Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum Samúel Karl Ólason skrifar 23. október 2026 07:30 Doug Fork fylkisleiðtogi Ontario og Mark Carney forsætisráðherra Kanada höfnuðu því á blaðamannafundi í gær að Kanadamenn hefðu haft óeðlileg afskipti af komandi þingkosningum í Bandaríkjunum. AP/Justin Tang, The Canadian Press Ríkisstjórn Donalds Trump hefur sakað embættis- og stjórnmálamenn í Kanada um að hafa óviðeigandi afskipti af bandarískum stjórnmálum í aðdraganda þingkosninganna í næsta mánuði. Sendiráð Bandaríkjanna í Kanada hefur birt sérstakt skjal þar sem kvartað er yfir því að ráðamenn í Kanada taki ásakanirnar ekki alvarlega. „
Kanadísk stjórnvöld gera lítið úr áhyggjum af mögulegum afskiptum af bandarískum kosningum, þótt ráðherrar og fylkisleiðtogar hafi opinberlega rætt áætlanir um að hafa áhrif á bandarísk stjórnmál, bæði í opinberum gögnum og í opinberum framkomum,“ segir í skjalinu. Skjalið inniheldur einnig fullyrðingar og tilvísanir í kanadíska aðila sem eiga að styðja þann málflutning að Kanadamenn hafi reynt að hafa afskipti af kosningunum. Í skjalinu er fjallað sérstaklega um Mélanie Joly iðnaðarráðherra, Doug Ford fylkisleiðtoga Ontario, Anthony Housefather þingmann og Bernadette Jordan fyrrverandi ráðherra og ræðismann Kanada í Boston. Vísað er til ummæla sem sem þetta fólk og aðrir hafa látið falla um að Kanadamenn vilji hafa áhrif á bandaríska kjósendur og fyrirtæki í mikilvægum ríkjum í aðdraganda kosninganna vegna deilna ríkjanna. Pete Hoekstra, sendiherra Bandaríkjanna í Kanada, sem hefur ítrekað reitt Kanadamenn til reiði á síðusu tveimur árum, sagði nýverið í viðtali að svo virtist sem að Kanadamenn væru að hafa afskipti af kosningunum. Vísaði hann til auglýsinga sem Ford lét birta í Bandaríkjunum eftir að Trump beitti Kanada fyrst tollum. Það sem Hoekstra vísaði til og var vísað í í skjaldinu frá sendiráðinu, snýr flest að viðbrögðum Kanadamanna við tollum og hótunum Bandaríkjamanna í garð Kanada. Mark Carney, forsætisráðherra, og Ford vísuðu þessum ásökunum Bandaríkjamanna á bug á blaðamannafundi í vikunni. „Allt sem við gerum er í hag kanadískra verkamanna og fjölskyldna og í hag framtíðar þessa efnahags,“ sagði Carney, samkvæmt frétt CBC. Ford tók fram að hann hefði engan áhuga á að hafa afskipti af kosningum í Bandaríkjunum. Kanadamenn væru einbeittir í því að verja hagkerfi landsins, fólkið og samfélagið. Aðrir hafa slegið á svipaða strengi. Ellefu Kanadamenn handteknir Í áðurnefndu skjali frá sendiráði Bandaríkjanna í Kanada segir einnig að Kanadamenn séu næstfjölmennasti hópur erlendra ríkisborgara sem hafi reynt að greiða atkvæði eða greitt atkvæði í bandarískum kosningum. Að minnsta kosti ellefu Kanadamenn hafa verið ákærðir fyrir að hafa greitt atkvæði eða reynt það í fyrri kosningum í Bandaríkjunum. Þeirra á meðal er maður sem heitir Robert Harold Corbett. Hann fæddist í Kanada en ólst upp í Bandaríkjunum. Hann hefur verið ákærður fyrir að greiða atkvæði í sex kosningum í Bandaríkjunum. Corbett sagði blaðamönnum nýverið að hann hefði verið fullviss um að hann væri bandarískur ríkisborgari, þar til hann var handtekinn fyrr í þessum mánuði. „Ég komst ekki að því að ég væri ættleiddur fyrr en ég var 51 árs gamall.