Fréttir

Gæslu­varð­hald sam­þykkt yfir Ming Ting

„Það var fallist á gæsluvarðhaldskröfu í Héraðsdómi Reykjavíkur í gærkvöldi,“ staðfestir Ómar Örn Bjarnþórsson, verjandi Ming Ting Mancel, sakbornings í Edition-málinu svokallaða. Mancel var í gær dæmd til tólf ára fangelsisvistar í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir samverknað í morði á dóttur sinni.

Innlent

Gripinn á nánast tvö­földum há­marks­hraða

Lögregla stöðvaði ökumann fyrir of hraðan akstur í Hlíðahverfi Reykjavíkur sem keyrði á nánast tvöföldum hámarkshraða. Hraði hans mældist 87 kílómetrar á klukkustund þar sem hæsti leyfilegi hraði er 50 kílómetrar á klukkustund. Málinu var lokið á staðnum með greiðslu sektar.

Innlent

Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni

Hundruð dýra hafa verið aflífuð eftir að þúsundum minka var sleppt úr minkabúi í Mosfellsdal. Í kvöldfréttum sjáum við myndir frá óvenjulegum degi í Mosfellsbæ þar sem skothvellir ómuðu. Við ræðum einnig við íbúa og bóndann á Dalsbúi auk þess sem við verðum í beinni frá svæðinu og fylgjumst með aðgerðum.

Innlent

Horfðu á bílinn velta niður fjallið

Fjölskylda á ferðalagi um Vestfirði reiknaði með því versta þegar hún horfði á bíl velta niður hlíðar Bolafjalls um þrjúleytið í dag. Fólkið trúði ekki sínum eigin augum þegar það sá konu skríða út úr bílflakinu sem var í algjörri klessu. Ótrúlegt en satt er konan aðeins slösuð á handlegg.

Innlent

Neitaði að svara spurningum þing­manna

Anthony Fauci, fyrrverandi yfirmaður sóttvarna í Bandaríkjunum, neitaði í dag að svara spurningum þingmanna. Beitti hann fyrir sig fimmta ákvæði stjórnarskrár Bandaríkjanna um rétt fólks til að fella ekki á sig sök.

Erlent

Hvað er í boði um verslunar­manna­helgina?

Ein stærsta ferðahelgi ársins er að renna upp þar sem landinn mun leggja leið sína á hinar ýmsu hátíðir víðs vegar um land. Hér er hægt að sjá hvað stendur ferðalöngunum til boða um verslunarmannahelgina.

Innlent

Leita enn í rústunum í Japan

Björgunarsveitarmenn og hermenn leita enn að fólki í mjög skemmdri verslunarmiðstöð og hrundum húsum í Japan. Að minnsta kosti átján eru látnir eftir að 7,1 stiga jarðskjálfti lék suðvesturhluta Japanseyja grátt í gærmorgun. Að minnsta kosti 62 eru slasaðir og þar af sex alvarlega, samkvæmt yfirvöldum.

Erlent

Allir á hlaupum að reyna fanga minka

Aðstoðarlögreglustjóri segir að rökstuddur grunur sé um að brotist hafi verið inn í minkabú og dýrunum hleypt úr búrunum. Alls hafi verið á milli tíu og tólf þúsund minkar í búinu en fjöldi viðbragðsaðila kemur að því að fanga minkana sem sluppu. Mikið sé undir.

Innlent

„Við ætlum að fokking lúskra á þeim“

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir að árásum Írana á bandaríska hermenn í Jórdaníu í nótt verði svarað af mikilli hörku. Bandaríkjamenn svöruðu árásum Írana með árásum á írakskar sveitir sem sæta skipunum klerkastjórnarinnar í Teheran en Trump segir þær árásir hafa verið gerðar í samráði við yfirvöld í Bagdad.

Erlent

Segist hafa skipt um skoðun varðandi aðildarviðræðurnar

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, segir það óviðunandi hlutskipti fyrir stolta og fullvalda þjóð að vera umsagnaraðili frekar en beinn þáttakandi í mótun regluverks sem EES-samstarfið grundvallast á. Að setjast við borðið sé til þess gert að styrkja fullveldið, ekki veikja það.

Innlent

Líkir Trygginga­stofnun við hand­rukkara

Ingi Björn Sigurðsson hagfræðingur missti eiginkonu sína úr krabbameini fyrir tæpum tveimur árum en hann er enn að fá kröfur frá ríkisstofnun vegna andlátsins; kröfur sem tvöfaldast án útskýringa.

Innlent

„Það er bara ekkert sniðugt við þetta“

Íbúi í Mosfellsdal og nágranni Dalsbús, varð var við nokkra minka á kreiki í garðinum heima hjá sér fyrr í dag. Ástandið í dalnum sé nokkuð súrrealískt enda ómi byssuskot um dalinn og lögreglan fljúgi drónum til aðstoðar við leit að minkunum. 

Innlent

Stofnandi Telegram á­kærður og eftir­lýstur í Rúss­landi

Yfirvöld í Rússlandi hafa ákært Pavel Durov, stofnanda samfélagsmiðilsins Telegram, fyrir að styðja hryðjuverkastarfsemi og hafa sett hann á alþjóðlega lista yfir yfirlýsta menn. Rússnesk stjórnvöld hafa þjarmað verulega að samfélagsmiðlinum í Rússlandi og vilja þess í stað að Rússar noti ríkissnjallforrit sem auðveldar yfirvöldum að fylgjast með borgurunum.

Erlent

Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir

Ekki er vitað um ferðir um tuttugu eþíópískra drengja, sem saman mynduðu fótboltalið, á fótboltamótinu Gothia Cup sem fram fór í Gautaborg í Svíþjóð á dögunum.

Erlent

Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir

Talið er að fleiri þúsund dýr hafi sloppið af minkabúi í Mosfellsdal. Yfirdýralæknir Matvælastofnunar segir að talið sé að dýrunum hafi verið sleppt viljandi. Um stórslys sé að ræða sem geti valdið öðrum dýrum miklum þjáningum.

Innlent

Náttúran verði sett í fyrsta sæti en ekki ræktandinn

Stjórn Víghóls, íbúasamtaka Mosfellsdals, segist verulega brugðið yfir því að hundruðir minka hafi sloppið út í Dalsbúi. Mosfellsdalur sé gróðursæl náttúruparadís, þar sem sé að finna fjölskrúðugt fuglalíf sem nú steðjar ógn að.

Innlent

Ebólan komin í metstærð á met­tíma

Ekkert lát virðist á útbreiðslu ebólu í Austur-Kongó. Skráð tilfelli fóru í gær í 3.262 og er það næstum því til jafns við versta faraldurinn í landinu. Vitað er til þess að 1.437 hafa dáið vegna veirunnar en skráningar eru að öllum líkindum langt frá því að ná utan um raunverulega útbreiðslu veirunnar.

Erlent

Gríðar­legur fjöldi minka slapp úr búrum sínum

Mörg hundruð ef ekki þúsund minkum var sleppt út í Dalsbúi í Mosfellsbæ, síðasta minkabúinu á Íslandi, í nótt. Íbúar í nágrenninu óttast um lífríkið á meðan minkarnir ganga lausir. Fylgst er með gangi mála í vaktinni hér að neðan.

Innlent