjálfsprengidrónum að borgum og bæjum Úkraínu en í dag beindust árásirnar sérstaklega að vesturhluta Úkraínu og borgum eins og Lviv.

Erlent

Haaland keypti Heims­kringlu á 17 milljónir

Norski knattspyrnumaðurinn Erling Haaland, stjörnuleikmaður Manchester City, keypti sérstaka útgáfu af Heimskringlu Snorra Sturlusonar á 1,3 milljónir norskra króna og gaf bókasafninu í heimabæ sínum eintakið. Bókin er sú dýrasta sem selst hefur í Noregi.

Erlent

„Fólkið er að öskra: Donald Trump, komdu núna“

Þó nokkrir Kúbverjar á Íslandi eru verulega ósáttir við ferðalag Eyjólfs Eyvindarsonar, formanns Víkur – Vináttufélags Íslands og Kúbu og fleiri Vesturlandabúa, til Kúbu með hjálpargögn. Þau segja frásögn hans og annarra í hópnum ekki endurspegla raunveruleika Kúbverja. 

Innlent

„Mark­miðið er ekki að komast til tunglsins, heldur búa þar“

Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) tilkynntu í dag að setja ætti meira púður í það að koma upp bækistöð á yfirborði tunglsins. Það ætti að gerast áður en Donald Trump, forseti, yfirgefur Hvíta húsið. Einnig stendur til að skjóta kjarnorkuknúnu geimfari af stað til Mars árið 2028.

Erlent

Útgönguspá: Ríkis­stjórninni refsað en Løkke í lykil­stöðu

Dönsku ríkisstjórnarflokkarnir, allra helst Sósíaldemókrataflokkur Mette Frederiksen forsætisráðherra, tapa fylgi í þingkosningum í kvöld samkvæmt útgönguspám. Samt er Lars Løkke Rasmussen úr Moderaterne í lykilstöðu hvað varðar stjórnarmyndun, þar sem hvorki rauða né bláa blokkin fær hreinan meirihluta.

Erlent

Harmi slegin vegna fjölda til­kynninga af leik­skólum

Barnamálaráðherra segir ljóst að bregðast þurfi við holskeflu mála sem hafa komið upp nýverið þar sem starfsmenn leikskóla eru sakaðir um brot gegn börnum. Ráðherrann segist í áfalli vegna fjöldans en sex mál á jafnmörgum leikskólum hafa komið upp undanfarið ár.

Innlent