“ Rannsóknir hafa ítrekað sýnt fram á að mjög sjaldgæft sé að erlendir ríkisborgarar greiði atkvæði í bandarískum kosningum. Donald Trump, forseti, hefur þó ítrekað haldið því fram að svo sé raunin. Þá hefur hann einnig gefið til kynna að þingkosningarnar í næsta mánuði muni einkennast af mikilli spillingu. Kannanir benda til þess að Repúblikanaflokkurinn muni koma illa út úr kosningunum og líklega missa meirihluta í fulltrúadeildinni og mögulega í öldungadeildinni, þó minni líkur séu á því. Eiga í miklum deilum við Bandaríkjamenn Kanadamenn eiga í umfangsmiklum deilum við Bandaríkjamenn og viðskiptastríði. Trump hefur beitt Kanada umfangsmiklum tollum og bannað innflutning vara frá Kanada, eftir að Kanadamenn svöruðu með eigin tollum gegn Bandaríkjunum. Þá hefur Trump einnig skrifað undir forsetatilskipun um að breyta eigi nafni Ontario-vatns í Ameríku-vatn. Trump hefur lengi talað niður til Kanada og sagt að landið eigi að verða 51. ríki Bandaríkjanna. Hann hefur jafnvel sagt opinberlega að hann vilji þvinga Kanadamenn til þess að ganga inn í Bandaríkin með efnahagslegum aðgerðum. Trump hefur ekki viljað útiloka beitingu hervalds til að innlima Kanada. Kanadamenn hafa brugðist reiðir við þessum aðgerðum og orðum Trumps. Þeir hafa hætt að kaupa vörur frá Bandaríkjunum og dregið verulega úr ferðalögum sínum til Bandaríkjanna, svo eitthvað sé nefnt. Sjá einnig: Reiðir Könum sem skreyta sig með fána Kanada Tollarnir sem Kanada svaraði tollum Bandaríkjanna með voru sérstaklega hannaðir til að koma niður á íbúum í ríkjum þar sem Repúblikanar ráða ríkjum. Markmið Kanadamanna þar var að fá Repúblikana í viðkvæmri stöðu til að þrýsta á Trump um að fella tollana úr gildi. Renndu hýrum augum til Alberta Nýlegar fór fram atkvæðagreiðsla í Alberta-fylki þar sem íbúar greiddu atkvæði um það hvort að hefja ætti aðskilnaðarferli frá alríkisstjórninni í Ottawa. Alberta er mjög stórt fylki í vesturhluta Kanada, en þar er mestallri olíu landsins dælt úr jörðu. Fylkið aflar þannig gífurlegra tekna fyrir alríkið Kanada og það hefur lengi valdið gremju í fylkinu, þar sem mörgum íhaldssömum íbúum finnst alríkið ekki koma nægilega vel fram við þá. Fjórðu stærstu olíulindir heimsins, sem vitað er um, má finna undir yfirborðinu í Alberta. Þær stærstu eru í Venesúela, Sádi-Arabíu og Íran. Ástandið versnaði töluvert í valdatíð Justins Trudeau en sérfræðingar segja það hafa skánað og dregið hafi úr stuðningi við sjálfstæði síðan hann hætti og Mark Carney tók við sem forsætisráðherra. Yfirgnæfandi hluti íbúa kaus að vera áfram hluti af Kanada. Sjá einnig: Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Alberta hefur spilað stóra rullu í árásum Trumps á Kanada. Forsetinn og ráðgjafar hans hafa rennt hýrum augum til fylkisins en leiðtogar aðskilnaðarhreyfingarinnar hafa fundað með embættismönnum í Bandaríkjunum. Þar eru þeir sagðir hafa boðið Bandaríkjamönnum aðgang að vatni og olíu í skiptum fyrir stuðning í baráttunni. Fengu þeir ráðleggingar og tæknilega aðstoð frá Trump-liðum, samkvæmt Globe and mail. Í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar varaði Carney íbúa Alberta við því að aðilar utan landamæra ríkisins væru að reyna að sundra Kanadamönnum, svo þeir gæti eignast Kanada.
Kanada Bandaríkin Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Ítalski baróninn á ekki vatnið Innlent Fleiri fréttir Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Sjá meira