Veður

Bjart­viðri suð­vestan­lands en líkur á skúrum

Í dag verður norðaustan kaldi eða stinningskaldi en sums staðar allhvass vindur á norðvestanverðu landinu. Samkvæmt veðurspá Veðurstofunnar verður rigning norðan- og austantil en bjartviðri suðvestanlands en líkur á skúrum þar síðdegis. Hiti 6 til 15 stig.

Veður

Viðrar vel til há­tíðar­halda á höfuð­borgar­svæðinu

Búast má við hvössum vindstrengjum og varasömum aðstæðum fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind, svo sem húsvagna, við suðausturströndina. Það er lægð suður af landinu sem veldur stífri norðaustanátt og henni fylgja skúrir og svalt veður um landið austanvert en víða má reikna með 8 til 15 metrum á sekúndu.

Veður

Aust­læg átt og víða líkur á vætu

Veðurstofan gerir ráð fyrir austlægri átt í dag, fremur hægri, skýjuðu og eru líkur á vætu. Norðaustan- og austanlands ætti að létta til og verður hlýjast á Norðausturlandi í dag.

Veður

250 skjálftar en enginn gos­ó­rói að svo stöddu

Jarðskjálftahrinu sem hófst í gærkvöldi upp úr klukkan 22:00 í kjölfar skjálfta, sem mældist um 4,8 að stærð, fylgir enginn gosórói að svo stöddu. Ríflega tvö hundruð og fimmtíu skjálftar voru mældir frá klukkan 22:00 og til klukkan 02:00 en þar af voru ellefu skjálftar yfir þremur að stærð.

Veður

Á­fram rólegheitaveður en líkur á síðdegisskúrum

Hiti gæti farið í tuttugu gráður á Suðvesturlandi í dag og líkur á síðdegisskúrum en aðeins svalara verður í þokulofti við norður- og austurströndina. Hæg breytileg átt eða hafgola og almennt mjög rólegt veður í dag. Hiti fer lægst niður í um sex gráður á norðausturhorninu.

Veður

Sólin sleikir lands­menn

Víðast á landinu ætti að sjást til sólar í dag. Útlit er fyrir þokkalega hlýju en hitatölurnar eru á bilinu 11 til 18 stig. Veðurfræðingur segir fólk eiga að njóta blíðviðrisins meðan það er. 

Veður

Á­fram bongó í kortunum og nú um allt land

Líkt og flestir á suðvesturhorninu hafa líklegast orðið varir við hefur blíðviðri leikið um landshlutann. Nú stefnir í að sólin teygi sig yfir allt land og þrátt fyrir þoku á norður- og austurströndinni spáir björtu og hægu veðri, en hiti fer mest upp í um átján stig í dag en nær tuttugu stigum á morgun og þá er spáð hlýjasta veðrinu á suðvestanverðu landinu.

Veður

„Gegnum­gangandi bongó um helgina“

Það stefnir í að veðurblíðan haldi áfram að leika við landann um helgina. Ekki nóg með það að sólin haldi áfram að skína á sunnan- og vestanverðu landinu heldur lætur hún einnig sjá sig norðan- og austanlands á morgun.

Veður

Mögu­leiki á tuttugu stiga hita

Í dag er útlit fyrir fremur hæga austlæga eða breytilega átt. Léttskýjað að mestu sunnan- og vestanlands og nokkuð hlýtt, hiti yfirleitt á bilinu 13 til 19 stig og möguleiki á að 20 stig geti mælst á stöku veðurstöð.

Veður

Skúrir víða um land og lægð nálgast austur­strönd

Í dag er spáð fremur hægri austlægri eða breytilegri átt og stöku skúrum víða um land, en strekkingi norðvestanlands þegar líða fer á daginn. Í veðurspá kemur fram að lægð norðaustur af landinu nálgist síðan austurströndina síðdegis og taki þá að hvessa með rigningu eða súld norðaustan- og austanlands þegar skilin ganga á land.

Veður

„Mjög venju­legt sumar­veður“

Úrkomuna, sem hefur leikið íbúa á suðvesturhorninu grátt síðustu daga, segir Birgir Örn Höskuldsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, vera „mjög venjulegt sumarveður“ í samtali við Vísi. 

Veður

Rigning öðru hverju

Veðurstofan gerir ráð fyrir suðaustan átta til þrettán metrum á sekúndu í dag, en hægari breytilegri átt á vestanverðu landinu.

Veður

Milt veður um helgina

Veðurspár gera ráð fyrir hægum vindum, rigningu eða skúrum og fremur mildu veðri í dag og á morgun.

Veður

Skýjað og víða skúrir

Veðurstofan gerir ráð fyrir hægri norðaustlægri eða breytilegri átt í dag. Skýjað verður að mestu á landinu og víða skúrir, en þokuloft lætur líklega á sér kræla með norður- og austurströndinni.

Veður

Gular við­varanir vegna snjó­komu

Veðurstofan gerir ráð fyrir rigningu, slyddu eða snjókomu norðaustan- og austanlands með kólnandi veðri. Um er að ræða óvenjulegan árstíma fyrir snjókomu og því hafa gular viðvaranir verið gefnar út.

Veður

Úrkomulítið sunnan­lands en skúrir á Austur­landi

Í dag er spáð vestan og suðvestan fimm til þrettán metrum á sekúndu. Skúrir, en skýjað með köflum á Austurlandi og Austfjörðum. Hægari breytileg átt annað kvöld. Hiti verður líklega á bilinu sjö til 15 stig að deginum, hlýjast austanlands.

Veður